Vikan

Tölublað

Vikan - 26.07.1973, Blaðsíða 10

Vikan - 26.07.1973, Blaðsíða 10
ÓLAFUR G. EINARSSON Hann læst viðkvæmur rósarhnappur, en.. Prófkjör Sjálfstæöisflokksins i Reykjanes- kjördæmi fyrir alþingiskosningarnar 1971 leiddi til þess, aö Oddur Ólafsson læknir hreppti allt i einu annaö sæti framboöslistans og kom þar i staö Péturs heitins Benedikts- sonar, en flestir höföu ætlaö, aö Axel Jönsson bæjarfulltrúi i Kópavogi hlyti þann sess, enda hafði hann skipað fjóröa sætiö frá þvi 1963 og oröiö þingmaður um stundarsakir virð fráfall Ólafs Thors og Péturs. Hins vegar áttu sumir flokksbræöur Axels bágt meö aö fyrirgefa honum, aö hann hratt Sveini Einarssyni verkfræðingi úr þvi sæti á sinum tima, þó að litill garpur sé. Kom þetta nú Axel i koll. Hann beið ósjgur fyrir Oddi lækni og einnig Ólafi G. Einarssyni i keppni um þriöja sætiö og hlaut enn aö bæla sig á fram- boöslistanum i von um stopula varaþing- mennsku. Mun einhverju hafa ráöiö um úrslitin, aö Axel var oröinn heilsutæpur og þess vegna litt orrustufær, en Oddur hins vegar mörgum geöþekkur og Ólafur ungur og vaskur, og hvorugur haföi flekkaö hendur sinar i neinum stimpingum. Ýmsum fannst og við hæfi aö launa Ólafi á kostnaö Axels, hvaö gengi Sjálfstæðisflokksins telst hlut- fallslega meira i rándýrum höllum oddborg- aranna i Garöahreppi en hinum misjöfnu húsakynnum i Kópavogi þar sem stétta- munur er næsta augljós. Framboð Sjálfstæöisfjokksins i Reykja- neskjördæmi varö þannig sigur tveggja nýliöa, sem skipuöu fyrri sæti Péturs Bene- kiktssonar og Sverris Júliussonar, en hafði engar háskalegar afleiöingar eins og sumir spáöu. Oddur læknir ólafsson naut mjög persónulegra vinsælda sinna til viöbótar flokksfylginu, og ólafur G. Einarsson taldist vel aö mannviröingunni kominn, þó aö hann yröi að stjaka óþægilega viö Axel Jónssyni á leiöinni upp i tignarstólinn og valda honum nýjum vonbrigðum eftir hrakfarirnar fyrir Oddi. ólafur Garöar Einarsson fæddist i Siglu- firði 7. júli 1932, sonur Einars Kristjánssonar forstjóra þar og siöar á Akureyri og konu hans, ólafar Isakssdóttur. Hann varö stúdent á Akureyri 1953, en nam siðan lögfræöi vi Háskóla Islands og lauk prófi 1960. Ólafur réðst sveitarstjóri i Garöahreppi nýkominn frá prófboröinu og geröist forustumaöur i hinni nýju og glæsilegu byggö milli Kópavogs og Hafnarfjarðar, en lét af þeim starfa 1972 vegna anna viö þingmennskuna og var þá kjörinn oddviti. Enginn vafi lék á um stjórnmálaskoöanir Ólafs G. Einarssonar strax á ungum aldri. Hann skipaði sér i raöir ungra sjálfstæöis- manna og hugðist gera sér stjórnmál aö atvinnuvegi eins og fleiri metoröagjarnir lögfræöingar. Hefur Ólfur jafnan veriö staö- fastur i þeim ásetningi, þó aö hann sýnist fara hægt. Hann var kjörinn af flokki sinum til sveitarstjórnar i Garöahreppi 1966 og 10 VIKAN 30. TBL.

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.