Vikan

Eksemplar

Vikan - 26.07.1973, Side 11

Vikan - 26.07.1973, Side 11
endurkjörinn 1970, en sjálfstæöismenn eru þar i meirihluta. Hefur fjölmenni tekiö sér bólfestu i Garöahreppi undanfarin ár og efnaöir borgarar sér i lagi setzt þar aö, til aö njóta indællar sveitarbliöu örskammt frá ysi og þrengslum höfuöstaöarins og eiga kyrrlátt athvarf i nýtizkulegum hibýlum út um úfin hraun og sléttar grundir i námunda viö fjöll og sjó. ölafur reyndist áhugasamur sveitar- stjóri og óx fljótt i áliti af þeim verkefnum. Fór ekki mikiö fyrir honum i prófkjöri sjálf- stæöismanna, er leiö aö alþingis- kosningunum 1971, en hann skipulagöi þátt- töku sina hyggilega, sótti fast aö settu marki og náöi ágætum árangri. Sjálfstæöis- flokkurinn bar svo úr býtum góöan feng i Reykjaneskjördæmi, þegar atkvæöi voru talin aö lokinni orrahriöinni um' deiluefrii landsmálanna. Matthias A. Matthiesen og Oddur úlafsson voru báöir kosnir þingmenn kjördæmisins, en ólafur G. Einarsson varö landskjörinn. Ræöumennsku Olafs G. Einarssonar svipar litt til hins blæbrigöarika og oft list- ræna málflutnings ólafs Thors, þegar hann fór á kostum, og greind nettmennisins i Garöahreppi er ekki heldur i likingu viö gáfnafar Péturs Benediktssonar. Eigi aö siöur er Ólafur maöur áheyrilegur og skynsamur. Hann undirbýr ræöur sinar dyggilega og mælir þær skýrt af munni fram án alls leikaraskapar. Styrkleiki hans er þekking sú á högum fólks, sem hann aflaöi sér i sveitarstjórastarfinu i Garöahreppi og komst i kynni viö ungur drengur noröur i landi. Hann vekur naumast aödáun á málþingum, en veldur sjaldan vonbrigöum. Maöurinn er á allan hátt strokinn og sléttur. Hann er virðulegur i framgöngu, kurteis og viötalsgóöur og hæglátur i skoöunum, en ákveðinn og jákvæður. Ólafur er og vel menntur og þykir trygglyndur, ef á reynir. Hann vinnur snyrtilega öll störf, sem honum er til trúað, leynir sæmilega kappi sinu og eigingirni og á sér fáa öfundarmenn, en myndi hins vegar ógjarnan láta ganga á hlut sinn eöa stjaka viö sér. Ólafur veit, aö sam- keppni einkaframtaksins er áhættusöm iþrótt og gætir þvi hófs, þegar aðrir, sem treysta á hverja vinningsvon, leiöast út i hæpið tafl. Hann er hygginn og varkár og gæti orðið slunginn, þegar honum eykst reynsla. Virðist þess vegna harla sennilegt, að Ólafur G. Einarsson sitji enn lengi á þingi og komist vel af sem stjórnmálamaður, ef forlögin unna honum langlifis. Fpringjum Sjálfstæöisflokksins er mikils viröi aö njóta liöveizlu og samvinnu manns eins og Ólafs G. Einarssonar. Þeir eru hverja stund sannfærðir um trúnaö hans og hollustu, en hafa ærið gagn af ráðum hans og tillögum. Ólafur deilir fúslega geði viö kjósendur sina i Garöahreppi og annars staöar i Reykjanes- kjördæmi, enda ólatur til snúninga. Hann veit þvi hugi slikra miklu betur en leiðtog- arnir, sem hreiöra um sig á mjúkum hægindum i filabeinsturni og einangrast þar mitt I bilaþvögunni og mannþrönginni, þó aö þeim finnisf alltaf horft á sig. Kemur Ólafur afstööu og áhugamálum nýrikrar borgara- stéttar skilmerkilega á framfæri viö þessa leiötoga sina, en temur sér jafnframt einurð og hreinskilni og veröur sér úti um traust yfirboöaranna, sem halda þessi tilviljunar- kenndu skilaboö eins konar flokksvilja. Ólafur G. Einarsson er frjálslyndur maöur og gerir sér þess grein, aö flokkur hans þarf aö endurnýjast og fylgjast meö breytingu timanna likt og arövænlegt fyrirtæki. Hann varast kreddur og fordóma, en vill Sjálf- stæöisflokkinn áræöinn og útsjónarsaman i keppnini um hylli kjósendanna, sem leggja mikiö upp úr auglýsingum og gylliboöum. Hins vegar stendur honum svipaöur beygur af róttækum nýjungum og þeirri voðalegu til- hugsun, aö Sjálfstæðisflokkurinn tapi meiri- hluta sinum i Garöahreppi og hrekjist þar út á kaldan pólitiskan klaka. Ólafur G. Einarsson fékk hugboö um, að þátttaka i islenzkum stjórnmálum yröi sér eftirsóknarveröur ogheppilegur atvinnu- vegur, þegar hann dreymdi ungan um lifs- starf og æviferil. Hún er lika þessum prúða manni hagsmunir miklu fremur en hégóma- skapur. Eigi aö siður mun Ólafur næsta metoröagjarn. Hann fer þaö, sem hann kemst, og gerir sig stundum kostbæran til aö minna á sig og láta ganga eftir sér. Mörgum finnst hann likt og brosmildur og handa- hraöur afgreiöslumaöur i sölubúö viö alfara- veg, er vinnur trúr og dyggur fyrirtækinu, sem hann á hlutdeild i og hefur hagsmuni af, og þjónar stimamjúkur sérhverjum viðskiptavini. Ólafur G. Einarsson er visast þannig tilsýndar á ytra boröi frammi fyrir háttvirtum kjósendum, en telst samt haröger og rótfastur undir niöri eins og moldgróinn teinungur. Hanri læzt viökvæmur rósar- hnappur, en er ein af lifvænlegustu jurtunum i blómsturpottunum á markaöi Sjálfstæöis- flokksins. Lúpus 30. TBL. VIKAN 11

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.