Vikan

Ataaseq assigiiaat ilaat

Vikan - 26.07.1973, Qupperneq 15

Vikan - 26.07.1973, Qupperneq 15
RICHARD BURTON GAF 250.000 DOLLARA Richard Burton sker ekkert við neglur sér. Fyrir nokkru hringdi Margrét Bretaprin- sessa til hans frá London og spurði hvort hann og konan hans, Liz Taylor, gætu ekki komið fram á hljómleikum, sem halda átti i góðgerðar- skyni. Þau gátu það ekki sökum anna. En Burton spurði: — Hve mikið reiknið þið með að fá inn á þessum hljómleikum? — Um það bil 250.000 dollara, svaraði prin- sessan. Og þar með var málið útrætt. En samt ekki af hálfu Richards Burton. Þrem dögum siðar kom ávisun upp á 250.000 dollar fí*á þeim hjónum. Prinsessan sagði að þannig væri hann alltaf, þegar leitað væri til hans. Vonandi fara þau Burtons hjónin ekki á vonarvöl fyrir þetta. NÚTÓPÍA John Lennon og Yoko Ono veifa hér hvitum fána, þjóð- fána „Nútópiu”. Þau haf sjálf fundið upp þetta riki og þau segja, að allir geti orðið ibúar i þessari paradis. Þar tiðkast engin vegabréf, engin lög, engin stéttaskipting og engin landamæri. Allt sem þarf til þess að verða „nútópóskur borgari” er að hafna öllu þessu. Aðrar fréttir af þeim John og Yoko herma, að þau verði ef til vill svipt dvalar- leyfi i Bandarikjunum, þvi að gamalt hassmál, sem John var bendlaður við, hefur verið tekið upp aftur. HATÍÐ í CANNES Erland Josepsson er okkur vel kunnur siðan við sáum hann i hjónabandsmyndunum i sjónvarpinu. Það virðist fara vel á með honum og tékknesk ættaða leikstjóranum Milos Foreman þarna á myndinni. Þeir hittust á kvikmynda- hátiðinni i Cannes, en sumir segja að Milos hafi eingöngu komið þangað i þeim erindum að hitta hana Bibi Anderson. SÍÐAN SÍÐAST

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.