Vikan

Ataaseq assigiiaat ilaat

Vikan - 27.09.1973, Qupperneq 29

Vikan - 27.09.1973, Qupperneq 29
hrúgast upp kveöjur meö þeim. En þær Islenzku plötur, sem kom- iö hafa út upp á síökastiö hafa ekki átt vinsældum aö fagna. Þar á ég einkum viö plötur Svanfríö- ar, Náttúru og ískross, þó þetta séu allt mjög góöar plötur. — Nú veröur nafn og heimilis- fang sendanda að fylgja öllum kveðjum. Hvers vegna? — Þessi regla var sett af Út- varpinu einhvern tima fyrir löngu til aö koma I veg fyrir gabb- og platkveðjur. Þaö koma alltaf nokkrar svoleiöis, en þær eru flestar auðþekktar. — Að lokum, hefur þú áhuga á aö vinna meira fyrir Otvarpið? — Já. Texti: Páll Hermannsson Ástarkveðjur í hálfdósum rætt við Ragnheiði Drifu Steinþórsdóttur Ragnheiður Drlfa Steinþórs- dóttir hefur annazt þáttinn I tvö ár. — Hvað kom til, aö þú tókst aö þér stjórn þáttarins? — Ég vissi, að Geröur Guð- mundsdóttir Bjarklind var að hætta og ég hafði áhuga, svo aö ég sótti um. — Hvernig undirbýröu þátt- inn? — Jú, ég byrja náttúrlega á þvl aö opna bréfin, slöan klippi ég frl- merkin af umslögunum. Þvi næst les ég öll bréfin og skrifa upp lista yfir lögin, sem beöiö er um, til að sjá hvaöa lög eru vinsælust. — Hvað þarf ein kveöja eöa bréf að innihalda til þess aö veröa lesin upp? — Ekkert sérstakt. Ég vel kveöjur og lögaf handahófi, þegar ég hef valið þau 5-6 mest eftir- sóttu. Ég tek svona 2-3 alveg ný lög og kannske eitt gamalt, mér finnst allt I lagi að rifja upp gömlu lögin. En ég reyni aö taka kveöj- ur, sem koma frá krökkum, sem eru erlendis. — Hvaöum málfar kveöjanna? — Það eru allir að reyna aö vera sem frumlegastir. Einhver fékk til dæmis heildsölubirgðir af niöursoönum ástarkveöjum I hálfdósum. Þaö eru til allar út- gáfur af ástarkveöjum, en ég þori samt ekki aö taka allar meö. — Hvaöberast margar kveöjur I hvern þátt? — Um það bil 120-150, en þaö eru bara 20-25 kveöjur, sem ég get lesið. — Teluröu þáttinn vera meira fyrir kveöjur en lög? — Já, slöan öll pophornin byrj- uðu I útvarpinu hljóta „Lög unga fólksins” aö vera meira fyrir kveðjur en lög, þó aö alls ekki megi sleppa lögunum. Þaö mundi sjálfsagt fáir hlusta á 50 minútna upplestur á kveðjum. — Ef bærist bréf meö ósk um upplestur á kveöju meö laginu Dlsa I dalakofanum, sem Hreinn Pálsson syngi, mundir þú koma kveöju og lagi til skila? — Já, þaö held ég. Einhvern tlma hef ég spilað Söng villiand- arinnar meö Jakobi Hafstein. — Áttu einhverja uppáhalds- hljómsveit? — Mér hugnast Emerson Lake og Palmer, þeir eru ágætir og Moody Blues. Annars er ég ekki föst I neinni ákveöinni stefnu eöa svoleiðis. — Mundir þú hlusta á „Lög unga fólksins”, ef þú værir ekki með þáttinn? — Ég hlusta oftast á Sigurö Garöarsson, svona til aö spila ekki sömu lög og hann, og svo hlusta ég líka oftast á pop-horniö, ekki bara af því, að ég er meö „Lög unga fólksins”, heldur vegna þess aö ég hef áhuga. — Er einhver verkaskipting milli Laga unga fólksins, sjúkl- ingaþáttarins og sjómannaþátt- arins? Það viröast nefnilega vera mikiö meira ættjaröarelskandi fólk, sem sendir kveöjur I sjúkl- ingaþáttinn en lög unga fólksins, þvl oft er stór hluti sjúklingaþátt- arlns helgaöur islenzkum lögum, en þau heyrast öllu sjaldnar I Lögum unga fólksins? — Nei, þaö er engin samvinna milli þessara þátta. Þaö er bara, að fólkiö, sem sendir kveðjur I sjúklingaþáttinn og Lög unga fólksins, er hvort á sinum aldri. Annars hafa Islenzk lög notiö meiri vinsælda en erlend I Lögum unga fólksins, en þaö er bara ekki um auöugan garö aö gresja meö Islenzkar plötur fyrir ungt fólk. — Þaö er eiginlega alveg sama, hversu mikiö hallærislag þaö er, bara að þaö sé Islenzkt, þá veröur það vinsælt. Aöspurö sagöist hún ekki hafa spilað handbolta, siöan hún var ung. 39. TBL. VIKAN 29

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.