Vikan - 26.09.1974, Síða 6
Nazareth
Flestir hafa eflaust þegar feng-
iö sig fullsadda af skrifum um
hlidmleika Nazareth i Laugar-
dalshöll þann 20. ágúst s.l. Um þá
hefur verið fjallaö i dagblöðum,
bæöi i poppþáttum og i fréttum.
Vegna hins langa vinnslutima
blaösins, er það ekki fyrr en nú,
sem lesendum þáttarins gefst
kostur á að sjá ljósmyndir frá
hliómleikunum og lesa meðfylgj-
undi speki. Er vonandi að mynd-
.irnar hafi komist þokkalega á
pappirinn, en eins og lesendur
hafa eflaust tekið eftir, hafa ekki
allar ljósmyndir komið óbrengl-
aðar i gegn um þá vinnsjurás,
sem þarf til þess að koma ljós-
mynd á filmu og á pappir.
Nazareth er skosk hljómsveit
og nýtur vist töluverðra vinsælda
erlendis og nokkurra hér heima,
a.m.k. hvoru einhverjar vinsæld-
ir til staðar áður en hljómleikarn-
ir voru haldnir hvað sem nú er
orðið. Eftir að hafa séð og hlýtt á
Nazareth i rúma klukkustund,
varð mér ljóst i hversu djúpum
öldudal núlifandi poppflokkar,
eins og þeir segja i útvarpinu 'eru.
Hvilik afturför hefur ekki orðið
siðustu tvö til þrjú árin. Má vera
aö unglingar á aldrinum 12—16
ára eigi erfitt með að gera sér
grein fyrir þessu, en við hin sem
höfum átt sjö dagana sæla i ein
átta til 10 ár, frá upphafi Bitla-
æðisins, sjáum þetta i hendi okk-
ar. Breskar hljómsveitir eru yfir-
leitt á lélegum standard á þessu
herrans ári 1974. Ljóminn er að
mestu farinú af fæðingarstað
poppfeðra vorra. Ris nú sól i
vestri þar sem bandariki Norður-
Ameriku eru, en ekki skal ég
fjalla um þá upprisu i þessum
þætti.
Hljómsveitin Nazareth er gott
dæmi um hina tilbúnu peninga-
vél, sem nærist af skotsilfri ung-
linga, sem vita ekki hvað tónlist
er. S...æðislegt útlit, flottar græj-
um og töffheit i massavis, eru
vörumerki sem flestir óharðnaðir
unglingar falla fyrir. Hljómsveit-
in Nazareth hefur ekki
hlotið heimsfrægð fyrir
eigin tón1istarti 1 burði .
Til dæmis eru menn og
heil fyrirtæki, sem ekkert gera
6 VIKAN 39. TBL.