Vikan


Vikan - 26.09.1974, Blaðsíða 9

Vikan - 26.09.1974, Blaðsíða 9
I þessu tölublaði lýkur hinum merkilega greinaflokki um CIA, bandarisku leyniþjónustuna, sem Truman stofnaði árið 1947. Þá var starfssvið stofnunarinnar skilgreint svo: Central Intelligence Agency á að safna saman og vinna úr leyni- legum upplýsingum hinna ýmsu ráðuneyta og stofnana og koma þeim til Hvita hússins i aðgengilegu formi. Mörgum hefur þótt nóg um, hvernig CIA hefur þanið út starfsemi sina og haft áhrif á stjórnmálalif fjölmargra rikja heims. Meðal þeirra, sem blöskrar veldi CIA og ósvifnar starfsaðferðir, er Victor L. Marchetti, fyrrum starfsmaður CIA um fjórtán ára skeið. Hann skrifaði bók þá um bandarisku leyniþjónustuna, sem greinaflokkur þessi er byggður á. John. D. Marks, sem einnig hafði starfað i þjón- ustu rikisins, aðstoðaði Marchetti við lokafrágang bókarinnar. Bók þeirra Marchettis og Marks, sem á ensku nefnist ,,The CIA and the Cult of Intelligence”, kom út i Bandarikjunum i vor, að und- angengnum málaferlum og mikilli baráttu útgefanda og höfunda við hinn alltumfaðmandi arm bandarisku leyniþjónustunnar. Bókin um CIA átti að koma út haustið 1973, en þá komst yfirstjórn CIA yfir afrit af handritinu og fór i mál við höfunda og útgefanda. Þegar yfirstjórn CIA hafði farið höndum um handrit bókarinnar, leit það út eins og meðfylgjandi mynd sýnir. 339 útstrikanir voru gerðar, og námu útstrikanirnar u.þ.b. 20% af öllu lesmálinu. CIA krafðist þess, að höfundar og útgefandi yrðu dæmdir til þess að fella þessar málsgreinar út úr handritinu á þeim forsendum, að þær hefðu að geyma upplýsingar, sem vörðuðu ör- yggi rikisins. Siðar halaði CIA i land, og utstrikanirnar komust niður i töluna 168. Marchetti, sem er 44 ára og faðir þriggja sona, vildi ekki una nein- um útstrikunum og vildi ekki fallast á, að nokkuð i bók hans væri unnt að flokka undir trúnaðarbrot. Hann kvaðst reiðubúinn til þess að standa fyrir sinu máli og jafnvel fara i fangelsi vegna skoðana sinna. Dómstóllinn, sem um málið fjallaði, komst að þeirri niðurstöðu, að útgefandi skyldi una 27 útstrikunum af þeim 168, sem CIA hafði talið nauðsynlegar. Sá úrskurður kom hins vegar of seint, til þess að umrædd atriði fengju inni i fyrstu útgáfu bókarinnar, sem taldi 40 þúsund eintök. 171 atriði i bókinni eru feitletruð. Það eru þær málsgreinar, sem CIA vildi upphaflega, að felld yrðu úr handritinu, en sættist siðar á, að mættu fljóta með. Þær málsgreinar, sem dómstóllinn dæmdi inn aftur, eiga auð sæti á siðum bókarinnar, sem eiga að fyllast feitu letri i næstu útgáfum. 27 eyður verða áfram i bókinni. Það er á þessari bók, sem greinaflokkur Vikunnar er byggður. Hann hófst i 36. tbl. og lýkur i þessu blaði. VIKAN Útgefandi: Hilmir h.f. Ritstjóri: Kristín Halldórsdóttir. Blaða- menn: AAatthildur Edwald, Trausti Ólafsson, Þórdís Árnadóttir. Útlits- teikning: Þorbergur Kristinsson. Auglýsingastjóri: Sigríður ólafsdóttir. Ritstjórn, Auglýsingar, afgreiðsla og dreif ing í Síðumúla 12. Símar 35320 — 35323. Pósthólf 533. Verð í lausasölu kr. 150.00. Áskriftarverð kr. 1.500.00 fyrir 13 tölublöð ársf jórðungslega eða 2.925.00 kr. fyrir 26 tölublöð hálfsár- lega. Áskriftarverð greiðist fyrirfram. Gjalddagar: nóvember, febrúar, maí, ágúst. BLS. GREINAR 2 Skjótum skyttunni í skil, sagt frá íslenzkum vefnaði í máli og myndum 16 Að minnsta kosti einn og hálfur metri, sagt frá dvergum og vandamálum þeirra 18 Tony Curtis og Christine Kauf- mann deila um dæturnar 24 CIA—Valdataflið. Fjórða og síð- asta greinin um bandarisku leyni- þjónustuna 26 Pillan handa karlmanninum 30 Er hávaðinn að æra okkur? SÖGUR: 12 Grænt Ijós, smásaga eftir Petrus van der Geeste 20 Franski arfurinn, ný framhalds- saga 28 Ég á mig sjálf, smásaga eftir Öyvind AAadsen 34 Handan við skóginn, framhalds- saga, fjórtándi hluti Y AAISLEGT: 6 3m — músík með meiru. Edvard Sverrisson skrifar um hljómleika Nazareth 41 AAatreiðslubók Vikunnar í umsjá Drafnar H. Farestveit 44 AAerkimiðar á skólabækurnar, Eva Vilhelmsdóttir hannaði 39. TBL. VIKAN 9

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.