Vikan - 26.09.1974, Blaðsíða 16
Mary Lou Sberna fæddist fötluð
I þennan heim. Hún var með
hjartagalla — svo alvarlegan, aö
fæðingalækninum tókst með
naumindum að koma andar-
drættinum af stað. Báðir fæturnir
voru vanskapaðir. Mjaðma-
liðirnir voru skaðaðir, og hún var
holgóma.
Fætur hennar voru settir I gips,
þegar hún var tveggja vikna.
Þegar hún var átta mánaða, var
grætt skinn á báða fætur hennar.
Aður en hún varð tveggja ára,
hafði hún gengizt undir tvo upp-
skurði vegna holgómsins. Sex ára
að aldri var hún fyrst skorin upp
vegna mjaðmaliöanna.
Þegar aðgerðin var fram-
kvæmd, vissu foreldrar hennar
Estrella og Anthony Sberna, að
dóttir þeirra var einnig nærsýn og
heyrnarskert.
En þau vissu líka, að það var
ekki allt, þvi að I ljós haföi komið
enn ein fötlun hjá Mary Lou, fötl-
un, sem trúlega yröi erfiðust
þeirra allra auk þess ólæknandi.
Mary Lou var nefnilega miklu
minni en jafnaldrar hennar. Hún
óx ekki eðlilega.
— Viö tókum eftir þvl strax og
hún var þriggja ára og fóru..i með
hana til læknis, segir móðir Mary
Lou. — Læknirinn sagði samt sem
áður, aö við hefðum enga ástæðu
til þess að hafa áhyggjur. Mary
Lou myndi áreiðanlega ná jafn-
öldrum slnum. Vitaskuld trúðum
við lækninum. Hvað gátum við
gert annað? Auk þess höfðum viö
nóg við að striða vegna stöðugra
uppskuröa, sem barnið varð að
gangast undir. Við hættum að
hugsa um, að Mary Lou væri
smávaxin. Við gátum ekki bætt
þvi ofan á allt hitt.
Mary Lou hóf nám I skóla fyrir
fötluð börn. Hún átti auövelt meö
að læra, og I ljós kom, að andlega
stóö hún vel að vlgi og að hún var
ótrúlega kjörkuð og sjálfsörugg.
Einnig kom I ljós, að hún var
gæddgóðum tónlistarhæfileikum,
og hún læröi að leika á pianó, þó
að heyrnarskeröingin ylli þvl, að
hún heyröi ekki hæstu tóna hljóö-
færisins.
En hún óx svo hægt — svo
hræðilega hægt. Þegar hún varö
ellefu ára, vhr hún ekki nema
metri á hæð.
Nú voru, foreldrar hennar
hættir að trúa huggunarorðum
læknisins. Þau urðu að horfast i
augu við staðreyndina: Mary Lou
yröi dvergur.
Tiu sentimetrar.
Núna, tveimur árum seinna, er
Mary Lou 110 sentimetra há. Hún
hefur vaxiö um tlu sentimetra á
tveimur árum. Prófessor David
Rimoin hefur fengið hana til með-
höndlunar, og hann hefur gefið
henni vaxtarhormóna.
— Það er stórkostlegt, segir
móðir Mary Lou. — Prófessorinn
hefur gert kraftaverk á henni, og
hann hefur svo að segja lofað
okkur, að hún vaxi töluveít til
viðbótar. Þaö er stúlka I St. Louis,
sem var eins ástatt fyrir og Mary
Lou, og hún er orðin 143 senti-
metrar á hæö. Læknirinn hefur
sagt, að Mary Lou veröi að
minnsta kosti jafnhá. Og viö trú-
AÐ MINNS
KOSTIEINN OG H
Um það bil eitt barn af hverjum tiu
þúsund verður dvergvaxið. Það hættir að
vaxa og verður dvergur. En hvað veldur
dvergvexti, og er hægt að gera nokkuð til
að koma i veg fyrir hann? Um það er
fjallað i þessari grein, og einnig er sagt
frá félagi dverga i Bandarikjunum.
METRI
um honum. Að minnsta kosti von-
um við, að hann hafi rétt fyrir sér.
David Rimoin er læknir og llf-
efnafræðingur. Hann er prófessor
við Kaliforniuháskóla I Los
Angeles og yfirmaður erfðafræði-
deildarinnar I Harbor General
Hospital i Torrance, sem er ein
útborga Los Angeles.
16 VIKAN 39. TBL.