Vikan


Vikan - 26.09.1974, Blaðsíða 8

Vikan - 26.09.1974, Blaðsíða 8
bylgju og fékk hjartaslag. Popp- sérfræðingur Vikunnar, hæstvirt- ures. —áttiþó afturkvæmt að rit- vélinni sinni og auðnaðist að rita þessar linur, — mannfólkinu til viðvörunar og sjálfum sér til frið- þægingar. Orsök hinnar mjög svo ánægjulegu afturkvámu undirrit- aðs voru fingur tveir, sem stungið var i bæði eyru og hafðir þar frá klukkan 22.30 þriðjudagskvöldið 20. ágúst s.l. til klukkan 23.40, er Nazareth hafði lokið framleiðslu sinni. Sú athöfn nægði til þess að undirritaður heyrði til hljóm- sveitarinnar á svipuðum stýrk og heyrist í meðal loftpressu. Eins og sjá má af ofanrituðu, er ekki mikið að segja um tónlistar- gildi hljómleikanna. Astæðan fyrir þvi að ég hafði þol til að rita þessar fáu llnur var sú, að það var einn ljós punktur á hljómleik- unum og sá tilheyrði svo sannar- lega ekki frekar slöppu ljósa „showi”. Það var hljómsveitin Júdas hin islenska. Frumsamið efni sat i fyrirrúmi hjá hljóm- sveitinni og var hrein unun á að hlýða. Rúnar Georgsson að- stoðaði á saxafón og vel það. Júdas og Nazareth eru tvö nöfn upprunnin á svipuðum slóðum. Nazareth er nafn á borg, Júdas „var” nafn á manni. Auðnist manni að sjá Nazareth, liggur hún opin fyrir. Hið óþekkta heill- ar þar til maður fær það augum litið. Nazareth er ópersónulegt nafn og á vel við hina skosku hljómsveit. Júdas er kunnugt nafn en samt ókunnugt, lifandi en samt ekki lifandi, persóna en ekki per- sónugervingur. Júdas er til i okk- ur öllum, — og má ég þá heldur biðja um Júdas. es. edvard sverrisson 3m músík með meiru 8 VIKAN 39. TBL.

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.