Vikan - 26.09.1974, Side 11
Leiklistarskóli
og húövörtur
Halló Póstur!
Ég hef skrifað þér tvisvar áður,
en bréfin hafa vist alltaf lent i
hinni landsfrægu ruslakörfu
ykkar. En ég vona, aö þú svarir
mér núna.
1. Er einhver leiklistarskóli hér
á landi, og þá hvar?
2. Hvernig fara saman fiskarnir
(stelpa) og ljónið (strákur)?
3. Hvernig er hægt að ná af sér
húðvörtum?
4. Hvað heldur þú að ég sé göm-
ul, og hvað lestu úr skriftinni?
Mér finnst smásögurnar i Vik-
unni alveg stórfinar, og þær
mættu gjarnan vera fleiri, en
annars finnst mér Vikan ekki
vera nógu gott blað miðað við
verð. Og svo finnst mér sumt efni,
sem er i Vikunni, alveg hroðalega
lélegt. Jæja, þetta er nú nóg i bili,
svo að ég segi bara bless, með
fyrirfram þökk fyrir birtinguna.
IRE.
1. Ráögert hefur veriö að starf-
rækja rikisleiklistarskóla i
Reykjavik i vetur, og vöru inn-
tökupróf þreytt s.l. vor. Ekki hef-
ur verið ákveðiö ennþá, livar
hann verður til húsa, en ég vil
benda þcr á að tala við Svein Ein-
arsson Þjóðleikhússtjóra eöa Vig-
disi Finnbogadóttur leikhússtjóra
í Iðnó, scm geta gefið nánastar
upplýsingar.
2. Ekki nógu vel, þau eru svo
geysilega ólik.
3. Með Isediki, sem fæst I
apótekum, en albezt er þó að bera
fiflamjólk á vörturnar. Þetta er
ekki útúrsnúningur, mér er hrein-
asta alvara. Ég átti nefnilega
sjálfur I striði við húðvörtur cinu
sinni, og mér var sagt aö bera
fiflamjólk á þær á hverjum degi.
Þetta var að vori til, og mér
fannst ekkert gera til þó ég próf-
aði þetta, þó ég væri viss um að
þetta væru örgustu kerlingabæk-
ur. En viti menn, eftir nokkrar
vikur voru allar vörtur horfnar,
og ég hefi ekki séð þær siðan. En
nú eru allir fiflar orðnir að biðu-
kollum, svo þú ert þvi miður of
sein I ár, með þessa lækningu.
4. Þú ert trúlega 15—16 ára,
skriftin er skýr, og þú ert mjög á-
kveðin persóna. Liklega hefurðu
einhverja hæfileika.
Pósturinn þakkar þér hólið
fyrir hönd Vikunnar, en þú ert
geysilega gagnrýnin á sumt efni i
blaðinu. Það væri mjög forvitni-
legt að fá að vita, hvaða efni Vik-
unnar er svona hroðalegt, láttu
okkur vita það, ef þú nennir að
skrifa aftur.
Svar til E.E.
Reyndu að skrifa poppþætti
Vikunnar. Pósturinn getur ekki
gefið upplýsingar um neinar
músikstjörnur. Skriftin þin er
skýr og vel læsileg.
Hrein mey —
eða ekki
Kæri Póstur!
1. Hvað gamlar mega stelpur
vera til þess að þeim sé óhætt að
nota tappana?
2. Skiptir einhverju máli, hvort
maður er hrein mey eða ekki?
3. Hversvegna viljið þið á Póst-
inum ekki birta nöfn ykkar?
4. Hvað þýðir nafnið Edda?
5. Hvað kostar að vera áskrif-
andi að Vikunni yfir árið?
Jæja, og hvað segistu lesa úr
skriftinni minni, og hvað heldur
þú að ég sé gömul?
1-2. Notkun tappanna miðast
ekki við nein aldurstakmörk, en
ég held að þcir séu erfiðir I notkun
fyrir óspjallaðar meyjar.
3. Nafn Póstsins er og verður
hernaðarleyndarmál ritstjórnar,
og þar við situr. Nafnleysið er
nauðsynlegt, og ég held, að fæstir
mundu kæra sig um að vita nokk-
uð um persónuna að baki Pósts-
ins.
4. Edda þýðir formóöir.
5. Kr. 5.850.00.
Skriftin er áferðarfalleg, þú ert
bliðlynd, en ekki sérlega stefnu-
föst. Ég giska á að þú sért 14-15
ára.
Próf i ættfræði
Elsku Póstur!
Mig langar til að bera fram
nokkrar spurningar, sem ég
vona, að þú getir leyst úr fyrir
mie
1. Hvaða starfsmöguleikg hefur
maður eftir að hafa lokið prófi
i ættfræði?
2. Getur skyggni verið ættgeng?
3. Hvar getur maður náð I eintök
af Bör Börsson bókunum?
4. Ef ég er fædd 21.6., get ég þá
haft áhrif frá bæði krabbanum
og tviburanum?
5. Hvernig fer það saman við
sporðdreka?
6. En við Ijón?
Og svo að lokum þetta venju-
lega, hvað er ég gömul og hvað
lestu úr skriftinni?
Með fyrirfram þökk. Anna.
1. Ég veit ekki til þess, að hægt sé
að taka próf i ættfræði, þaraf-
leiöandi get ég ekki bent þér á
starfsmöguleika.
2. Já, tvimælalaust.
3. Hvergi núoröið, nema á bóka-
sofnum.
4. Já, þú ert á inörkum
mcrkjanna og veröur fyrir
áhrifum beggja.
5. Vel yfirleitt, en samt má búast
við árekstrum af og til.
6. Nokkuð sæmilega, ætti að geta
gengiö, en gerðu ráð fyrir
sprengingum af og til.
Ég gizka á, að þú sért um tvi-
tugt. Skriftin er falleg og stil-
hrein, kvenleg vildi ég segja, ber
vott um nokkuð heilsteypta skap-
gerð.
*
Winter Þrihjól.
Velamos reiðhjól drengja og telpna.
20 með hjálparhjólum.
Ódýr og góð hjól.
*
Örninn
Spitalastig 8 — simi 14661
Canon
Einkaumboö,
varahlutir, ábyrgð og þjónusta.
Skrifvélin
Suðurlandsbraut 12, simi 85277.
39. TBL. VIKAN 1 1