Vikan - 26.09.1974, Page 18
DEILA
UM DÆTURNAR
Þegar þátturinn „Fóstbræð-
urnir” var á dagskrá islenzka
sjónvarpsins fyrir nokkru, linnti
ekki bréfum frá hrifnum ung-
meyjum, sem leituðu upplýsinga
hjá Póstinum um lifshlaup þeirra
fóstbræðra, Tony Curtis og Roger
Moore. wpósturinn er alltaf
heldur nizkur á upplýsingar um
fræga fólkið úti i heimi, en betra
er seint en aldrei: Hér kemur ögn
um herra Tony Curtis.
Tony Curtis hefur alla tið verið
dálitið upp á kvenhöndina, en það
vita liklega færri, að hann er af-
Christine Kaufmann hefur litið
látið á sjá, þótt hún hafi lifað hátt
siðustu árin, milli þess, sem hún
hefur barizt fyrir því að fá telp-
urnar sinar aftur til sín.
skaplega hrifinn af börnum, sér-
staklega sinum eigin börnum.
Það vakti mikla athygli á sin-
um tima, þegar Tony Curtis skildi
við Janet Leigh til þess að giftast
þýzku leikkonunni Christine
Kaufmann. Tony og Janet höfðu
löngum verið talin fyrirmyndar-
hjón, jafnvel þótt miðað væri við
heiminn utan Hollywood. En það
fyrirmyndarhjónaband hrundi
eins og spilaborg, þegar Tony
hitti Christine.
Hjónaband þeirra Curtis og
Kaufmann stóð hins vegar ekki
ýkja lengi, og árið 1968 skildu þau
eftir fimm ára sambúð. Tvær
dætur eignuðust þau, Alexöndru,
sem nú er 10 ára, og Allegru, sem
er 8 ára. Og nú, sex árum eftir
skilnaðinn, eru þær enn bitbein
foreldra sinna.
Við skilnaðinn fékk Christine
foreldraréttinn yfir telpunum, en
3 mánuði á ári skyldu þær dvelja
hjá föður sinum. Tony Curtis,
sem giftist reyndar aftur tiu dög-
um eftir skilnaðinn, barðist þó
stöðugt fyrir þvi að fá algjör yfir-
ráð yfir dætrum sinum. En
Christine mátti ekki heyra það
nefnt.
Tony var hins vegar ekki af
baki dottinn'. Sumarið 1972 dvöld-
ust telpurnar hjá honum i
London, þar sem hann hélt
heimili fyrir þær, meðan hann
vann að kvikmynd þar. Þegar
kvikmyndinni var lokið og
sumarfri telpnanna á enda, pakk-
aði hann saman og för með dæt-
urnar til Kaliforniu. Og Christine
beið árangurslaust heima i
Þýzkalandi.
Christine fékk ekki dæturnar
aftur hiem. Aftur á móti fékk hún
tilkynningu frá lögfræðingi Curtis
þess efnis, að samkvæmt dómi
hefði hún misst umráðaréttinn yf-
ir þeim. Hún flaug umsvifalaust'
vestur og barðist eins og ljón fyrir
þvi að fá telpurnar aftur, en allt
kom fyrir ekki.
Vesalings Christine stóð ekki
vel að vigi i þessari baráttu. Tony
staðhæfði, að hún hefði enga
möguleika á að ala dætur þeirra
sómasamlega upp, þær væru iðu-
lega aleinar eða i umsjá ein-
hverra og einhverra barnfóstra,
móðir þeirra lifði óreglubundnu
lifi og ekki alltaf sem siðsömustu.
Og Christine tapaði hverri lotunni
á fætur annarri. Að lokum lýsti
hún þvi yfir, að Tony skyldi hafa
umráðaréttinn yfir dætrunum.
Hún gerði það sannarlega ekki
með glöðu geði og var ákveðin I
þvi að taka upp baráttuna siðar.
Christine Kaufmann getur vist
ekki talizt neinn engill, þótt útlitið
sé engilfagurt. Hún þykir ákaf-
lega skapmikil og svo viðkvæm,
að þótt hefur jaðra við móðursýki.
Borgaralegt lifefni er henni litt að
skapi, og um skeið hjó hún i
kommúnu i Munchen.
Astarævintýri honnar á undan-
förnum árnm gætu fyllt margar
bækur. Hún hefur verið óspör á
bliðu sina. Meðal ástmanna henn-
ar siðustu árin eru eftirlætis leik-
stjórinn hennar, bókaútgefandi,
hippi, knapi, poppsöngvari,
stúdent. Það virðist auðvelt að
hrifa hjarta Christine.
En svo varð Christine alvarlega
ástfangin. Sá lánsami heitir
Achim Lenz, aðstoðarleikstjöri.
Hann er nú orðinn eiginmaður
Christine númer tvö. Þegar
Christinekom frá hjónavigslunni,
sagði hún: — Loksins er ég laus
við nafnið Curtis úr vegabréfinu
minu. Nú vantar ekkert nema
litlu stúlkurnar minar, svo að ég
sé fullkomlega hamingjusöm.
Christine Kaufmann segist ætla
að lifa borgaralegu lifi i framtið-
inni. Það gleður ameriska lög-
fræðinginn hennar, sem er reiðu-
búinn til þess að gera nýja til-
raun til að ná aftur dætrunum til
Christine. Það er ekki enn útséð,
hvernig fer. Eitt er vist, foreldr-
arnir standa báðir fast á sinu.
Aiexandra og Allegra eru svolitið
einmana i henni Kaliforniu. Tony
er vissulega góður og umhyggju-
samur faðir, en þær sakna
mömmu sinnar.
Christine Kaufmann og Tony
Curtis (á stóru myndinni) voru
sögð fallegustu og hamingjusöm-
ustu hjónin I Ilollywood á sinum
tima. Sú dýrð stóð ekki lengi. A
minni myndinni til vinstri sjáum
við Christine ásamt nýja mannin-
um, Achim Lenz, sem hún giftist i
vor. Tony beið ekki svo lengi. Aö-
eins tiu dögum eftir skilnaðinn við
Christine giftist hann ljósmynda-
fyrirsætunni Leslic „Penny”
Allen. Sjá minni myndina til
hægri.