Vikan - 31.10.1974, Qupperneq 9
EINUNGIS VERKFÆRI
„En á bak viö lækninguna stendur æöri kraiHur, —
andlegur kraftur. Ég er einungis verkfæri hans,
sem kemur af staö liffræöilegum breytingum i
likama sjúklingsins, þeim breytingum, sem siöan
lækna hann.” Þetta segir einn af frægustu anda-
læknum Englendinga. Sjá nánar á bls. 32-33.
LÝÐRÆÐIÐ i HEIÐRI
„Alltstarf i kórnum er mjög lýöræöislegt — þar er
enginn söngstjóri, sem segir fyrir um, hvaö
syngja skal og hvernig, heldur er rætt um val
verkefna og túlkun þeirra á opinskáan hátt i kórn-
um, og hver meölimur hefur atkvæöis- og tillögu-
rétt um hvort tveggja.” Sjá grein um Eddukórinn
á bls. 24-25.
ALLIR Á SAMA BÁS
„En ég get ekki skipt lifi minu niöur á þennan
hátt. Ég er 100% manneskja og gef mig alla á vald
vinnunni. Þ.e.a.s. ég verö fyrir áhrifum frá sólar-
hitanum, fötunum, sem ég er i, matnum, sem ég
boröa, fólkinu, sem ég hitti. Ég hef skoöanir á
þessu öllu, þvi þaö hefur allt áhrif á leik minn.”
Sjá siöari grein um Barböru Streisand á bls. 16-18.
KÆRI LESANDI
,,Án þess að ég hafði tekið
eftir þvi,hafði ég sest við hlið-
ina á kvenmanni. Ég fann
gamla öryggisleysið koma
yfir mig sem snöggvast, en þá
mundi ég eftir grimunni, sem
leyndi þvi, hver ég var, og
taugar minar róuðust aftur.
Svo tók ég að virða dömuna
fyrir mér i laumi.
Það var dálitið erfitt að sjá
vel út um augnagötin á grim-
unni, án þess að það yrði áber-
andi, að ég væri að skoða
stúlkuna, en þó virtist mér hún
vera á minu reki, snoturlega
vaxin, og þar sem hún bar að-
eins augngrimu, virtist mér
hún lagleg, ef dæma mátti eft-
ir neðri hluta andlitsins. Mér
sýndist hún grönn, og aðeins
fyrir neðan meðallag, hvað
hæð snerti, en það gerði ekkert
til, þvi ég var ekki ýkja hár
sjálfur.
Ég tók nú að hugsa um, á
hvern hátt yrði best að ávarpa
hana, þvi ekki þorði ég fyrir
mitt litla lif að bjóða henni upp
i dans, meðan ekki var fleira
fólk á gólfinu. En mér hug-
kvæmdist ekkert strax.
Ég hefði ekki þurft að hafa
áhyggjur af þessu, þvi það var
daman sjálf, sem tók af mér
ómakið. Eftir litla stund snéri
hún sér að mér og sagði:
„Afsakaðu, ekki geturðu
sagt mér, hvað klukkan er?””
I 36. tbl. birtist smásagan
„Þegar timinn lék á mig” eftir
Einar Loga Einarsson. Margir
höfðu gaman af þeirri sögu, og
nú birtir Vikan aðra sögu eftir
Einar Loga, „A grimudans-
leik”, sem hefst á bls. 12. Til-
vitnunin hér að ofan er tekin
úr þeirri sögu.
VIKAN Útgefandi: Hilmir h.f. Ritstjóri: Kristín Halldórsdóttir. Blaða-
menn: Matthildur Edwald, Trausti Ólafsson, Þórdís Árnadóttir. Otlits-
teikning: Þorbergur Kristinsson. Auglýsingastjóri: Sigríður ólafsdóttir.
Ritstjórn, Auglýsingar, afgreiðsla og dreif ing í Síðumúla 12. Símar 35320 —
35323. Pósthólf 533. Verð i lausasölu kr. 150.00. Áskriftarverð kr. 1.500.00
fyrir 13 tölublöð ársf jórðungslega eða 2.925.00 kr. fyrir 26 tölublöð hálfsár-
lega. Áskriftarverð greiðist fyrirfram. Gjalddagar: nóvember, febrúar,
maí, ágúst.
Vikan
44. tbl. 36. árg. 31. okt. 1974
BLS. GREINAR
2 Gatsby hinn mikli, kynning á
næstu framhaldssögu Vikunnar
4 Lénharður fógeti, sagt frá kvik-
myndun sjónvarpsins í máli og
myndum
15 Hollywood, kynning á nýstárlegri
grein um Hollywood, sem birtist í
næstu tveimur blöðum
16 Þjóðfélagið er gert fyrir smá-
menni, síðari hluti greinar um
Barböru Streisand
19 Hljóp 2000 km vegalengd til hús-
bónda síns
24 Án þess að vera eintóna, sagt frá
Eddukórnum
32 Er það kraftaverk eða loddara-
mennska? grein um huglækning-
ar
SÓGUR:
12 Á grímudansleik, smásaga eftir
Einar Loga Einarsson
20 Franski arfurinn, framhalds-
saga, sjötti hluti
28 Zara og Zita, smásaga eftir
Charles Birkin
34 Handan við skóginn, framhalds-
saga, nítjándi hluti og sögulok
YMISLEGT:
42 Eldhús Vikunnar í umsjá Drafnar
H. Farestveit
44 Pilsaþytur, tfskuþáttur í umsjá
Evu Vilhelmsdóttur
44.TBL. VIKAN 9