Vikan


Vikan - 31.10.1974, Qupperneq 13

Vikan - 31.10.1974, Qupperneq 13
tgmmxz ammui ekkert sltkt. Stúlkan virtist varla hafa tekiö eftir þessu. Fyrr en varöi vorum viö búin aö dansa þrjá dansa. Ke vissi, aö samkvæmt almennum negöunar- reglum átti ég aö þakka fyrir og fylgja stúlkunni til sætis. Ég bjó mig undir þaö, en eins og áöur tók daman af mér ómakiö og spuröi, hvort viö ættum ekki aö setjast. Ég samþykkti hálf skömmustu- legur og leiddi hana til sætis og umlaöi einhver þakklætisorö, sem varla heyröust. Svo settist ég sjálfur viö hliö hennar. Oryggisleysiö gagntók mig sem snöggvast, en ég hristi þaö hálf ergilegur af mér. Hafi ég hagaö mér kjánalega, þá skildi þaö ekki koma fyrir aftur. Og meö þaö hleypti ég i mig kjarki og bauö stúlkunni upp á hressingu. Ég varö ejlltiö undrandi, þegar hún þáöi bðöiö meö þökkum. ósjálfrátt haföi ég búist viö, aö hún myndi svara neitandi. Ég dreif mig þvi aö barboröinu og náöi i tvo gosdrykki. Þegar ég var seztur aftur, drukkum viö þegjandi nokkra stund. Þá hugkvæmdist mér nýtt umræöuefni. Ég sneri mér aö stúlkunni og spuröi: „Ertu ein hérna?” „Já”, svaraöi hún. Vinkona mln ætlaöi meö mér, en forfallaö- ist á siöustu stundu. En þú?” Ég sagöi sem var, aö ég væri einn. Hálft I hvoru fannst mér þaö neyöarlegt, svo ég greip til örllt- illar skreytni. Ég sagöi, aö enginn af kunningjum minum heföi feng- ist til aö fara þetta. Þeim heföi fundist grlmudansleikir aöeins vera fyrir börn. Hún virtist taka mig trúanleg- an, og svo var ekki meira um þetta rætt. Viö dönsuöum talsvert eftir þetta, milli þess sem viö sát- um og röbbuöum saman. Ég var farinn aö kunna prýöilega viö stúlkuna, þótt ekki heföi ég séö útlit hennar allt, og innst I hjarta mér vonaöi ég, aö þaö væri gagn- kvæmt. Tvisvar sinnum var henni boöiö upp af öörum, og þá fann ég einkennilega tilfinningu I hjart- anu, sem jaöraöi viö eigingirni. Kannski var þaö af afbrýöisemi? Ég gat ekki aö því gert, aö ég hlakkaöi til aö sjá andlit hennar allt, þegar grímurnar yröu felld- ar, og gleymdi alveg aö bera kviöboga fyrir þvi, aö þá myndi hún einnig sjá mitt. Svo leiö tlm- inn, og ég gleymdi honum um stund. Allt I einu, þegar viö vorum 44. TBL. VIKAN 13

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.