Vikan - 31.10.1974, Qupperneq 17
AGIÐ ER GERT
ÆÁMENNI
Þaö uröu þáttaskil i lifi Barböru
Streisand, þegar hún kynntist
hárgreiöslumeistaranum Jon
Peters.
ar áhyggjur af þvi að stúlkan
kynni aö vera betri en hún sjálf.
Og þegar þjönn nokkur spurði
hana striðnislega þegar hún var
hætt i „Funny Girl”, hvernig
henni fyndist að vera atvinnu-
laus, var hún i vondu skapi marga
daga á eftir.
,,Ef Barbara heyrir einhvern ó-
þekktan söngvara syngja einn af
söngvum hennar, verður hún al-
veg óð,” sagði Marty Erlichman
umboösmaður hennar.
Þegar Barbara minnist starfa
sinna i Hollywood segir hún: „I
fyrsta skipti, sem ég fór þangað
að skemmta i Cocoanut Grove,
höföu allir heyrt min getiö, en ég
var enn ekki orðin fræg. Stór-
stjörnur og frægt fólk komu á
hverju kvöldi til aö sjá mig. Þá
held ég, að ég hafi raunverulega
verið hamingjusöm. Það var eins
og ég lumaði á einhverju. Ég
vissi, að ég hafði eitthvaö fram að
færa og ég átti... vonir. Það er
svo leiðinlegt, aö svona timi skuli
ekki geta komið aftur. Þetta voru
minir beztu dagar.”
Ostöðugt samband hennar við
Elliott Gould var oröið að tvisýnu
hjónabandi. „Það er kominn ein-
hver skuggi yfir þau,” sagði vinur
þeirra. „Það geislar ekki lengur
af þeim eins og þau eigi allan
heiminn.”
Munaðurinn, sem einkenndi lif
þeirra, gat þó ekki leynt þvi, hve
langt var frá þvi að jafnræði væri
með þeim. Eitt sinn keypti Bar-
bara skrautlegan flygil i fjarveru
Elliott. Þegar Elliott kom heim,
þoldi hann ekki hljóðfærið, og þau
rifust út af hljóðfærinu af minnsta
tilefni. Vinur þeirra, sem fylgdist
með þessu sagði: „Þau voru ekki
aö rifast út af pianóinu. Pianóið
var aöeins átylla. Rimman stóð
um, hver hefði húsbóndavaldið og
tæki ákvarðanirnar.”
Milljón dollara bam
Vorið 1966 var „Funny Girl”
frumsýnd I London. Eftir frum-
sýninguna sagði Elliott Barböru,
að hún væri barnshafandi. Það
hafði komið staðfesting á þessu
frá New York. Hún var undrandi
og glöð. „Ég hafði aldrei haldið,
að ég gæti átt barn,” sagði hún og
minntist bernskuótta sins um
skammlifi. „Mér finnst ég sem ný
manneskja.”
Vinir þeirra vonuðu, að barnið
myndi jafna erfiðleika hjóna-
bandsins. En þvert á móti þá
gerði það stöðu Gould enn verri.
Þegar það fréttist, að Barbara
hefði hætt við langa hljómleika-
ferö vegna þess aö hún væri
ófrisk, stóð ekki á fyrirsögnum
heimspressunnar: „Milljón-doll-
ara barnið hennar Barböru”.
Barbara varð fokvond. „Hvers
vegna þurfa allir að hugsa I pen-
ingum? Mér finnst þetta eina
raunverulega afrek mitt til þessa.
Barnið mun veita mér staðfestu
og lifinu tilgang.”
Jason Emmanuel (alnafni föð-
ur Barböru) fæddist 29. desember
1966. „Sonur minn,” sagðí hún
eins og I leiðslu: „en stórkostleg
setning, „sonur minn”. En sú
fullkomnun.”
Nú var loksins aö koma hreyf-
ing á kvikmyndaferil Elliotts.
Honum var vel tekið sem Bill
44. TBL. VIKAN 17