Vikan - 20.02.1975, Side 35
1
hún haföi ætlað sér þarna fyrsta
kvöldiö, þegar koniakið hafði los-
að um tungubandiö, sagt eitthvað
i þá veru, aö hún vissi að Philip
Manning bæri hlýjar tilfinningar
til sin.' Og Bryne hafði séö. að
hann hafði engan tima að missa,
þar sem Philip myndi nota fyrsta
tækifæri til að ná sambandi við
hana. Hann hafði þvi ákveöið að
kvænast henni og vinna svo að þvi
siðar, aö ná ástum hennar.
Lucy sagði. — Hvers vegna
leggur þú ekki á borð fyrir ykkur i
dagstofunni. Þiö getiö haft stof-
lina alveg út af fyrir ykkur. Ef þú
lofar mér að segja við hann
nokkur orð, skal ég sjá um Mary
Ann. Ég lofa þvi, að eyöileggja
ekki skilnaöarstund ykkar i þetta
sinn.
Þau sátu svo við kringlótta
boröiö i dagstofunni og héldust i
hendur yfir borðið. Nú, þegar
samverustundir þeirra voru að
styttast, sögðu þau minna en nutu
þvi betur samvistanna. Hann
hafði ekki hugmynd um það, hve-
nær þau myndu hittast aftur.
— Ég elska þig, sagði hann,
þegar hann lá viö hlið hennar i
stóra rúminu og þrýsti andlitinu
að ilmandi hári hennar. Hann
óskaði þess eins að timinn stæöi
kyrr.
1 bitrum vetrarkuldanum eld-
snemma um morguninn, stóð hún
á veröndinni til að kveðja hann.
Hann var aftur kominn I indiána-
búninginn. Hann óð snjóinn út að
hliðinu, þar sem félagi hans beiö
með hestana.
Bryne stökk á bak, sneri sér við
sem snöggvast og veifaði til henn-
ar. An þess aö taka eftir snjónum,
hljóp hún út að hliðinu og horföi á
eftir þeim niður götuna. Hvenær
myndi hún sjá hann aftur?
Sara fór með börnin út í skóg,
til að safna trönuberjum og lyngi,
til að skreyta húsið fyrir jólin.
Þau skemmtu sér öll vel og börn-
in ljómuðu af ánægju, þegar þau
komu til baka, hlaðin greinum og
rauöum þerjum, rétt fyrir hádeg-
ið!
Það kom kaldur gustur með
þeim inn, þegar þau stóöu i and-
dyrinu og snjórinn var að bráðna
undir fótum þeirra á gljáfægðu
gólfinu. Mary Ann brosti, meðan
hún hlustaði á þau, og hún var aö
hjálpa þeim úr yfirhöfnunum.
Sara var að losa hattbandið, þeg-
ar hún sá bréf á silfurdisk á borð-
inu. Það var rithönd Brynes á
bréfinu.
Hún fleygði frá sér hattinum og
þaut upp i herbergið sitt með
bréfið, til að lesa það i næði. Það
var lika ætlað henni einni.
Hún hitti Lucy I eldhúsinu,
þegar hún kom niður.
— Bryne hefur gengiö i Kan-
adaher! sagði Sara áköf. — Það
er stór hópur af ibúum Nýja-Eng-
lands, sem hefur gert hiö sama.
Það er jafnvel talað um, aö rikin i
Nýja Englandi munu segja sig úr
rlkjasambandinu, ef striðinu
veröur ekki lokið fyrir voriö.
— Hvar er Bryne núna?
— t vetrarbúöunum f Montreal,
sagði Sara og þar með vissi hún
lika að leiðangur hans hafði
heppnast. Nú var ekki lengur þörf
á að fara með leynd. Hann var
búinn aö sýna hollustu sina.
— Svo langt i burtu. Lucy gretti
sig svolitið. — Þá er ekki senni-
legt, að við sjáum hann fyrsta
kastið.
— Það er hann einmitt að tala
um I bréfinu, sagði Sara, sorg-
mædd á svip, — en hann sendir
ykkur öllum bestu kveöjur sinar.
■ — Viltu þakka honum fyrir
Úrvals íslenskar
og danskar
fóðurblöndur
ávalt fyrirliggjandi.
Finnstar HELOSAUNA-ofnar og tilbúnar
Saunur hafa hlotið viðurkenningu um all-
an heim.
HELO-SAUNA-umboðið er í nuddstofunni
Sauna í Hátúni 8, sími 24077.
RÉTT SAUNA ER FINNSKT SAU^A,
MENNING SEM ER YFIR 2000 ÁRA GÖMUL.
8. TBL. VIKAN 35