Vikan - 06.03.1975, Page 44
NYR KJÓLL
Nú eru þorrablótin af-
staðin, árshátiðarnar i
algleymingi, og fyrir
dyrum standa páskar og
fermingarnar með öllu
sinu tilstandi. Flestir
vilja vist skarta þvi
besta, sem þeir eiga við
þessi tækifæri — en
stundum finnst kven-
fólkinu blessuðu litið
spennandi að fara i
sömu fötunum i hvert
samkvæmið á fætur
öðru. Pyngjan leyfir
sjaldan nýjan kjól fyrir
hvert ball, og þvi er um
að gera að virkja hug-
myndaflugið. Sami
kjóllinn getur tekið á sig
ýmsar myndir, eftir þvi
hvað notað er við hann.
Ný næla, hálsmen,
eyrnalokkar, sjal, belti,
sokkar eða skór, svo
eitthvað sé nefnt, geta
gefið kjólnum alveg
nýjan svip, og ný
snyrting, hárgreiðsla
eða skraut i hár geta
hresst ótrúlega mikið
upp á sálartetrið. Og
svarta, slétta kjólinn má
endalaust endurnýja
með blússum og skart-
gripum.
Myndirnar hér á opn-
unni minna á ýmislegt,
sem hægt er að gera til
að lifga upp á fötin og
sjálfan sig og ættu að
geta orðið kveikja að
fleiri hugmyndum.