Vikan - 05.06.1975, Page 8
FSf
Gustavsberg
Mikilvægustu „húsgögn“ baöherbergisins eru auðvitað
hreinlætistækin, - handlaug, baðkar, salernisskál
og undirlifsskál. Annaö eru fylgihlutir sem auka nota-
gildi, öryggi og þægindi. Allir slíkir smáhlutir gegna
aukahlutverki samanborið viö hina mikilvægari.
Hönnun baöherbergisins miðast þannig fyrst og fremst
við hreinlætistækin, einkum þar sem þau eru fast-
tengd. Þegar þeim hefur einu sinni veriö búinn staður
fá þau venjulega að vera þar kyrr.
Þeim mun mikilvægara er því aö skipuleggja vel frá
upphafi. Gera þarf ráð fyrir nægu rými og velja
„baðherbergishúsgögnin", sem henta vel jafnvel þótt
stærð og venjur fjölskyldunnar kunni að breytast.
GUSTAVSBERG postulínshreinlætistækin eru úr þétt-
stroknu kísilhrúöri og hafa harða sprunguþétta
glerhúð. Allir fletir eru aðgengilegir og auðhreinsan-
legir. Baðkörin eru framleidd úr úrvals stálplötum og
glerungurinn er skv. bestu alþjóðlegu gæðaflokkun.
BYGGING AVÖRUSALA
SAMBANDSINS
Suðurlandsbraut 32 Reykjavik sími 8 2033
1 Ég er
feginn þvi!
8 VIKAN 23. TBL.