Vikan

Tölublað

Vikan - 19.08.1976, Blaðsíða 42

Vikan - 19.08.1976, Blaðsíða 42
6 KÓTELETTU RÉTTIR KÚMEN KÓTELETTUR A LA GRUNDEL. 4 grísakótelettur salt, pipar smjör eða smjörlíki 2 laukar 1/2 msk. paprikuduft 1 skorinn hvítlauksbátur 1 tsk. kúmen 400 gr hráar kartöflur 3 dl teningasoð 1 græn paprika 2 tómatar. Kryddið kóteletturnar með salti og pipar á báðum hliðum og steikið við snöggan hita á pönnu, svo þær fái fallegan lit. Skerið laukinn í þunnar sneiðar og steikið fallega gullgulan í potti með þykkum botni. Bætið paprikudufti, hvítlauk og kúmeni útí. Flysjið kartöflurn- ar og skerið í þunnar sneiðar og setjið ofan á. Hellið soðinu ofan á og setjið kóteletturnar þar á ofan. Látið allt krauma undir loki. Setjið sneidda papriku og tómata útí eftir 10 mínútur og látið allt krauma þai til það er soðið. Kryddið síðan meira ef ykkur sýnist svo. Berið strax fram. 42 VIKAN 34. TBL.

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.