Vikan

Útgáva

Vikan - 30.12.1976, Síða 10

Vikan - 30.12.1976, Síða 10
: PÓSTURIW TEIKNIKENNARI. Frábæri Pósturl Mig langar til þess að fá svör viö nokkrum spurningum og vona að þú getir leyst úr þeim fyrir mig. 1. Hvaöa menntun þarf til þess að öölast kennararéttindi f teikn- ingu? 2. Er um að ræða einhvern sérskóla og hvaöa inntökuskilyröi eru í hann? 3. Hvað tekur námið langan tfma f heild? 4. Er ef til vill hægt að stunda slíkt nám á kvöldnámskeiöum? 5. Hvenær byrjaði myndasagan um Skugga f Vikunni? Svo langar mig til að vita hvernig skriftin er og hvort eitt- hvað sé hægt að lesa úr henni. Með fyrirfram þökk. K.K. Teiknikennarar útskrifast eftir fjögurra ára nám úr Myndlista- og handlðaskóla Islands. Inntökuskil- yrði / skólann eru: Sextán ára aldurslágmark, gagnfræðaprófeða sambærilega menntun og að auki eru svo inntökupróf, sem fara fram I skólanum / byrjun júnf ár hvert. Námið tekur fjögur ár. Fyrri tvö árin eru allir nemendur skólans saman í forskó/anámi. Þar eru kenndar ýmsar listgreinar svo sem /istasaga, teiknun, málun o.fí., en auk þess fs/enska og enska. Eftir forskólanámið taka við hinar ýmsu sérnámsdei/dir, og er teiknikenn- aradeild ein þeirra. Skólinn byrjar venjulega 1. okt. og starfar út mafmánuð. Þetta er dagskó/i og er kennt frá kl. 9 til 4 eða 5 á daginn. Kvöldnámskeið geta ekki komið i stað dagskólans. Myndasagan um Skugga hóf göngu sfna / Vikunni 1958. Skrift- in er nú hreint ekki svo afleit og úr henni /es ég íhaldssemi. SJÚKRAÞJÁLFUN. Elsku Pósturl Ég þakka Vikunni fyrir ágætt efni (samt ekki 300 kr. viröi). Jæja, ég ætla þá að snúa mér að efninu, en mig langar til að fá upplýsingar um það, hvar hægt er að læra til þess að veröa sjúkra- þjálfari eða er það ekki kallað það? Ég á við þá, sem þjálfa sjúklinga eftir veikindi og slys. Ennfremur langar mig að vita hver eru inntökuskilyröi f þann skóla og hvað námiö tekur langan tfma. Er erfitt að fá vinnu við sjúkraþjálfun eftir námið? Og að lokum þetta margtuggna: Hvernig er skriftin og hvað lestu úr henni? Hversu margar stafsetningarvillur fannstu. Með fyrirfram þökk. a jj. Nú / haust hófst kenns/a / sjúkraþjá/fun við Háskóla Is/ands. Inntökuskilyrði eru þar af leiðandi stúdentspróf, en aðrar upplýs- ingar um námiö getur þú fengið I Háskólanum. Sérstök grein sjúkraþjálfunar er nefnd iðjuþjátf- un, en hana er ekki hægt að læra hér á landi. Atvinnumöguleikar eru frekar góðir I þessum greinum báðum. Námið tekur yfirteitt þrjú ár. Skriftin er ailsæmileg og úr henni les ég viðkvæmni. Ég fann al/s enga stafsetningarvil/u I bréfinu. TANNHREINSUN. Elsku Pósturl Þannig er mál með vexti, að ég er með svo hræöilega gular og Ijótar tennur. Getur þaö stafaö af þvf að ég reyki mikið? Fer tyggjó illa meðtennurnar? Eru gosdrykkir hættulegir fyrir tennurnar? Hvern- ig fara saman sporödreki (stelpa) og hrútur (strákur)? Hvað held- uröu aö ég sé gömul og hvaö lestu úr skriftinni? Lfna. Það er margsannaö mál að reykingar eru óhoiiar fyrir allan llkamann og þá einnig fyrir tenn- urnar. Tennurnar verða oftast gu/ar og Ijótar. Auðvitað væri best fyrirþig að hætta að reykja til þess að þetta lagaðist, en efþér er það nú lífsins ómögulegt þá fæst sérstakt tannkrem fyrir reykinga- fólk, sem getur ef til vill gert sitt gagn. Tyggigúmml hefur ávallt verið talið óhollt fyrir tennurnar og sama máli gegnir um gosdrykki. Neysla þessara hluta er best I hófi. Þaö er ekki óalgengt að sporð- drekastelpur hrffhst af hrutsstrák- f 10 VIKAN 53. TBL.

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.