Vikan - 30.12.1976, Blaðsíða 22
tveir í bílnum, jafnvel þrír. Auðvit-
að liðsauki. Jœja, hugsaði Hrádek,
við ráðum fram úr því. Þeir voru
samanlagt sex menn, eða sex og
hálfur, ef Bohn var talinn með.
„Hefur hann komið auga á Mer-
cedesbílinn aftur?” spurði Bohn.
Myrkrið var óðum að skella á. Eftir
að dimmt var orðið gat verið erfitt
að sjá dökkgrænan bíl.
„Nei.”
„Þá tekst okkur aldrei að finna
Kusak.” öll þessi martröð hafði þá
verið til einskis, hugsaði Bohn,
þessar endalausu klukkustundir,
sem ég hef eytt í dauðans angist.
„Við munum finna hann. Af-
leggjarinn er stuttur. Hann liggur
upp í móti að hinum staðnum,
sem heitir líka Tarasp.”
Bohn varð náfölur.
„Þú manst staðurinn þar sem
kastalinn er.” Rödd hans var jafn-
nístandi og augnaráðið.
22.
David létti heldur betur þegar
þau voru komin á þjóðveginn er lá
til Tarasp. Hann hafði stytt sér
leið frá svissnesku landamærunum
og lent á vegarkafla er var allur í
hámálabeygjum og í Mercedesbíln-
um hafði rikt grafarþögn. Nú óku
þau upp í móti meðfram vinstri
bakka árinnar Inn og hann gat farið
að hugsa um það sem biði þeirra.
Eitt vandamálið rak annað, hugsaði
hann. „Jó, þú ert nógu falleg,”
sagði hann. „Athugaði vegakortið.'
Hann rétti það aftur í til hennar.
„Þú ert á réttri leið,” sagði Jo.
Hún hélt áfram að bursta hár sitt og
lyfta því aðeins. Irina var búin að
bursta sitt hár. Þær voru aftur
orðnar nokkurn veginn frambæri-
legar. „Þú ættir að losa þig við
þessa regnkápu Irina. Hún er
hreinasta smán. Ég skal lána þér
golftreyju. Þú getur ekki komið á
fund föður þíns eins og... ”
„Fjandinn hirði það,” sagði Dav-
id. „Athugaði vegakortið, Jo.”
, .Tarasp liggur sunnan megin við
þennan veg. Þú hlýtur að finna
það,” sagði hún og setti hárburst-
ann aftur í töskuna. Aldrei að deila
við þreyttan mann, hugsaði hún,
sérstaklega ekki ef hann er svangur
í þokkabót. Við þurfum að borða
eitthvað og komast í heitt bað og
fara i einhver föt, sem líta ekki út
fyrir að vera keypt á fornsölu. Hún
fletti sundur kortinu og kom strax
auga á Tarasp. „Merkt?” sagði hún
furðu lostin. „Var þetta ekki....”
„Þetta er mér að kenna,” sagði
Irina.
„Hún gerði þetta í ógáti,” sagði
David. „Hvað sérðu Jo? Liggur
nokkur annar vegur frá Tarasp?”
„Nei.”
„Ertu viss um það?” sagði hann
snöggur upp á lagið. „Krieger
minntist á efri Tarasp. Það þýðir að
það eru tveir staðir, sem bera sama
nafn.” Krieger hafði lýst því sem
smáþorpi uppi á hæð og þar átti að
vera kastali. En kastalinn sæist ef
til vill ekki fyrr en David væri
kominn framhjá afleggjaranum. Ef
hann þyrfti að snúa við myndi það
kosta seinkun.
„Ég sé aðeins Tarasp á einum
stað og það er við þjóðveginn.” Jo
seildist í töskuna sína. „Ég er með
svissneskt kort héma. Það er ef til
vill nákvæmara.” Hún fletti því í
sundur. „Dave geturðu ekki hægt á
ferðinni sem snöggvast? Þetta smáa
letur er...” Hún þagnaði í miðjum
klíðum og eftir þvf sem David
hægði á sér gat hún einbeitt sér
betur. „Guð minn góður, þetta er
svei mér ruglingslegt.”
„Hvað er nú?” David var við
hinu versta búinn. Hann hefði svo
sem getað sagt sér það sjálfur, að
Krieger myndi aldrei hafa valið
fundarstað, sem auðvelt væri að
finna.
„Hversu langt er til Scuol?”
sagði Jo.
„Við verðum komin þangað eftir
tíu mínútur eða svo”. David haði
verið að fylgjast með bifhjóli, sem
hafði fylgt þeim fast eftir. Er þau
hægðu á sér hafði það gert slíkt hið
sama. Þetta var stórt og kraft-
mikið bifhjól og hann hafði átt von
á því, að það færi fram úr þeim þá
og þegar. En ökumaðurinn virtist
ekki hafa neinn hug á því. Hafði
hann ekki þorað að hætta á það,
hugsaði David og hafði stöðugt
gætur á bifhjólinu.
„Allt í lagi,” sagði Jo og grúfði
sig yfir vegakortið og fylgdi vegin-
um eftir með vísifingrinum. „ Aktu í
gegnum Scuol. Haltu svo áfram í
eina milu. Þá áttu að beygja til
vinstri og yfir á hægri bakka
árinnar. Þá erum við komin á veg,
sem liggur til Vulpera.” Æ, þessi
yndislegu nöfn, hugsaði hún. „Því
næst beygirðu til hægri. Skömmu
síðar skiptist vegurinn og þar ferðu
til vinstri. Þaðan liggur vegurinn
upp í móti og þá eru ekki meira en
tvær mílur til þessa Tarasp með
smáu letri.”
„Er kastali þar?”
Jo leit aftur á kortið og sá þtu-
lítinn þríhyming. Hér hafði greini-
lega vandvirkur kortagerðarmaður
verið að verki. „Já,” sagði hún og
bætti við er David jók hraðann án
þess að ansa. „Á ég að endurtaka
þetta?”
„Nei, þakka þér fyrir Jo. Þetta
er deginum ljósara.” David kom nú
auga á bifhjólið aftur. Það hafði líka
aukið hraðann.
„Má ég nú bursta hárið?”
„Nei, fylgstu með vegvísum. Það
er best að við gemm það bæði. ”
Framhald í næsta blaði.
Búðirnar
með góða
matinn
Kjörbúðin Glæsibæ Simi 85166
Matardeildin, Hafnarstræti 5 — 11211
Matardeiidin, Aðalstræti 9 — 26211
Kjörbúð Vesturbæjar,
Bræðraborgarstlg 43 — 14879
Kjötbúðin Skólavörðustig — 14685
Kjörbúðin Brekkulæk 1
Kjörbúðin Háaleitisbraut
Kjörbúðin Alfheimum 2—4
Kjörbúðin Laugavegi 116
Matarbúðin, Akranesi
— 35525
— 82750
— 34020
— 23456
— 93-2046
Allt í hátíðarmatinn
gæðafæða bragðast bezt
Sláturfélag Suðurlands
22 VIKAN 53. TBL.