Vikan - 30.12.1976, Qupperneq 48
SKELLINÖÐRUSLYS ERLENDIS.
Kæri draumráðandi!
Mig langar til þess að biðja þig
að ráöa fyrir mig draum, sem mig
dreymdi síðastliðna nótt og er
hann á þessa leið:
Mér fannst ég vera erlendis, en
vissi ekki í hvaða landi ég var. Ég
var stödd á annarri hæð í ein-
hverju húsi og varð mér litið út um
gluggann á herberginu, sem ég
var í. Sá ég þá ungan strák á
skellinöðru koma eftir vegi, sem lá
meðfram húsinu. Strákurinn var
dökkklæddur og ók á um það bil
60 km. hraða á klst. Þegar hann
var kominn fram hjá húsinu, rann
hann til á hjólinu og datt. Hann
festist einhvernveginn í hjólinu og
það endaði ofan á honum, eftir að
hafa runnið spölkorn eftir vegin-
um. Allt I einu var ég komin á
slysstaöinn og sá þá að annar
fóturinn á stráknum var mjög illa
farinn. Skinnið og kjötið var allt í
tætlum svo að það sást í bein.
Draumurinn var ekki lengri, en
ég vona að þú getir ráðið hann
fyrir mig. Ég er sjáif 16 ára og ég
giska á að strákurinn í draumnum
hafi verið á svipuöum aldri. Ég
man samt ekki eftir því að hafa
séð hann eða nokkurn likan
honum. S.D.
Þessi draumur ber ÖH merki
viðvörunar. Tef/du ekki i tvísýnu,
því að það mun ekki reynast þér
hei/lavæn/egt. Sérstaklega ska/tu
varast það að ferðast með skelli-
nöðru eða einhverju ámóta farar-
tæki. Annars boðar draumurinn
þérllka heppni í ástamálum og sá,
sem verður svo lukkulegur að
eignast þig fyrir konu, mun dá þig
og e/ska heitt.
ÞRÍR PLASTHRINGAR.
Viröulegi draumráðandi!
Aöfararnótt 19. eða 20. nóv.
dreymdi mig eftirfarandi draum,
sem ég óska eftir aö þér ráðið fyrir
mig:
,,Ég gekk niður Laugaveg og
inn í búð, vinstra megin á götunni.
i kassa á boröinu var stór hrúga af
plasthringum í öllum litum. Mest
var þó af dökkum litum. Fannst
mér ég velja mér tvo, annan
breiðan og hinn mjóan, setti ég þá
á baugfingur hægri handar og
gekk út. Er út var komið voru
hringirnir orðnir þrír, þ.e. einn
mjór hafði bæst við og var þá sá
breiði ( miöjunni. Allir voru hring-
arnir hvítir. Þar næst fannst mér
hringarnir vera of þröngir á þenn-
an fingur, tók ég þá af og reyndi
þá á löngutöng vinstri handar. Þar
Mig
dreymdi
komust þefr ekki upp á og setti ég
þá því á vísifingur vinstri handar.
Fannst mér þeir fara vel þar.
Lengri var draumurinn ekki, en
það skal tekið fram, að á vísifingri
vinstri handar get ég ekki haft
hring, sökum meiðsla sem ég
hlaut á fingurinn fyrir nokkrum
árum. Furðaði ég mig nokkuð á
því í draumnum hvernig ég gæti
haft hringinn á nefndum fingri."
Virðingarfyllst. S.G.
Þessi draumur boðar þér
heppni. Ef þú ert ógift er þetta
sennilega fyrir því að þú verðir
ástfangin og giftist bráð/ega. Ann-
ars ættirðu að spyrja sjálfa þig að
því, hvort maðurinn þinn elski þig
ekki. Þú viröist eiga marga aðdá-
endur, sem þú getur ómögulega
gert upp á milli. Svo mun fara að
lokum, að þú munt virða þann
mest, er þú hefur áður metið aö
/it/u. Varastu að láta ekki vopnin
snúast i höndum þér, þannig að
þú verðir þeim verst er þú unnir
mest. Þú ska/t eiga von á bættri
lifsstöðu / framtíðinni.
HENGDUR MAÐUR.
Kæri draumráðandi!
Mig dreymdi draum fyrir
nokkru, sem hefur valdið mér
talsverðum áhyggjum. Hann var á
þessa leiö:
Mér fannst ég og einhver
maður, sem ég hafði aldrei séð, en
hann var ákaflega fallegur, fljóta
mjög hratt á vatni. Þannig flutum
við mjög hamingjusöm þangaö til
við vorum komin á götuna, þar
sem ég á heima. Þá sá ég
fyrrverandi mág minn hengdan
utan á húsvegg og var hann
dáinn. Fyrir framan húsið stóð
dóttir hans og fannst mér hún
hafa hengt hann, en samt vildi ég
ekki að hún sæi hann. Þaö stóðu
fleiri þarna úr fjölskyldunni og
voru allir mjög skritnir. Maðurinn
var ekki lengur með mér.
Með fyrirfram þökk fyrir birt-
inguna. E.B.S.
Þessi draumur er góður fyrir-
boöi. Virðing þín mun aukast að
mun og þú munt verða mjög dáð.
Þú færð gott gjaforð, ef þú ert
ekki þegar gift, og engin hætta er
á að þú giftist niður fyrir þig.
Sennilega áttu fyrir höndum mikla
velgengni / llfinu og verður heilsu-
góð.
UNDARLEG VEISLA.
Kæri draumráðandi!
Mig langar til þess að biðja þig,
að ráða fyrir mig eftirfarandi
draum:
Ég og vinkona mfn stóðum í
myrkri fyrir utan gamalt hús,
ásamt þremur dökkhærðum strák-
um og biðum þess að okkur yrði
hleypt þar inn. Þarna átti að vera
einhver veisla með blaðamönnum
og Ijósmyndurum. Veisluna hélt
ráðskona nokkur, sem ég og
vinkona mín þekkjum báðar. Vin-
kona mín og einn af strákunum
fóru nú eitthvað að fiflast þarna
úti með þeim afleiðingum að hún
meiddist eitthvað á fæti (hún
kallaöi strákinn Jóa). Vinkona m(n
var berfætt, en í sandölum.
Loksins var okkur hleypt inn í
húsið. Þá sá ég að frændi minn
var þarna nokkurs konar dyra-
vörður og lét hann alla, sem inn
fóru, stökkva yfir prik. öllum tókst
að stökkva yfir prikið nema mér.
Mér fannst þessi frændi minn
alltaf vera að tauta einhver guðs-
orð fyrir munni sér og var það
nánast guðlast. Þessu reiddist ég
og fór í fússi út úr húsinu, en var
þó fegin að losna við þetta allt
saman.
Áður en ég fór sá ég rétt ( svip
inn í herbergið, þar sem ráðskon-
an sat umkringd blaðamönnum.
Baðaði hún út höndunum til
áherslu um leið og hún sagði: ,,Og
þeir voru svo þakklátir."-(Hverjir,
veit ég ekki). Andlit hennar var
svo farðað, að það glansaði.
Meö fyrirfram þökk. G-J-
Þú munt lenda l rifrildi við
einhvern, sem þú þekkir ekki
mikið. Slðar sérðu svo eftir þvl að
hafa látið skapið hlaupa með þig /
gönur og hefur miklar áhyggjur af
þvt, að viökomandi persóna muni
ekki fyrirgefa þér. Einhver um-
skipti verða I llfi þlnu og er
sennilegt að þau valdi þér nokkr-
um örðugleikum til að byrja með.
öll viðskipti munu ganga þér I
haginn / náinni framtíð.
HÁKARL i LAUGINNI.
Kæri draumráðandi!
Mig langar til þess að fá
eftirfarandi draum ráðinn:
Ég var stödd hjá kunningjum
mfnum ( sumarbústað, sem var
staðsettur á afar fallegum staö.
Fyrir framan hann var stór sund-
laug og fékk ég leyfi til þess að
synda í henni, en það var mjög
heitt I veðri. S(ðan stakk ég mér (
laugina og synti þar um góða
stund. Skyndilega datt mér ! hug
að reyna að synda I kafi eftir
lauginni endilangri og lagði strax
af stað. Þegar ég var komin svo
sem miðja vegu sá ég eitthvað
koma á móti mér og var gripin
ofsa hræöslu. Ég sá að þetta var
stór hákarl og ætlaöi að reyna að
flýja, en í sömu andrá vaknaði ég.
Meö fyrirfram þökk. Lilla.
Ýmsir vinir þlnir baktala þig og
það mun valda þér erfiðleikum. Þú
lendir sennilega í Iffsháska, en það
sem eftir er æfinnar muntu svo Hfa
i ró og öryggi. Innan skamms
muntu giftast og hjónabandið
mun verða mjög farsælt, ef þú
verður ekki of tilætlunarsöm.
48 VIKAN 53. TBL.