Vikan


Vikan - 13.01.1977, Qupperneq 2

Vikan - 13.01.1977, Qupperneq 2
 4 Milljarður á milljarð ofan. Grein um listaverkasöfnun Pauls Getty. VIÐTÖL: 16 Fáránlegt þegar skemmtikraft- ar spila algjör fífl. Viðtal við Kristínu Lilliendahl. 42 Veröld sem var. Litast um á Laugavegi 21 undir leiðsögn Þorláks Haldorsen. SÖGUR: 12 Eitt rif úr mannsins siðu. Smásaga eftir Friðgeir Axfjörð 19 Snara fuglarans. 28. hluti framhaldssögu eftir Helen Maclnnes. 35 Einstæðingur. 6. hluti fram- haldssögu fyrir börn eftii Herdisi Egilsdóttur. 36 Gróa. 2. hluti framhaldssögu eftir Eddu Ársælsdóttur. 44 Rúmið. Smásaga eftir Ritu Ewert. FASTIR ÞÆTTIR: 7 Poppfræðirit Vikunnar: George Harrison. 9 í næstu Viku. 10 Póstur. 14 Á fleygiferð. Bílasportið blómgast. 23 Heilabrot V'kunnar. 25 Myndasögublaðið. 38 Stjörnuspá. 46 Meðal annarra orða: Koppur á tikall. 48 Mig dreymdi. 49 Matreiðslubok Vikunnar. 52 Blái fuglinn: Eðalsteinninn konunglegi. LIFIÐ HEIL! VIKAN MEÐ EINKARÉTT Á BIRTINGU GREINA ÚR DANSKA BLAÐINU LEVVEL Það er best að segja hverja sögu eins og hún gengur, jafnvel þótt maður sjálfur fari svolítið illa út úr því. Það var nefnilega dálítið spaugilegt, þegar við Lasse Hessel töluðum saman í fyrsta skipti. Hann kom hingað til lands til að kynnast kostum og möguleikum íslenska lambakjötsins af eigin raun og notaði tækifærið aö koma efni sínu á framfæri við íslensk blöð. Hann hringdi til mín, og ég ætlaði satt að segja seint að skilja, hvað maðurinn var að fara. Þw eins og blessuð danskan er auö- skiljanleg á prenti, þá vptst vist fyrir fleirum en mér að skilja hana mælta — hvað þá í síma. Mér skildist helst, að þetta væri ein- hver dani að reyna að selja mér hass og leist heldur ógæfulega á þau viðskipti, en að lokum skildi ég, að maðurinn hét Lasse Hessel og var læknir og vildi gjarna sýna méreitthvert efni, sem hann hafði í fórum sínum. Við mæltum okkur mót Hann snaraðist inn úr dyrunum skömmu síðar léttur á fæti, grann- ur og fullur lífsorku, og það leið ekki á löngu, uns við höfðum skilið hvortannað fullkomlega. Og það er mín trú, að lesendur Vikunnar eigi eftir að njóta góðs af. Seldi bíla, osta og tryggingar Lasse Hessel er 35 ára, og það eru aðeins 13 ár síðan hann ákvað að verða læknir. Fram að því hafði hann reynt sitt af hverju, unnið f Tívolí og bakaríi, selt bíla, osta og tryggingar. Hann sér ekki eftir að hafa eytt tímanum þannig, heldur er þakklátur fyrir að hafa beðið, uns honum var orðið Ijóst, hvað hann vildi. Læknisfræðinámið tók J

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.