Vikan - 13.01.1977, Blaðsíða 42
Það var fyrir ári eða svo, að
Þorlákur Haldorsen, listmálari,
sýndi mér innviði hússins Lauga-
vegur 21, en í þessu húsi hefur
Þorlákur m.a. vinnustofu sína. Það
hafði býsna undarleg áhrif á mig að
koma upp á efri hæðina, þvi þar
virtist tíminn hafa staðið í stað í
nokkra áratugi, og maður hafði á
ilfiimingunni, að húsráðendur hefðu
skroppið burtu einn góðan veðurdag,
ekki komið aftur, en þeirra væri samt
beðið.
Hvaða fólk hafði búið þarna, og af
hverju voru flestir munir þess enn i
herbergjunum uppi á lofti? Ég bað
Þorlák endilega að leysa frá skjóð-
unni.
Öli norski byggði
húsið
— Þetta hús byggði afi minn árið
1895. Hann var kallaður Öli norski,
enda fæddur og uppalinn i Noregi.
Hann kom hingað til lands til að
sinna einhverjum smíðum, sem ég
kann ekki frekar frá að greina, en
honum leist vel á sig hér og ákvað að
setjast hér að. Kona hans hét Else
Haldorsen og var einnig norsk. Þau
bjuggu fyrst á neðri hæðinni og
fluttu siðan á efri hæðina. Afi byggði
allmörg hús hér, þar á meðal
Norðtungukirkju, sem búið er að
rífa, og gömlu verslunarhúsin í
Borgamesi. Eitt húsanna, sem hann
byggði þar, stendur enn.
— Afi og amma eignuðust fimm
börn, tvö þeirra dóu i bemsku, en þrjú
komust á legg. Faðir minn, Halldór
Jóhann, var fæddur 1893 og lést 73
ára gamall, Ragnar Sevérin fæddist
1896ogdó 78 ára gamall, og Johanne
Karoline fæddist 1901 og dó 59 ára
gömul.
Þorlákur í vinnustofu sinni. Til
vinstri við hann er falleg tréskurðar-
mynd, sem afi hans fékk úr strand-
aðri franskri skútu. Til hægri er
mynd.sem Þorlákurvaraðbyrjaá —
strákar að renna fyrir fisk.
Laugavegur 21 er í hjarta
borgarinnar, sem tekur sífelldum breytingum.
í þessu húsi stendur tíminn í stað,
og uppi á lofti er aldamótastemmning.
íbúamir eru horfnir til feðra sinna, en samt er eins
og þeir hafi aðeins skroppið út í búð og komi aftur
á hverri stundu.
42 VIKAN 2. TBL.
út. A myndunum efst fyrir miðju eru Oli