Vikan - 13.01.1977, Page 38
Ilniiurinn 2l.mars 20.april NauliO 2l.april 2l.mai T\iburarnir 22.maí 2l.júni
Misklíð veldur þér
einhverjum erfiðleik-
um. Vertu kurteis og
óeigingjarn, því það
er spor í rétta átt.
Kunningi þinn hverf-
ur af sjónarsviðinu
um stundarsakir.
Þú færð gullið tæki-
færi til þess að auka
álit þitt og hróður.
Sökum anna verð-
urðu að fresta á-
ætlunum þínum um
óákveðinn tíma, en
ofreyndu þig samt
ekki.
Vikan verður róleg.
Notaðu tímann vel til
þess að hvíla þig og
sinna aðkallandi
störfum, því það eru
annasamir tímar
framundan. Þú munt
eiga í erfiðleikum.
krabbinn 22.júní 23.júlí
Á vinnustað þínum
er allt mjög tilbreyt-
ingar- og litlaust. Þú
kemst í nánari kynni
við vinnufélaga þína
á skemmtun, sem
haldin verður. Um
helgina eru líkur á
ferðalagi.
Voijin 2tsept.- 2.V.okl.
Vegna sérstakra
tímamóta verður
venju fremur margt
fólk í kringum þig og
þina fjölskyldu. Nú
er rétti tíminn til
þess að endurgjalda
heimsóknir vina
Sleingeilin 22.de\. 20.jan.
Nú reynir á snilli
þína, því þú ert sem
stendur í sviðsljós-
inu, annað hvort er
að duga eða drepast.
Þú gerir út um deilu,
sem risið hefur út af
sameiginlegu fé.
LjóniA 24.júlí 24. ái>ú\l
Hafðu þig ekki mikið
í frammi, því plá-
netustraumamir eru
þér andstæðir.
Heimafyrir biða þín
mörg óleyst verk
efni, sem þú skal
gefa þig að. Heilla
litur er ljósgult.
SporAdrckinn 24.okl. 23.nó\.
Náið skyldmenni
verður þess valdandi
með gerðum sínum,
að þú verður mjög
upp með þér. Nú er í
alla staði mjög góður
tími til þess að inn-
heimta gamlar
Yalnsberinn 2l.jan. lú.febr.
Vinur þinn birtist
þér óvænt og þið
eigið skemmtilegar
stundir saman. Þú
færð tilboð, sem get-
ur orðið til þess að
vænka hag þinn, og
það þykir þér mjög
ánægjulegt.
ósk, sem þú hélst,
að gæti varla ræst,
gerir það nú á mjög
einfaldan og auð
veldan hátt. Þú hef-
ur tekið þátt í gleð-
skap, sem færir þér
nú smá bakreikning.
HoitinaÓurinn 24.nó\. 2l.des.
Þú stendur í ströngu
og reynir þar mjög á
skipulagshæfileika
þína og lipurð. Þú
verður að breyta
framtíðaráformum
þinum vegna ó-
væntra atburða um
helgina.
Fiskarnir 20.febr. 20.mars
Þú verður fyrir smá-
útgjöldum, sem þú
varst farinn að halda
að þú slyppir við. Þú
tekur þátt í stóru
samkvæmi og kynn-
ist þar mörgu
skemmtilegu og fjör-
ugu fólki.
segja engum heima hjá sér, að hún
hefði verið þar.
Þegar föt Gróu voru þornuð
fylgdi Kate henni í búðina ti'
Hannesar. Hannes taldi hún mikinr,
heiðursmann, og sagði: ,,Ég versla
við hann, en hann verslar aldrei vilð
mig.”
Gróa skildi þetta ekki fullkom-
lega og spurði, hvort hún hefði
eitthvað til sölu. Þá hló hin trölls-
lega, en gaf engin svör.
Síðan hefur Gróa stundum
skroppið í heimsókn til Holly.
Aðalbjörg amma Gróu er orðin
ógnar skar. Hún er á sjötugasta og
fimmta ári og næstum blind. Einnig
fær hún oft ónot fyrir hjartað og
ýmis önnur óþægindi, sem ellinni
fylgja. Hún liggur mikið fyrir
gamla konan og sjálf finnur hún,
hvernig þrótturinn dvínar.
Einn dag um vorið kemur Gróa
heim úr skólanum og lítur inn í
herbergið til ömmu sinnar. Hún sér,
að amma sefur og læðist því hljóð-
lega út.
Um kvöldið segir Dóra henni að
fara upp og kalla á ömmu sína að
borða. Þegar Gróa kemur inn í
herbergið liggur gamla konan enn í
sömu stellingu og svarar ekki, þótt
Gróa kalli. Hún gengur að rúminu
og tekur í ömmu sína, en amma er
svo undarleg, köld og stíf og Gróa
kallar á Óla.
Innan skamms er öll fjölskyldan
samankomin í herbergi gömlu kon-
unnar. Dóra leiðir Gróu fram og
Hannes fer niður að hringja á
Gordon lækni.
Amma er dáin.
Nú taka við dagar annríkis og
umstangs. Þorvaldur kemur frá
Alberta og þau systkinin ræða,
hvort gamla konan skuli flutt til
íslands. Niðurstaðan verður, að hún
skuli grafin í Winnipeg.
Lík manns hennar hafði aldrei
fundist, og hún hafði aldrei sjálf
óskað eftir öllu því umstangi og
fyrirhöfn, sem fylgir því að flytja
dauða manneskju milli heimsálfa.
í fögru veðri í byrjun maí 1909 er
Aðalbjörg jarðsett. Gróa grætur
heitum tárum við kistu ömmu
sinnar. Hún hefur mikið misst, en
hún á góða að. Alla frænka hennar
þrýstir hönd hennar, þegar þær
ganga hlið við hlið eftir kistunni.
Alla er orðin sextán ára, falleg
kanadastúlka, stór og hraustleg.
Hún er þeirrar kynslóðar, er aldrei
hefur skort neitt.
Ekki breytist líf Gróu mikið við
dauða ömmu hennar. Hún er Dóru
handgengin við heimilisstörf og allir
eru henni góðir, en samt saknar hún
ömmu sárt. Hún var frá upphafi
kjölfestan í tilverunni, og alltaf
hægt að leita til hennar með öll
vandamál.
Þetta sumar verður Gróa ellefu
ára. Hún á að fá að dvelja hjá
Þorvaldi og Lousie í sumar og
hlakkar mikið til.
Hún er nú orðin töluvert há í
loftinu og þegar hún situr ber
ekkert á bækluninni. Vinstri fótur-
inn er styttri og mjöðmin þeim
megin hærri, en hún gengur á skó -
með þykkum botni og það er mikil
bót. Hendur hennar eru hagar og
hún er listfeng. Andlit hennar er
laglegt, þótt hún sé ekki eins
smáfríð og móðir hennar hafði
verið. Gróa er ljósari yfirlitum en
Þórdís var. Og Gróa er skapgóð og
dagfarsprúð. Henni sækist námið í
skólanum vel og Hannes hefur
heitið henni því, að styrkja hana til
hvaða menntunar sem hún óskar sér,
þegar hún verður eldri.
Jafnvel þeir, sem fæðast bæklað-
ir og óvelkomnir í þennan heim geta
með góðra hjálp og eigin dugnaði
sigrað alla erfiðleika.
Þannig líða æskuár Gróu. Þó
koma þær stundir, að henni þykir
sárt að geta ekki verið með vinum
sínum við íþróttir og leiki, og
stundum öfundar hún stúlkumar,
sem svifa léttar í dansi, þegar hún
situr sjálf og vermir bekkinn. Hún á
samt sem áður margar góðar stund-
ir, sem bæta allt annað upp. Hún
les mikið og hefur yndi af að ræða
um bækur við vini sína, einkum þó
Kjeld Jensen. Alvarlegi, feimni
Kjeld er einn af hennar albestu
vinum.
Á þessum unglingsárum kemur
stundum þunglyndi yfir Gróu, en
hún reynir að dylja það. Hún veit,
að örlögunum verður ekki breytt, en
innst inni óskar hún þess, að hún
gæti dansað og hlaupið eins og
vinkonur hennar, rennt sér á skaut-
um og leikið tennis.
Oft á slíkum stundum læðist hún
heim til Kate Holly og rekur henni
raunirsínar. Hún hefur löngu komist
að, hver viðskipti Kates eru, en
Gróu er alveg sama. Henni þykir
vænt um þessa stórskomu konu,
með ærlega svipinn.
Móðir Kate’s hafði verið indíáni,
en Dick Holly faðir hennar var af
ensku bergi brotinn. Kate og bræð-
ur hennar ólust upp í þessu húsi og
máttu líða mikið fyrir uppmna sinn.
Móður sína misstu þau ung og Kate
fór að heiman fimmtán ára. Hún
eignaðist fljótlega kærasta, en hann
snéri baki við hanni og þá fór hún
að drekka. Síðar kom hún aftur
heim til Winnipeg þegar faðir hennar
var orðinn gamall og heilsulaus og
hún tók að annast hann. En af
einhverju urðu þau að lifa og enginn
vildi ráða indiánakvendi í vinnu,
svo þá æxlaðist það að Kate gerðist
38 VIKAN 2. TBL.