Vikan


Vikan - 13.01.1977, Qupperneq 16

Vikan - 13.01.1977, Qupperneq 16
Fáránlegt þegarsk algjör fíf I í rúmlega eitt ár hefur hið geysivinsæla lag, ,,Ég skal mála allan heiminn elsku mamma”, glumið í eyrum íslensku þjóð£u*innar, og svo virðist sem enginn hafi látið það fram hjá sér fara. Ungir sem aldnir hafa raulað það og jafnvel sungið hástöfum við hin ótrúlegustu tækifæri. Flestir vita sennilega, að stúlkan, sem syngur lagið, heitir Kristín Lilliendahl og var annar tveggja víðkunnra söngfugla. látið stilla gítarinn minn, sem var tólf strengja, áður en ég fór út í bíó. Það var nokkurt frost þennan dag, en ég athugaði það ekkert og labbaði með gítarinn frá Birkimel og yfir í Háskólabió. Þar beið ég svo eftir að röðin kæmi að mér á dagskránni, en þegar ég byrjaði að spila, var gítarinn rammfalskur. Hann hafðir þá fallið á leiðinni vegna frostsins. Mér leið hræðilega illa, en þraukaði nú samt og gat spilað á efstu strengina, því þeir höfðu ekki fallið. — Varstu taugaóstyrk, þegar þú spilaðir og söngst á skemmtunum eins og í Háskólabíói? — Já, ég var alltaf hræðilega taugaóstyrk og er það ennþá. Mér hefur aldrei fundist ég vera eins lítil og þegar ég söng í Háskólabíói. Ég var þarna bara eins og kaktus í eyðimörk. AUt fólkið sat beint fyrir framan mig, og ég fann, að það var mjög erfitt að halda uppi góðri stemmningu í svo stórum sal. Svo Þegar ný 12 laga plata (jólaplata með Kristínu, kom á jólamarkaðinn skömmu fyrir síðustu jól, sá Vikan sér ekki annað fært en að fræðast eitthvað nánar um stúlkuna og pantaði hjá henni viðtal. Það gekk eins og i sögu, og ekki leið á löngu, áður en blaðamaður og ljósmyndari fóru til fundar við Kristínu í Mosfellssveitina, en þar býr hún ásamt eiginmanni sínum, Stefáni Pálssyni húsasmið. Við vorum svo heppnir að ramba fljótlega á rétta húsið, og var okkur tekið með afbrigðum vel. Þau hjónin byrjuðu náttúrlega á því að afsaka húsakynnin, vegna þess að þau hafa ekki ennþé lokið við að innrétta, en þar sem þau byggja allt upp á eigin spýtur, þótti mér þetta allt saman eðlilegt. Ekki vorum við fyrr sestir inn í stofu en Kristín fór að hlaða ihn tertum og finiríi og lét eiginmann- inn halda okkur uppi á snakki á meðan. Eftir stutta stund gat ég hafið viðtalið og bað Kristínu að segja mér örlítið af sjálfri sér, á meðan ég hakkaði i mig tertumar. Plötusnúður í Sigtúni — Jé. Ég er fædd í Reykjavík 5. júlí 1955 og hef alið allan minn aldur þar siðan. Nú, ég gekk í barna- og gagnfræðaskóla og tók gagnfræða- próf á sínum tíma, en eftir það hóf ég störf í hljómplötudeild Fálkans á Laugavegi 24 og vinn þar enn. Síðastliðin fjögur ár hef ég verið í 'Tónlistarskóla Kópavogs á kvöldin og lært söng hjá Elísabetu Erlings- dóttur. Eg var líka plötusnúður í Sigtúni í fjögur ár, en hætti þar síðastliðið vor vegna anna. — Hvenær byrjaðir þú að syngja og hver voru tildrög þess? — Ég kom i fyrsta skipti fram opinberlega á árshátíð í Ármúla- skóla, og það var 1972 minnir mig. Þá hafði ég spilað og sungið fyrir vini mína og kunningja, og þess vegna var bent á mig, þegar efni var safnað fyrir árshátíðina. Það vildi svo til, að á þessari árshátíð var valinn einn skemmtikraftur til þess að kom fram á skemmtun í Tónabæ nokkru síðar, og ég varð fyrir valinu. Þegar ég svo söng í Tónabæ var mér afskaplega vel tekið, og ég minnist þess alltaf, hvað það var skemmtilegt að koma þar fram. Um svipað leyti hitti ég Áma Johnsen. Ég á honum eiginlega mikið að þakka, því að hann hvatti mig mjög til þess að halda áfram að syngja og ýtti mér raunar út á þá braut. Eftir þetta kom ég svo fram á ýmsum stöðum, og svo sá ég líka um popphomið í útvarpinu um tíma. — Samdir þú sjálf tónlistina, sem þú fluttir? — Ég gerði nú mest af því að flytja erlend lög, en samdi líka sjólf, aðallega þegar ég var 15 — 16 ára. Núna er ég aftur tekin til við að semja og hef mjög gaman af því. Eins og kaktus í eyðimörk — Gerðist ekki eitthvað eftir- minnilegt á þessum árum, þegar þú varst að syngja ó hinum og þessum stöðum? — Jú, jú. Ég man til dæmis eftir einum alveg hræðilegum tónleikum í Háskólabíói. Ég átti að koma þar fram ósamt mörgum fleiri og hafði ijflli i ■ ' 16 VIKAN 2. TBL.

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.