Vikan


Vikan - 13.01.1977, Side 18

Vikan - 13.01.1977, Side 18
Erfitt að slíta sig frá þessu — Tónlistafsmekkur fólks hefur náttúrulega breyst gífurlega. Það er miklu minni áhugi á þjóðlaga- tónlist, en mér finnst það virðingar- vert að fólk, sem er við tónlistar- nám, ein og t.d. Diabolus in musica, fái tækifæri til þess að koma fram. Unga kynslóðin er dálítið ósvífin með. Mér finnst fólk svo skrítið og ófeimið. Það getur átt það til, að benda á mig í búðinni, þar sem ég vinn, og segja: „Nei, ert þetta ekki þú, sem syngur á þessari plötu?” Ég kann hræðilega illa við þetta. Einu sinni kallaði líka einhver strákur á eftir mér niðri í bæ. „Ég get sko málað minn eigin heim”. — Þú ert sem sagt ekkert hrifin af því að vera fræg? — Ég hef nú aldrei hugsað út i það, að ég sé fræg. Mér finnst það ber bara oftast mest á honum. Ég held lika, að ég kunni betur við það að vinna í litlu stúdíói, innan um fátt fólk. Það er einhvem veginn vistlegra. — Ertu ánægð með útkomuna á nýju plötunni? — Já, ég er bara nokkuð ánægð með hana. Hún er nú eiginlega fyrsta tilraun mín í þessum dúr. Ég vona að minnsta kosti, að mér hafi farið fram. Mér finnst nauðsynlegt, að öll fjölskyldan geti hlustað á gera í framtíðinm? Ætlarðu að verða óperusöngkona? — Nei það er nú alls ekki ætlunin. Ég vil geta notfært mér nám mitt til kennslu síðar meir. Mig langar til þess að vinna að tónlist heimafyrir og njóta hennar sjálf á meðan ég hef tækifæri til. —• Hefurðu ekki áhuga á því að koma þínu eigin efni á framfæri? — Ég veit það ekki vel enn sem komið er. Ég á að vísu nóg efni, en mig langar ekki til þess að bjóða fram eitthvað, sem fólk langar kannski ekkert til þess að heyra. — Hvemig líst þér á ungu kynslóðina í dag? — Ég veit ekki hvort ég er að verða gömul eða hvað, en mér finnst unglingarnir leyfa sér miklu meira nú i dag en ég og minir jafnaldrar á sinum tíma. Unga kynslóðin er dálitið ósvífin. Alls kyns læti og skemmdarverk vaða uppi, og eng- inn virðist ráða við neitt. Þegar ég var á þessum aldri, var algengt, að krakkar kæmu saman til þess að spila og syngja eða skemmta sér á einhvem svipaðan hátt. — Svo við snúum okkur að öðm. Hvert var upphaf söngfuglanna frægu? — Ég vil nú helst gleyma öllu um þá. Það var að vísu alveg yndislegt að vinna með Árna Blandon, en sjónvarpið stóð ekki við sína samn- inga við okkur, og það gerði okkur gramt í geði. Ég kynntist Árna reyndar i sjónvarpsþætti hjá Jónasi R., og upp úr þvi hófst svo samstarf okkar. Við gerðum nokkra þætti fyrir sjónvarpið og sungum svo inn á barnaplötu, sem ég er ekki ánægð maður verða að vinna eitthvert vemlegt afrek til þess. — Hvemig varð jólaplatan svo til? — Svavar Gests kom til mín í sumar og sagðist vera tilbúinn til þess að gefa út jólaplötu með mér, ef ég vildi. Ég var dálítið hikandi í fyrstu, en Svavar bauð mér svo góð kjör, og svo hafði ég í rauninni engu að tapa. Gaman að vinna í stúdíói — Hvemig likar þér að vinna í stúdíói? — Það er mjög undarleg tilfinn- ing að koma inn í stúdíó og heyra þá kannski undirspil, sem búið er að æfa og taka upp. Margir halda, að undirleikurinn sé aukaatriði og telja sönginn aðalatriðið. Ég held, að það sé misskilningur. Söngurinn er aðeins lítið brot af heildinni, en Folkio mitt hlýtur sko að vera fegiö að vera laust við mig. Það er farið að senda mér peninga' óumbeðið. ~ < —~7 sömu tónlist, sérstaklega á jól- unum, því að til að regluleg jólastemmning ríki þarf fjölskyldan að vera samheldin og heilsteypt. Það væri vissulega gaman að því, ef hinir ýmsu aldurshópar gætu hlust- að á sömu tónlist sér til skemmtun- ar. Unga fólkið vill oft kenna hinum eldri um, og það er líklega nokkuð til í því, að fólk staðni á vissum aldri og hætti þá að taka við nýjungum. — Hvað hefurðu hugsað þér að Langar þig til þess að koma fram og syngja, t.d. með hljómsveit? — Mér hefur oft verið boðið að syngja með hljómsveitum, sem hafa verið að byrja, en ég hef ekki haft áhuga. Hins vegar gæti ég vel hugsað mér að syngja með einhverri góðri hljómsveit. Annars veit maður aldrei hvað getur gerst. Ég held, að það sé mjög erfitt að slíta sig frá þessu, þegar maður er á annað borð byrjaður. — Að lokum Kristín. Hverjir eru helstu framtiðardraumarnir? —Að geta kennt manninum min- um að dansa, en það er nú meira í gríni (Stefán samþykkir þetta þegj- andi). Mig langar til þess að geta flutt bæði sígilda- og dægurlaga- tónlist með sæmilegum hætti. Það væri vissulega líka gaman að geta sungið fyrir alla aldursflokka. Svo vildi ég gjama, að maðurinn minn tæki meiri þátt í þessu með mér. Hann hefur nefnilega mestan áhuga á skíðaíþróttum og húsa- gerðarlist. Þar með sló ég botninn í samtalið við Kristínu og sneri mér að Stefáni, sem hafði setið þolinmóður á meðan við spjölluðum saman. — Hvað finnst þér svo um allt þetta, Stefán? — Ja, mér finnst alveg ágætt að vera bara maðurinn hennar Stínu. A.Á.S. 18 VIKAN 2. TBL.

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.