Vikan


Vikan - 13.01.1977, Page 44

Vikan - 13.01.1977, Page 44
Anna myndi alltaf muna daginn þann þegar hún keypti rúmið. Það var daginn fyrir tuttugasta og þriðja afmælisdaginn hennar. Þetta var dýrt rúm, smíðað úr breiðum fumborðum — og það var fullkomið þar sem það stóð í litlu íbúðinni hennar. Þetta var gömul íbúð, með útikamri og ein- ungis köldu vatni í eldhús- inu. Það fólst samskonar ögmm í því að kaupa rúmið og að flytja að heiman. — Hvers vegna viltu búa ein, hafði móðir Önnu spurt með tárin í augunum. Þá hafði hún þegar skrifað undir húsaleigusamninginn. Hún hafði viljað hafa allt klappað og klárt, mamma átti létt með að tala um fyrir manni. — Það er nógu rúmt um okkur hér, hélt móðir hennar áfram með grátstafinn x kverkunum. Hús foreldra hennar var sannarlega nógu stórt fyrir þrjá, 200 fermetrar. Litla tbúðin, sem hún tók á leigu í Nönnugöm, var aðeins 24 fermetarar. En það var ekki það sem málið snérist um, það vissu mæðgurnar. Anna vildi ráða stnu eigin lífi og vera frjáls. Þegar hún keypti rúmið var hún ekki bara að hugsa um svefngagn. Rúmið var ekki mjótt einsmanns rúm, eins og hæft hefði ógiftri og ólofaðri stúlku, sem var ekki einu sinni á fösm. Þetta var tveggja metra langt rúm og 125 sm á breidd. Húsgagn, sem hentaði fólki, sem hugs- aði sér rúm ekki einungis sem svefngagn og skammaðist sín ekki fyrir að sýna það. Anna var í rauninni hvorki frjáls eða sérstaklega lífs- reynd, þegar hún keypti rúmið, en hún ætlaði sér að öðlast reynslu. Hún hafði átt tvö ástarævintýri, en þau höfðu ekki leitt til eins né neins. Reyndar höfðu þessi ævin- týri verið grátbrosleg og ekki vel heppnuð, og þess vegna fannst Önnu nú tími til kominn, að eitthvað spenn- andi færi að gerast. Rúmið vakti mikla athygli, það var ekki um annað taiað. Foreldrar Önnu sáu það fyrst. Það var sent heim frá verslun- inni á afmælisdaginn henn- ar. Allan daginn færði hún það fram og afmr í herberg- inu, án þess að finna því viðeigandi stað. Þegar hún þreytt og rauð af áreynslu opnaði fyrir boðsgesmnum, óskaði hún þess að hún hefði reynt að koma því fyrir í eldhúsinu, þó svo að hún hefði þurft að setja það upp á kant. f versluninni hafði rúmið verið breitt og glæsilegt á að líta, en ekki tröllaukið. En í litlu stofunni var það svo. Það leiddi athyglina frá öllu öðm sem í stofunni var. Foreldmm Önnu varð mikið um. En þau kunnu sig vel og sögðu ekkert. Augu föður hennar spegluðu undr- un og kímni. Hjá móður hennar mátti eitt augna.blik sjá bregða fyrir fyrirlitningu og hræðslu. En þau höfðu vald á tilfinningum sínum og reyndu að láta sem ekkert væri. Enginn þorði að nefna rúmið á nafn, það var eins og að sitja til borðs með fíl, án þess að þykjast taka eftir því. Það vom gerðar athugasemd- ir við flest í stofunni, en rúmið nefndu þau ekki. Önnu var hælt fyrir smekk- vísi, þeim þóttu glugga- tjöldin falleg, kjóllinn, sem hún hafði saumað sjálf, var snotur, og pottrétmrinn, sem hún bauð upp á, frábær, það var bara rúmið, sem þau forðuðust að nefna. Faðir hennar spaugaði með að hún væri nú vitlausu megin við ána, en tókst ekki vel upp. Þau fóm snemma heim. Sögðust vera þreytt, en Anna hefði þorað að veðja, að rúmið hræddi þau burtu. Anna haföi ekki mikla lífsreynslu, en hún vildi öðlast hana. Fyrst flutti hún að heiman, síðan keypti hún stóra rúmið og kom þvt fyrir t miðju herherginu. En ekkert varð eins og hana haföi dreymt um. Það sannaðist líka næsta dag, þegar móðir hennar hringdi til skrifstofunnar: — Ég vildi ekki segja neitt svo pabbi heyrði, sagði móðir hennai — en ég held, að þú ættir að losa þig við þetta skelfilega húsgagn. Anna átti bágt með sig, það var rétt eins og hún hefði komið klósettskál fyrir í miðri stofunni! — Ertu að tala um rúmið? sagði hún. — Já, það fer ekki vel, sagði móðir hennar. — Ég kann vel við þetta svona, sagði Anna þrjósku- lega, þó að hún undir niðri hefði verið farin að hugleiða möguleikann á að biðja versl- unina að taka það aftur. — Það er fallegt að horfa á og dásamlegt að liggja í því, hélt hún áfram. Auk þess var það dýrt. — Það efa ég ekki, sagði móðir hennar. — En hefur þú hugleitt, hvað fólk muni segja, þegar það sér það? Það gæti fengið rangar hug- myndir um þig, og það viltu varla? Það var líkt móður hennar að tala undir rós. Anna vissi, hvað hún var að fara og varð ergileg. — Ef einhverjiu álíta mig 44 VIKAN 2. TBL.

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.