Vikan - 07.04.1977, Qupperneq 4
Andrew, sem var verndaður fyrir
almenningi, gat hins vegar leyft sér
að gefa hugmyndum sinum lausan
tauminn. Sjálfsöryggi hans og
hæfni í iþróttum komu honum vel í
Gordonstoun skólanum.
Skólinn er algjörlega út af fyrir
sig. svo það er raunar engin ástæða
fyrir Andrew að fara til næsta
bæjar, en eins og aðrir nemendur fer
hann stundum þangað um helgar til
að versla.
Siðastliðið sumar fengu blaða-
menn tækifæri til að fylgjast ögn
með Andrew, þegar hann var með
foreldrum sínum á Ölympiuleikun-
um. Skólastrákurinn var orðinn að
reglulega laglegum ungum manni.
Kanadabúar tóku honum opnum
örmum, og kannski hefur það haft
áhrif á ákvörðun drottningarinnar
að senda hann á Lakeland háskól-
ann i Ontario.
Hvað ber framtíðin i skauti sér
fyrir Andrew, sem varð 17 ára í
febrúar og er annar i röðinni að taka
við krúnunni?
Hann verður vinsæll hjá stúlk-
um, á því leikur enginn vafi. Hann
verður fyrirmynd — hann hefur
þegar sýnt, að hann hefur smekk
fyrir fötum, notar ekki gamaldags
föt, eins og bróðir hans.
Andrew kann að fara að fordæmi
Andrew hefur nú þegar sýnt, að hann hefur mun betri smekk á
fötum en Charles bróðir hans.
Andrew er orðinn höfðinu hærri en
móðir hans, og jafnvel hinn
glæsilegi faðir hans virðist falla í
skuggann þegar Andrew er nærri.
eldri bróður sins og gegna her-
þjónustu, og hann hefur nú þegar
áhuga á flugi. Og hann gæti mjög
líklega orðið jarl af York, en það er
titill, sem notaður hefur verið frá
fornu fari fyrir næstelsta son þjóð-
höfðingjans.
Eftir því sem drottningin eldist
mun Charles prins óhjákvæmilega
eyða meira af tíma sínum í þau
verkefni, sem fylgja því að vera
ríkisarfi. En hann getur rólegur
stigið það skref, því að skóla-
pilturinn bróðir hans, sem er laus
undan þvi álagi að vera aðalerfingi
krúnunnar, hefur nú þegar sýnt, að
hann getur orðið bróður sínum stoð
og stytta og að hann er líklegur til
að hafa upplífgandi áhrif í kringum
sig.
Prins Andrew hefur ekki sagt sitt
síðasta orð.
Fermingargjöfina
færðu hjá okkur
GJAFKJORUR
í mVA\A
k>
ERUM AÐ TAKA UPP
mikið og fallegt úrval af lituðum
kristal, —
Ítölskum litskrúðugum gler-
vösum og postulínsstyttum frá
Spáni.
EINUNGIS ÚRVALS VÖRUR.
Vörur fyrir alla - Verð fyrir alla.
ILHIi-
KHISIAM
Laugaveg 15 sími 14320
4 VIKAN 14. TBL.