Vikan - 27.10.1977, Síða 50
Peysan hennar
STÆRÐIR: 36 (38) 40 (42).
EFNI: 4 (5) 5 (5) rauðar hnotur, 5
(5) 6 (6) appelsínurauðar hnotur, 4
(4) 5 (5) Ijósfjólubláar hnotur, 3 (3)
4 (4) purpurarauðar hnotur og 2
(3) 3 (3) hnotur í fjólubláum lit.
Þetta er miðað við 50 gr hnotur.
PRJÓNAR: Nr. 6.
PRJÓNFESTA: 15 lykkjur með
tvöföldu garni á prjóna nr. 6 eiga
að mælast 10 sm.
Randamunstrið:
10 umf tvöfalt rautt
8 umf rautt/appelsínurautt
10 umf tvöfalt appelsínurautt
8 umf appelsínurautt/ljósfjólublátt
10 umf tvöfalt Ijósfjólublátt
8 umf Ijósfjólublátt/purpurarautt
10 umf tvöfalt purpurarautt
8 umf purpurarautt/fjólublátt
10 um tvöfalt fjólublátt
8 umf fjólublátt/rautt
Endurtakið þetfa allan tímann.
Bakstykkið:
Fitjið upp 78 (81) 84 (87) lykkjur
með tvöföldu rauðu garni og
prjónið alltaf rétt í randamunstri —
hafið fyrstu rauðu röndina 16 umf,
því það þarf að brjóta upp á
faldinn að neðan. Fellið af á
fimmta hverjum sm fimm sinnum,
það verða þá 68 (71) 74 (77)
lykkjur á prjónunum. Þegar stykk-
ið mælist 73 (75) 77 (79) sm, á að
fella af fyrir miðju 14 (15) 16 (17)
lykkjur vegna hálsmálsins og
prjóna hvora hlið fyrir sig. Fellið 1
lykkju af við hálsmálið í hverri umf
þrisvar sinnum, og fellið samtímis
af við öxlina í byrjun hverrar umf:
8, 8, 8 (8, 8, 9) 8, 9, 9 (9, 9, 9)
lykkjur.
Nýlega var á prenti haft eftir
rosknum kennara, að karlmenn
ættu að læra aö prjóna, þeim
leiddist þá síður aðgerðarleysið á
elliárunum, ef þeir kynnu þá
kúnst. Sjálfur prjónaði hann
aðallega fingravettlinga. Hvernig
væri nú, að HANN prjónaði sjálfur
sína peysul Hann yrði áreiðanlega
upp með sér að ganga í fallegri
flík, sem hann hefði prjónað
sjálfur. — En þetta átti nú ekki að
verða uppeldisþáttur, og skulum
við nú snúa okkur að efninu.
Peysur handa h
Gleymið ekki að lesa alla
uppskriftina yfir fyrst og athuga
prjónastærð og hvernig liti þið
kunnið best við. Takið uppskrift-
ina með, þegar þið kaupið garnið
og látið afgreiðslufólkið ráðleggja
ykkur. Best er að nota fínt ullar-
eða gerviefnisgarn.
ATH! Peysurnar eru prjónaðar
úr garninu tvöföldu, og þær eru
prjónaðar með svona grófum
prjónum, svo að þær verði dálítið
stórar og léttar. En takið líka með I
reikninginn, að þær stækka við
notkun.