Vikan - 27.10.1977, Side 51
íðum
Oft fer tíminn fyrir
framan sjónvarpið
fyrir lítið, en þá er
alveg upplagt að
hafa eitthvað
þægilegt á
prjónunum, svo
að tíminn fari ekki
algjörlega til
spillis. Þessar
fallegu peysur er
bæði einfalt og
fljótlegt að
prjóna, og nú
geta BÆÐI tekið
fram prjónana og
keppst við.
Framstykkið:
Fitjið upp og prjónið eins og
bakstykkið, þar til stykkið mælist
66 (68) 70 (72) sm. Fellið af fyrir
miðju 8 (9) 10 (11) lykkjur vegna
hálsmálsins og prjónið hvora hlið
fyrir sig. Fellið af eina lykkju við
hálsmálið í hverri umf sex sinnum.
Fellið af við öxlina í sömu hæð og
á sama hátt* og á bakstykkinu.
Ermarnar:
Fitjið upp 46 (48) 50 (52) lykkjur
með tvöföldu rauðu garni og
prjónið randamunstrið. Fyrsta
rauða röndin á að vera 16 umf
vegna uppábrots. Þegar ermin er
45 (46) 47 (48) sm löng, á að auka
eina lykkju í hvorri hlið, í fyrstu í
fjórðu hverri umf 4 sinnum, svo
annarri hverri 2 sinnum. Fellið
laust af.
Hettan:
Fitjið upp 112 lykkjur með
tvöföldu rauðu garni og prjónið
randamunstrið í 26 sm. Fellið af.
Frágangur:
Saumið flíkina saman. Brjótið 6
umf innaf neðst á bolnum og á
ermunum, saumið með lausum
sporum. Snúið snúru úr 8-földu
garni og dragið gegnum faldinn.
Mussa
STÆRÐIR: 46 (48) 50 (52)
EFNI: Notið fínt ullar- eða
gerviefnisgarn (undið tvöfalt). Það
þarf 5 (5) 6 (6) hnotur af drapplitu
(ecru), 3 (3) 4 (4) af hverjum eftir-
talinna lita: millibrúnt, brúnt,
kamel og Ijósdrapplitu.
PRJÓNAR: Nr. 5 og 6.
Prjónfesta eins og á dömupeys-
unni.
Randamunstrið:
8 umf drapplitt (ecru)/kamel
10 umf tvöfalt kamel
8 umf kamel/dökkbrúnt
10 umf tvöfalt dökkbrúnt
8 umf dökkbrúnt/Ijósdrapplitt
10 umf tvöfalt Ijósdrapplitt
8 umf Ijósdrapplitt/millibrúnt
10 umf tvöfalt millibrúnt
8 umf millibrúnt/drapplitt (ecru)
10 umf tvöfalt drapplitt (ecru).
Endurtakið þetta allan tímann.
ATHI Þið skiptið alltaf um lit á
röngunni.