Vikan - 26.01.1978, Side 12
unglingalandsliði í knattspyrnu, en var þó ekki
valinn í unglingalandsliðið. Með Víkingi tók
hann þátt í Evrópukeppni bikarmeistara 1970,
og á ferli sínum sem knattspyrnumaður skoraði
hann mikið af mörkum. En hvers vegna hætti
hann afskiptum af knattspyrnu og valdi
handknattleikinn?
— Handknattleikurinn átti einfaldlega betur
Við mig, ég taldist aldrei hafa mikla
knattmeðferð I knattspyrnunni, en þar bjargaði
hraðinn mér. Æfingar jukust stöðugt bæði I
handbolta og fótbolta, og því var óumflýjan-
legt að velja á milli greina. Handknattleikurinn
varð fyrir valinu, segir Jón.
Jón lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum
í Reykjavík vorið 1969 og sótti þá um haustið
um inngöngu í Læknisfræðideild Háskólans.
Þar las hann síðan — eða þóttist lesa, eins og
hann segir sjálfur — efna- og vefjafræði í tvo
vetur. Eftir fall i síðarnefndu greininni á öðru ári
var læknisnáminu sjálfhætt, eins og reglur
deildarinnar voru þá.
Byrjaði Jón þá nám í viðskiptafræði og lauk
því námi á fjórum árum. Tvö seinni árin í þeirri
deild vann hann hálfan daginn í Innréttinga-
búðinni, sem er eign föðurbróður hans. Þar er
Jón nú framkvæmdastjóri, og fyrirtækið
heitir nú Teppaland. Hvers vegna var nafninu
breytt?
— Okkur fannst gamla nafnið svo sem gott
og gilt, og það var orðið þekkt, segir Jþn. —
Fyrirtækið hafði byrjað sem alhliða bygginga-
vöruverslun, en var nú orðið að sérverslun með
gólfteppi. Við veltum því fyrir okkur á alla
kanta, hvort ekki væri rétt að breyta nafninu
þannig, að það höfðaði meira til þeirra, sem
ætluðu að fá sér gólfteppi. Að lokum var síðan
ákveðið að breyta nafninu í Teppaland, og við
teljum nafnbreytinguna hafa verið mjög
jákvæða, því í nafninu felst nákvæmlega það
sem fyrirtækið stendur undir, en markmið
fyrirtækisins er að hafa allar tegundir og gerðir
af teppum á boðstólum.
BÚIN AÐ SÆTTA SIG VIÐ, AÐ KALLINN
ER ALDREI HEIMA
Foreldrar Jóns hafa aldrei tekið beinan þátt I
flokkaíþróttum að neinu marki, en þau hafa
hvatt börn sín til að taka þátt ( íþróttum, og
ekki er ofsögum sagt, að þar sé mikill
íþróttaáhugi. Jón er elstur og þarf ekki að hafa
fleiri orð um íþróttaferil og áhuga hans.
Finnbogi er annar í röðinni, og þó hann hafi
aldrei tekið beinan þátt í íþróttum, á Víkingur
þó góðan og gegnan málsvara þar. Jóna Dóra
lék með meistaraflokki Vals í handknattleik og
er gift Guðmundi Árna Stefánssyni fyrirliða 1.
Jón er ekki beint árenniiegur, þegar hann
stekkur upp og ógnar, en mörg siík augnabiik
hefur Bjarnieifur Bjarnleifsson fest á fiimu um
dagana. Hann tók þessa mynd, en aðrar ->
myndirmeð viðtalinu tók Ijósmyndari
Vikunnar, Jim Smart. Myndin er tekin haustið
1975íieik Va/sog Víkings f Is/andsmótinu, en
þá var Jón í essinu sínu og skoraði 9 mörk.