Vikan - 26.01.1978, Qupperneq 16
Kuöungar, stökkt þa>
Enn stökkvum við yfir hálfan heiminn í hnattreisu þeirri, sem
í rauninni gerist öll innan 1000 metra frá íslendingaseglinum
Oxford Street í London. Okkur finnst óralangt síðan við
vorum í Jamaica-matstofunni Ocho Rios í hádeginu.
Klukkan er orðin tíu að kvöldi, og við erum að koma úr
leikhúsinu.
Umhverfisjörðina ífjórtán veislum 4
TILVALINN EFTIR
LEIKHÚS
Mörg kunnustu leikhúsin í
London standa við Shaftesbury
Avenue. Þar sem Romilly Street
liggur samsíða leikhúsgötunni og
næst henni í norður, er rétt að
skunda þangað tveggja mínútna
leið að lokinni sýningu.
Soho Rendezvous er opinn alla
daga og langt fram á kvöld, eins
og títt er um kínverska og
indverska matsölustaði í London.
Slík veitingahús henta því eftir
leikhúsferðir um helgar.
Að sjálfsögðu vorum við búin
að panta borð áður, því að Soho
Rendezvous er vinsæll staður,
sem tekur ekki nema 80 manns í
sæti. Þetta reyndist einkar þægi-
legur matstaður og nútímalegur.
Abstrakt-málverk héngu á veggj-
um, og loftræstingin var greini-
lega í góðu lagi.
Þjónarnir voru í vestrænum
fötum. Þeir báru fram með
prjónunum skeiðar fyrir þá, sem
vilja gæta hófs í eltingaleik við
famandi menningarheima. Samt
var ekki um að villast, að eldhúsið
var ekta Peking-kínverskt.
Einna frægastir pekingskra rétta
eru Peking-önd og Mongóla-hita-
pottur. Pekingöndin er heilsteikt í
þurrúm ofni á þann hátt, að húðin
verði stökk og kjötið meyrt.
Matseðill kvöldsins á Soho
Rendezvous fór samt nokkuð
aðrar leiðir að þessu sinni. Við
völdum okkur átta rétta röð, sem
var með ýmsum réttum, er við
vissum, að áttu að vera góðir á
þessum stað. Þar á meðal var hluti
af Pekingönd.
Margir matarsérfræðingartelja, að
hin norðurkínverska matreiðsla,
sem kennd er við Peking, standi
við hlið franskrar matreiðslu sem
hátindur matarmenningar heims-
ins. Að baki Peking-matreiðsl-
unnar liggja aldir, ef ekki árþús-
undiraf reynslu kínversku keisara-
hirðarinnar.
Peking-matreiðsla er önnur en
Kanton-matreiðsla, sem er Vest-
urlandabúum mun kunnari. Flestir
kínverskir matsölustaðir á Vestur-
löndum eru kantonskir, en hinir
pekingsku eru aðeins á stangli.
Peking-matur er þurrari og
snarpari á bragðið en Kanton-
GRÆNLEITT ENGLAHÁR
Fyrst kom grænleitt englahár,
sem kallaðist „Dried Scallop &
Greens" á matseðlinum. Þetta var
milt kuðungakjöt með eins konar
stökku þangi, einstaklega Ijúf-
fengt og skemmtilegt á bragðið.
Eiginlega um leið komu á borðið
fjórar risa-risa-stórar rækjur, sem
hétu „Pacific Prawns" á seðlin-
um. Þær voru djúpsteiktar hver
fyrir sig í næfurþunnu eggjadeigi
og voru ekki síðri en fyrsti»
rétturinn.
Næsta mál á dagskrá voru
eldsteiktir svínarifjuendar, svokall-
að „Barbecued Spare Rib." Rifju-
endarnir voru greinilega listilega
marineraðir og mögnuðu mjög
mataráhuga borðgestanna.
matur, oft steiktur eða djúp- -
steiktur. Annar aðalmunurinn er
sá, að Peking-réttirnir eru ekki
borðaðir samhliða eins og Kanton-
réttirnir, heldur hver á fætur
öðrum. Algengt er, að sjö eða átta
réttir komi í langri röð. Og þá er
gott að hafa góðan tíma og fara
sér hægt.
í London eru nokkrir góðir
Peking-matstaðir, að sumra sér-
fræðinga áliti hinir bestu í heimi.
Þar af eru fjórir, sem eru eign
„Rendezvous"-keðjunnar. Einn
þeirra er „Soho Rendezvous" við
Romilly Street.