Vikan - 15.06.1978, Page 18
BÍÓIN í REYKJAVÍK VI. HLUTI
Byggtá
álagabletti
Nýtt kvikmyndahús,
Stjörnubió, var opnað í
Reykjavík 29. sept. 1949.
Bygging hússins, sem stendur
við Laugaveg 94, hafði þá
tekið langan tíma, því á þeim
árum var erfitt um allar
byggingaframkvæmdir, og
hafði smíði kvikmyndahússins
t.d. legið alveg niðri um
tveggja ára skeið. í hluta-
félaginu, sem stofnaði Stjörnu-
bíó, voru: Hjalti Lýðsson,
Tómas Tómasson og bræðurnir
Grímur, Hróbjartur og
Haraldur Bjarnasynir.
í húsinu voru rúmlega 500
sæti á tveimur hæðum og gólf
hallandi. Loftræsting var mjög
fullkomin, og átti loftið í
húsinu að endurnýjast á
tuttugu mínútum. Sýningar-
vélar voru mjög fullkomnar af
gerðinni Philips.
Árið 1953 kom upp eldur í
húsinu, og skemmdist það tölu-
vert, en sýningar lögðust þó
ekki niður. Um 1960 voru
sýndar nokkrar af hinum frægu
rokk-myndum í Stjörnubiói,
„Rock Around The Clock” o.
fl. og urðu þá oft mikil læti á
sýningum. Armar voru slegnir
af stólum, og fólk dansaði i
sætunum. Eins voru umdeildar
sýningar á myndinni „Ég er
forvitin gul,” sem var sýnd þar
1968.
Það virðist svo sem kvik-
myndahúsið sé byggt á álaga-
bletti, því 19. desember 1973
gereyðilagðist það í eldsvoða.
En eigendur gáfust ekki upp,
heldur hófust þegar handa við
endurbyggingu hússins. Allri
Stofnandi ogeigandi: Stjörnubió hf.
Opnað: 29. sept. 1949.
Fj. sœta: 468.
Tækjabúnadur: Philips 35 mm (Wide
Screen og Cinemascope)
Erl. viðskiptafyrirtæki: Columbiao.fi.
Vinsælustu myndir: Byssurnar frá
Navarone. Brúin vftr Kwaifljótið, A
eyrinni (On the Waterfront). „Fláklipa
Grand Prix " og Djúpið.
Fjöldimvnda árlega: (J. þ. b. 25.
Fjöldi starfsfólks: 15.
skipan þess var breytt, and-
dyrið stækkað og salnum
breytt, þannig að hann er nú
stighækkandi og svalir engar.
Endurbyggingin kostaði um 35
milljónir króna, en tryggingar-
upphæðin nam 25 milljónum
króna. Upphaflegur arkitekt
hússins, Aðalsteinn Richter,
annaðist endurteikningu þess,
en Jón Benediktsson mynd-
höggvari sá um hönnun inn-
réttinga. Sýningarvélarnar,
sem höfðu skemmst í brun-
anum, voru gerðar upp og eru
notaðar ennþá. Sýningar hófust
að nýju 9. júní 1974.
★ ★ STJÖRNVBÍÓ * *
i Sími: 81930 |
Sagan a! Karli ]
z i ' ’ =
Skotaprins
: (Bannie Prince Charlie) f
| Ensk slórmyná í eðlileg- i
f um litum, um frelsisbar-^ i
I 'áttu Skota og ævintýra- J
I logo unrlankomu Karls I
f prins. Aðalhlutverk: f.í
David Nivcn f
\ *■“ Margaret Leighton ’ 1
Sýnd kl. 5, 7 og-9. . f
f Aðgöngumiðasafa Éíefst;'(: f
§ klukkan 1. . §
= s
I I
Fyrsta auglýsing Stjörnubíós.
18 VIKAN24. TBL.