Vikan - 23.11.1978, Blaðsíða 46
Ilnilurinn 2l.m;irs 20.ariríl NauliA 2l.npril 2l.niai IMhurarnir 22.mai 2l.júni
Það er mesti misskiln-
ingur að aðrir séu að
leggja stein í götu þína,
þinn eigin vilji er mesta
hindrunin. Taktu þigá
og framkvæmdu það,
sem þér þykir mest um
vert.
Það er engin ástæða til
að halda að eina leiðin
til að koma sér áfram sé
að troða skóinn af
næsta manni. Notaðu
frekar meðfædda skyn-
semi og eigin hæfileika.
Eyddu ekki kröftum
þinum til einskis. Þú
getur auðveldlega náð
sama árangri með minni
fyrirhöfn, ef þú skipu-
leggur tíma þinn betur.
Farðu samt að öllu með
gát.
kr.-'lihinn 22. júni 2.V jnli
Leggðu ekki trúnað á
allt, sem þú heyrir.
Reyndu að líta hlutlaust
á vandamálin og þá
kemstu að raun um að
þau eru ekki eins ógn-
vekjandi og við fyrstu
sýn.
Hættu þessu stöðuga
voli og ráðaleysi. Lifið
hefur meiri möguleika
en þig hefuróraðfyrir.
Fáðu þér frískt loft og
þú munt.komast að
raun um að gönguferðir
geta gert kraftaverk.
Slcingcilin 22. dcs. 20. jan.
Árangurinn, sem þú
taldir þig hafa náð, virð-
ist jafnvel enn fjarlæg-
ari. Reyndu að komast
að orsökunum og gættu
þess vandlega að láta
ekki biturleikann ná
tökum á þér.
l.jóniO 24. júli 24. tiijúsl
Þú hefur mikið reynt til
að bæta þig og setja þig
i annarra spor.
Samkomulagið innan
veggja heimilisins hefur
batnað mjög, en hafðu
hugfast aðekkert fæst
baráttulaust.
SporOdrckinn 24.okl. 2.4.nói.
Vanafestan er að ná of
miklum tökum á þér.
Framkvæmdu það, sem
þú hefur lengi ætlað að
gera, og reyndu að vera
meira lifandi og líta
tilveruna bjartari
augum.
4alnshcrinn 2l.jan. IV.fchr.
Þér tekst flest það, sem
þú tekur þér fyrir
hendur, og dugnaður
þinn og áhugi virðist
geta flutt fjöll. Taktu
samt engar framtíðar-
ákvarðanir í flýti,
hugsaðu þig vel um.
Sláðu öllum þýðingar-
miklum ákvörðunum á
frest og reyndu að
vinna bug á öllum
neikvæðum viðhorfum.
Sættu þig við að allt
hefur sín takmörk og
þinn tími kemur að
lokum.
Hoi<niaóiirinn 24.nó». 21.dcs.
Þér gengur svo vel að
koma orðum að þínum
hjartans málum að þú
vekur áhuga allra í
kringum þig. Þér gengur
flest í haginn og
dagarnir líða hjá með
undraverðum hraða.
Kiskurnir 20. fchr. 20. murs
Hugsun þín fylgir ekki
alltaf raunveruleikanum
og gerðu þér grein fyrir
að valdbeiting er ekki
rétta leiðin til að ná
settu marki. Þú gætir
orðið fyrir aðkasti með
sama áframhaldi.
Hvaðer þetta?
46 Vikan 47. tbl,
•Bpœjs 'Þ 'OAJOA ■£ zuag sapsDjajAj 'i j3ZB|g jajojAaq^ •[