Vikan - 23.11.1978, Blaðsíða 48
Hann var fullur af fjöri, og þannig munu
aðdáendur hans ætið minnast hans.
Hann átti það jafnvel til að henda
trommunum sínum niður af sviðinu á
tónleikum. í þessu húsi (mynd til hægri)
átti hann heima, á efstu hæðinni. Örin
vísar á herbergið, sem hann lést I.
Dauði hans var í samræmi við líf
hans. 7. september, á hádegi, fann hin
sænska unnusta hans, Annette Walter-
Lax, hann látinn í rúminu. Kvöldið áður
hafði hann verið í miklum gleðskap hjá
Paul McCartney. Dauðaorsök: Of mikið
af kampavíni og of stór skammtur af
róandi lyfjum.
Paul McCartney hafði boðið til veislu
í tískuveitingahúsinu Peppermint-Park i
London til að minnast þess að 18 ár
voru liðin frá dauða Buddy Holly.
Meðal gesta voru stjörnur eins og
Jimmy Page í Led Zeppelin, Gilbert
O’Sullivan, Leo Sayer og Keith Moon,
hinn frægi trommuleikari hljómsveitar-
innar Who. Sá síðastnefndi notaði tæki-
færið til að opinbera trúlofun sína og
hinnar sænsku Annette.
Klukkan tólf á miðnætti átti að
frumsýna mynd um Buddy Holly í
Leicester Square Odeon. Þangað kom
Keith með Annette. Hann tróð sér
hlæjandi gegnum mannþröngina og
kyssti aðdáendur sína. Engan grunaði,
að þetta væru síðustu stundir hans.
Síðan var veislunni haldið áfram, og
þau nýtrúlofuðu fóru heim klukkan
fjögur um nóttina. — Hann var orðinn
nokkuð þvoglumæltur og augun
starandi. Við héldum að það væri af
áfengisneyslu, sögðu viðstaddir, er
fréttist um dauða hans.
Um klukkan þrjú næsta dag reyndi
unnusta hans svo árangurslaust að vekja
hann í átta herbergja íbúðinni, sem
hann átti I glæsihverfinu Mayfair.
Seinna lýsti hún þvi svo fyrir blaða-
mönnum, hvernig nagandi ótti hennar
varð að vissu.
— Andlit hans var náhvítt og ískait,
sagði hún grátandi.
Hún hringdi í heimilislækni Keiths,
sem pantaði strax sjúkrabil. En allar
tilraunir til að lífga hann við reyndust
árangurslausar. Tóm pilluglös fundust
við rúm hans. Opinber dauðaorsök var
talin óheppileg áhrif áfengis og róandi
lyfja. Hann var fluttur með hraði á
Middlesex sjúkrahúsið, en þar var ekk-
ert hægt að gera nema úrskurða hann
látinn.
Nágranni Keiths Moon, sem sá hann
borinn út í sjúkrabílinn, sagði:
— Maðurinn á börunum leit út eins
og sextugt gamalmenni.
Stúlkur, sem af tilviljun urðu vitni að
brottflutningi hins fræga trommu-
leikara, hnigu grátandi niður á götuna.
Keith Moon átti það sameiginlegt
með stórstjörnum eins og Jim Morrison,
Janis Joplin, Jimi Hendrix og Brian
Jones að brenna lifskertið í báða enda,
48 Vikan 47. tbl.
KEITH MOON:
sem er vísasti vegurinn til ótímabærs
dauða.
Keith var frægur fyrir svallveislur
sinar og furðuleg uppátæki, eins og að
sprengja salerni í loft upp með flug-
eldum, klifra upp ellefu hæðir til að
bjóða Mick Jagger góðan daginn og aka
skrautvagni sínum inn í hótelanddyri,
alveg upp að afgreiðsluborðinu. En
alltaf greiddi hann þann skaða, sem
hann olli. Það sem gerði þennan
harmleik þó ennþá athyglisverðari, er að
Mamma Cass dó í sömu íbúð fyrir
nokkrum árum. Hún kafnaði í brauði
meðskinku.
HANS
DAUÐI
Keith Moon elskaði dulargervi. Hér
sjáum við hann sem „The gentleman”.
— Við erum alveg miður okkar vegna
dauða Keiths, og við vitum ekki hvernig
áframhaldið verður. Það er alveg
ómögulegt að finna trommuleikara, sem
getur komið í staðinn fyrir „Moonie”,
sögðu félagar hans í hljómsveitinni
Who við fregnina um þennan sorgar-
atburð.
Sgt. Pepper:
LÉLEGIR DÓMAR; MÁLAFERLIOG 90 SÍÐNA SAMI
Kvikmyndirnar Saturday Night Fever og Grease, sem
Robert Stigwood er framleiðandi að, hlutu eins og
kunnugt er mjög góðar viðtökur. Veldi Stigwoods, sem
eitt sinn var likt við Brian Epstein, umboðsmann
Bitlanna, er nú orðið miklu meira en áhrif Epsteins
nokkurn tíma og þvi virðist hann geta leyft sér hvað sem
er. Allt sem hann kemur nálægt verður að peningum.
Kvikmyndin Sgt. Pepper fékk hins vegar einhverja þá
lélegustu dóma, sem kvikmynd hefur fengið i
Bandaríkjunum á síðari árum og er þó af nógu að taka.
Síðan fylgdu málafcrli i kjölfarið.
Peter Frampton krafðist þess, að nafn hans yrði ritað
með stærri og meira áberandi stöfum en nöfn
bræðranna i Bee Gees. Þannig var samningurinn gerður
áður en vinna við kvikmyndina hófst, en þá var Peter
Frampton líka mun stærra nafn en Bee Gees-bræður.
Bardaginn hélt áfram, því það kom í Ijós, að nánast