Vikan - 23.11.1978, Blaðsíða 54
3. HLUT/
Úrdráttur
„Þú gætir fengið ibúðina mina í Raven
Gardens á meðan ég er i burtu,” sagði
Rosamond Rae snöggt.
Þetta var mjög frcistandi tilboð.
Harriet Lane þurfti nauðsynlega á íbúð
að halda strax. En hún þekkti
Rosamond næstum ekkert. Það eina,
sem hún vissi um hana, var að hún
hafði skrifað nokkrar frábærar
smásögur. Harriet vann hjá bökmennta-
umboði og hafði tekið að sér að koma
sögum Rosamond á framfæri.
Rosamond sagðist fara til Parisar
siðdegis þennan sama dag og hvert hún
færi síðan, eða hvenær hún kæmi til
baka, var allt óákveðið. Hún varaði
Harriet mjög ákveðið við eiganda
hússins, frú Mander, og sagði hana
snuöra um annarra hagi.
Það kom Harriet óþægilega á óvart
að frú Mander var gáfuð, vel menntuð
og vingjarnleg, vinnuveitandi og
náfrænka Rosamond, og hún hafði
reyndar annast uppeldi hennar.
Harriet ákvcður að flytja inn
þrátt fyrir allt og kemst strax í kynni
við einn af leigjendunum, hinn
aðlaðandi Bryn Kester.
Harriet hristi höfuðið, ófær um að
svara.
Bryn skálmaði fram hjá henni og hún
elti hann aðeins inn fyrir dyrnar og
horfði á hann fara inn í eldhúsið og
baðherbergið, án þess að hann sæi
nokkuð til hins óboðna gests.
Hann kom til baka og starði á hana
kuldalegur og tortrygginn, eins og hann
héldi að hún hefði átt einhvem þátt í
þessu, eða að minnsta kosti gert eitt-
hvað, sem hefði orsakað þetta.
Bryn náði í töskurnar hennar og,
innkaupapokann og bar það inn, fór
síðan fram í eldhús og náði í tvö glös,
sem hann setti á skrifborðið hennar. ,,1
guðanna bænum sestu niður,” sagði
hann ergilegur. Síðan hvarf hann inn í
sina íbúð og kom aftur með viskíflösku.
Allt í einu fann Harriet að hnén
skulfu og hún lét fallast niður í næsta
stól. Þegar hún lyfti hendinni
máttleysislega, sá hún að hún hélt á
glasi.
Bryn sat hinum megin við skrifborðið
og virti hana fyrir sér en urraði svo:
„Jæja?” Hann var greinilega ergilegur,
hvort sem það var vegna hennar eða
bara yfir þvi að vera truflaður, hún vissi
það ekki. Það hafði þó alla vega ekki
verið farið inn í hans íbúð . . Harriet
saup nokkra viskísopa og fann að hún
var að jafna sig. Bryn Kester hafði verið
hér á efstu hæðinni, þegar hún kom
heim af skrifstofunni, hugsaði Harriet
með sjálfri sér. Það hafði enginn annar
verið hér — en auðvitað gat hún ekki
vitað, hvenær hinn óboðni gestur hafði
komið. Það gæti hafa verið fyrr um
daginn, en einhvern veginn fannst henni
samt, að það hefði ekki verið langt um
liðið.
„Ég veit ekki hverju þú vilt að ég
svari þessu ,jæja”, ” sagði hún reiðilega.
„Ég æpti, þótt það sé ekki vani minn, en
hefðir þú ekki gert slikt hið sama?” Hún
benti á ringulreiðina í kringum sig. „Ég
á við, efþú værir kvenmaður.”
Það hnussaði í honum og hann horfði
enn á hana vantrúaður.
„Heyrðir þú nokkuð áður en ég
æpti?”spurði Harriet.
Bryn hristi höfuðið og svaraði: „Það er
stutt síðan ég kom heim. Ég er að fara
út að borða, svo ég fór i bað strax og ég
kom heim. Hávaðinn af vatnsrennslinu
hefði verið nægilegur til þess að ég
heyrði ekki neitt. Samt sem áður . .
Hann hleypti brúnum.
„Já?”
„Ef þú hcfur ekki mætt neinum á
leiðinni upp stigann, þá hefur þetta ekki
getað gerst eftir að ég kom heim, ekki
satt? Mættir þú nokkrum í stiganum?”
Bara stúlkunni á annarri hæðinni.
Heitir hún ekki ungfú Oliver?”
„Patsy Oliver.” Bryn kinkaði kolli.
„Hún er ekki likleg til að hafa staðið
fyrir þessu. Og það er enginn annar af
ibúunum heima núna.”
„Enginn?”
Hann tók eftir hræðslutóninum í rödd
hennar og virti hana rannsakandi fyrir
sér.
„Ekki nema frú Mander sé komin
aftur úr gönguferðinni með hundinn,”
sagði hann. „Herra Dean og Patsy
Oliver búa á annarri hæðinni. Þau fara
bæði heim um helgar, Dean fer beint af
skrifstofunni. Á þriðju hæðinni búa
tvær fyrrverandi kennslukonur, ungfrú
Parsons og ungfrú Weir. Þær eru sem
stendur á ferðalagi um Ameriku og
Kanada. Þar sem þetta er ekki beinlinis
líkt Patsy Oliver, hlýtur sá, sem hér var
að verki, að hafa komið og farið fyrir
alllöngu.”
„Já, þaðeráreiðanlega rétt hjá þér.”
Bryn hreyfði sig og baðsloppurinn
opnaðist og vöðvastæltur háls hans kom
i Ijós. „En samt ertu ekki viss, er það?”
„Nei, ég er ekki viss um neitt. Þér
fannst Rosamond vera til óþæginda. Þér
hlýtur að finnast ég jafn slæm.”
Bryn hvorki samþykkti né mótmælti
þessu, en sagði snögglega: „Mér virðist
þú ekki vera sú manngerð.”
„Hvaða manngerð?”
54 Vikan 47-tbl.