Vikan - 23.11.1978, Blaðsíða 18
Bálfarir í
Fossvogi
í 30 ár
Síðan 1948 hafa 1820 !ík veríð
brennd / Foss vogskapellu.
Hvers vegna þar, — og hvernig?
Á fjórða áratugnum var stofnað hér á landi
félag í því skyni að kynna, útbreiða
og kaupa tæki til líkbrennslu. Félagið hét
Bálfarafélagið. Fyrtr atbeina Bálfara-
félagsins og annarra var Fossvogskapellan
reist og var hún hugsuð sem útfarar-
stofnun. Þar var komið fyrir tveimur
ofnum til likbrennslu, og má segja að
kapellan sé reist utan um þessa ofna. Alla
vega var það vegna ofnanna sem ráðist var
í byggingu þessa húss. Svo einkennilega
vildi til, að fyrsta líkið sem brennt var í
ofnunum, var lik fyrsta formanns Bálfara-
félagsins, Gunnlaugs Claessen. Starfsemin
lognaðist út af við fráföll forvígismann-
anna, en þeir voru að sjálfsögðu allir
brenndir.
Upphaf bálfarar er ekkert frábrugðið
venjulegri jarðarför. Athöfn í kirkju að
viðstöddum vandamönnum. En þegar
tjaldið er dregið fyrir, þá fer kistan ekki út í
kirkjugarð, heldur inn í lítið herbergi. Þar
bíður starfsmaður líkbrennsluofnanna við
heitan ofninn, — 500 gráður. Útbúnaður
XS Vikan 47. tbl.
11M
: ^
I litla herberginu bifla galopnar ofndyrnar,
hitinn 500 gráflur.