Vikan - 21.08.1980, Síða 25
Milli Feneyjatorgs og Nýjatorgs: Papa Giovanni
1 t - r wm C.
li
mmr r
1 IITt' ^ilil 1 J1 £ !
aSbSrrTTTT -'rSr- r- fX'r- r f
rimrnr KkJLI b. i *,,pr; ýr /9« ,* - | * f
Trajanusarsúlan ar i forgrunni og altarí ítallu I bakgrunni. Tll lusgrí sést Feneyjatorg.
veislu. Og Renato lét ekki hjá líða að
kveðja okkur með virktum eins og aðra
gesti. Þetta var sannarlega ógleymanleg
kvöldstund í veitingahúsi í meistara-
flokki.
Ekki má svo gleyma því, að frá Papa
Giovanni eru aðeins um 200 metrar tii
hins fallega torgs, Piazza Navona, sem
stendur þar, sem áður var paðreimur
Domitianusar, með þremur frægum gos-
brunnum. Og svo er aðeins 400 metra
gangur að einu af furðuverkum forn-
aldar, Panþeon, hinu vel varðveitta
musteri frá árinu 27 fyrir Krist. Þangað
höldum við í næsta tölublaði Vikunnar.
Sardiníumatur á
Drappo
Sumum, sem staddir eru á Feneyja-
torgi í hádeginu á leiðinni til Piazza
Navona eða Panþeon, finnst sjálfsagt of
dýrt að borða veislumat fyrir 15.000
krónur eða hádegissnarl fyrir 7.500
krónur. Þeim bendi ég á að rölta svo sem
500 metra áfram eftir Corso Vittorio
Emanuele og beygja síðan til vinstri í átt
að Tiberfljóti. Eftir um það bil 200
metra er komið að Via Giulia. Þar er II
Drappo við Vicolo del Malpasso. Og þar
fæst fyrsta flokks matur fyrir hálft verð-
iðá Papa Giovanni.
Það hæfir vel, að II Drappo skuli vera
við sund, sem heitir Stigamannasund.
Þetta er nefnilega Sardiníustaður,
rekinn af systkinunum Paolo og
Valentinu, sem eru ættuð frá Cagliari.
Rétt er þó að taka fram, að engin stiga-
mennska er stunduð á veitingahúsinu,
þótt hún sé stunduð á Sardiniu.
Þetta er örlítil hola, sem tekur aðeins
18 manns í sæti. Hún er fræg fyrir fersk
hráefni, svo sem humar, olífur, sveppi
og kjúklinga, sem koma beint frá
Cagliari á Sardiníu. Úrval rétta er mikið
og eingöngu bundið við hefðir frá
Sardiníu. Matreiðslan er mjög traust og
vinin einkar góð.
Jónas Kristjánsson
(Papa Giovanni, Via dei Sediari 4,
sími 656 53 08, lokað sunnudaga og í
ágúst).
II Drappo, Vicolo del Malpasso, simi
65 73 65, lokað sunnudaga og í ágúst).
Einn hinna þriggja
gosbrunna á
Nýjatorgi, Piazza Navona.
Því eldri, því betri
Ostarnir, sem kostuðu 4.000 lírur,
voru sérstakur kapítuli. Þar ber fyrst
frægan að nefna „Grana Reggiano”,
sem kunnari er utan Italíu undir nafninu
„Parmigiano”. Þetta er mjög sérkenni-
legur ostur, harður og molnar þó
auðveldlega, mikið notaður út á hveiti-
rétti, því hann verður ekki límkenndur,
þegar hann bráðnar.
Eins mikið er vandað til framleiðslu
Grana Reggiano og hinna göfugustu
franskra vína. Osturinn er yfirleitt ekki
seldur yngri en tveggja ára gamall, oft
þriggja ára og jafnvel fjögurra. Hann
heldur sér árum saman og er talinn því
betri sem hann er eldri. Það er stórkost-
legt að stýfa hann úr hnefa og hafa
rauðvin með.
Grana Reggiano kemur frá Parma-
héraði eins og hin fræga Parmaskinka,
besta hráskinka veraldar. „Taleggio
Valbremana" kemur frá Langbarða-
landi. Það var annar osturinn í hópnum,
mjúkur sem Camembert, sannkallað
Ijúfmeti. Þriðji osturinn var svo
„Provolone Romano", rómversk útgáfa
af frægum osti frá Campaníu, mjúkur
og þéttur í senn.
Með cappuccino kaffinu fylgdi stór
skál með púðursykri, smákökum og
rauðri rós, notalegur endir á frábærri
í næstu Viku:
Carmelo
alla
Rosetta
34, tbl. Vlkan 25