Vikan - 21.08.1980, Page 45
VERZLUNARMIÐSTÖÐIN NESBÆR
Borgarbraut 57, Borgarnesi.
VÖRUFLUTNINGAMIÐSTÖÐ
STEINARS OG JÓHANNS — Sími 7281
TISKUVERSLUNIN JÚNÓ
Sími 7277
barðist um á hæl og hnakka, losnaði og
tókst næstum að sleppa. En þeir náðu
henni, drógu hana aftur og tveir menn
héldu niðri handleggjum hennar og
tróðu upp I hana handskjóli hennar
meðan sá þriðji nauðgaði henni.
-----M '■»—-=»«---+■----*-----Mr~
Þeir skiptust á.
Þegar þeir höfðu neytt hana til ýmiss
konar kynferðisathafna, sem ég get ekki
fengið af mér að lýsa, hentu þeir henni
frá sér og lúskruðust burt en hún lá í
stigaþrepum hljómsveitarpallsins, grát-
andi, skrámug og blóðug.
Einhvern veginn tókst Önnu að kom
ast heim I vinnustofuna. Slóð hennar I
snjónum var blóði drifin. Kirkjuklukk-
urnar i Berlín slógu tólf högg. Nýársnótt
var runnin upp.
Mamma tapaði stillingu sinni þegar
hún sá Önnu standa i dyrunum. Hún
var öll marin og skrámuð i andliti. Blóð
lagaði úr vör hennar. Hún hafði bitið sig
til blóðs til að standast sársaukann og
niðurlæginguna. Pils hennar og nærföt
voru í tætlum undir vetrarkápunni og
annan skóinn vantaði.
Inga tók hana í fangið og reyndi að
-------------M-----W—*-------*-----K
hugga hana. Loks endurheimti móðir
min sjálfsstjórnina. Hún kom Önnu i
rúmið. Þær háttuðu hana og þvoðu
henni, báru smyrsl og sótthreinsandi
efni á sár hennar og eyddu nóttinni i að
reyna að komast að því hvað hefði gerst.
Hún gat engu svarað hjá þeim nema
hálfkæfðum ekkasogum.
Þannig hófst árið 1940 hjá fjölskyldu
minni.
Ég var á flakki og I felum og endaði i
Prag á gráum, rökum febrúardegi. Ég
vissi ekkert um fjölskyldu mína. Ég var á
flótta — laug og notaði fölsuð skilriki.
fór gangandi, svaf í hlöðum og
heysátum.
Ég var kominn með nokkurs konar
sjötta skilningarvitið þegar einkennis-
búningar áttu i hlut — hvaða einkennis-
búningur sem var, búningar lögreglu,
hersins, SS-manna eða sveitalögga. Ég
fann næstum af þeim lyktina, heyrði til
þeirra áður en þeir komu auga á mig,
fuglahræðuna meðbakpokann.
Einu sinni var ég þrjár vikur
vinnumaður á bóndabæ i Bavariu, tók
upp kartöflur og gulrætur, lét lítið á mér
bera i afskekktu sveilaþorpinu, þagði.
þóttist vera hálfviti sem herinn vildi
ekki. Þegar hersveit kom sér upp búðum
skammt frá hvarf ég næsta morgun.
Égfóreftirhliðargötum. klifraði yfir
þúsundir veggja og girðinga, át allt sem
ég gat stolið eða betlað. 1 gömlum dag-
blöðum las ég um ótrúlega velgengni
þýska hersins, lyga-stríðið í vestri og
sprengjuárásir á England. Og smám
saman gerði ég mér grein fyrir því að
gyðingar voru glataðir og strengdi þess
heit að ef ég ætti að deyja þá skyldi ég
berjast fyrst. Ég faldi gamla veiðihnífinn
i belti mér. Ég sór að ef þeir kæmu að
sækja mig, ef upp um mig kæmist þá
myndi ég að minnsta kosti drepa einn
áður en þeir dræpu mig.
Skammt frá Munich, i bæ sem hét
Starnberg — ég hélt mig eins mikið að
smábæjum og hliðargötum og mér var
frekast unnt — stal ég virklippum úr
járnvöruverslun. Ég var orðinn laginn
þjófur. Ég var alinn upp sem miðstéttar-
drengur, fullur af gömlum gyðinga-
boðorðum um aðstela hvorki, svíkja né
ljúga, en var nú að komast að því að
ströng siðavendni væri ekki alltaf
ákjósanleg til að komast af. Þeir voru
margir, búðareigendurnir, sem söknuðu
brauðhleifs, kexpakka eða sokka eftir að
ég var farinn þaðan.
Auk þess lærði ég að ferðast yfir
landið þvert — beitti áttaskyni mínu eða
fór eftir vegaspjöldum. Við minnstu um-
merki um lögreglu eða yfirvöld skaust ég
inn á akra, inn i skóginn eða framhjá
sveitabæjum. Margir sveitahundar réðust
að mér og einu sinni hljóp ég frá nauti.
Ég var búinn að læra að vera varkár,
hvernig ég ætti að leynast, hvernig best
væri að ferðast. Þótt einkennilegt megi
virðast var miður dagur ágætur timi.
Löggur og SS-menn, allar öryggis-
sveitirnar virtust kunna vel að meta langar.
þungmeltar máltiðir og lúr á eftir.
Það var 10. febrúar 1940 sem ég
smaug yfir tékknesku landamærin um
það bil tuttugu og fimm kílómetra
sunnan við Dresden, að því er ég kemst
næst. Tékkóslóvakía var hernumin en
það voru enn uppi tálmar. Ég beið
myrkurs, faldi mig á meðan i áhaldaskúr
34- tbl. Vlkan 45