Vikan - 12.11.1981, Side 51
Draumar
Veikindi í húsi
frá liðnum árum
Kæri draumráðandi.
Eftirfarandi draum dreymdi
mig dagstund þegar ég lagði
mig. Ég vaknaði í svitabaði. En
draumurinn er svona:
Mér fannst að ég, systkini
mín og foreldrar værum öll í
húsinu sem afi og amma mín
bjuggu í fyrir mörgum,
mörgum árum. Það einkenni-
lega við þetta var að mér
fannst systkini mín, sem eru
fjögur, öll vera ógift og
jafnframt á mínum aldri, en í
veruleikanum eru þau miklu
eldri en ég.
Jæja, svo kom að því að við
áttum að fara að sofa. Ég var
látin sofa ein í stóru herbergi,
sem ég í draumnum vildi sjálf
ekki. En þar sem mér fannst ég
vera þreytt lagðist é'g út af í
hjónarúm.
Þá veiktist ég. Ég fékk
höfuðverk — alveg hryllilegan
og hita og mér fannst ég æpa á
pabba en þá kom ég ekki upp
nokkru hljóði.
Þannig endaði draumurinn
en þegar ég vaknaði gerði ég
mér grein fyrir því að
herbergið í draumnum var eins
og herbergið sem ég hafði
sofnað í að undanskildum
nokkrum húsgögnum. Ég var
sveitt og þetta var eins og
martröð ( þ.e. sjúkdómurinn
sem ég fékk í draumnum) þrátt
fyrir að ekkert vœri ógn-
vekjandi. Ég get tekið fram að
húsið er minn framtíðar-
draumur. Mig langar alveg
ofsalega að eignast það og geta
búið í því seinna meir.
En nú vona ég að þú getir
ráðið þennan draum fyrir mig.
Bless. 13.
Það er í sjálfu sér ekki hægt að
ráða þennan draum þó draum-
ráðanda þyki ástæða til að taka
hann til umfjöllunar. Draumar
sem fólk dreymir þegar það fær
sér smáblund seinni partinn,
eða þegar það sofnar aftur á
morgnana, endurspegla yfirleitt
miklu fremur hugsanir fólks og
vökudrauma en að þeir séu
tákndraumar.
Tvennt í draumnum er
einmitt af þessu tagi. Drauma-
húsið og martraðartilfinningin
(martraðir eru alls ekki tákn-
draumar heldur sálfræðilegt
fyrirbæri og ekki á færi draum-
ráðanda að fjalla að gagni um
þær).
Þrátt fyrir þetta eru táknin
sem marktæk verða að teljast í
draumnum á einn veg og því
ætlar draumráðandi að gera
grein fyrir ráðningu draumsins,
með þeim fyrirvara að ekki er
víst að draumurinn sé
táknrænn, hann getur þó verið
það á einhvern hátt.
Svo virðist sem annaðhvort
þú eða systkini þín séu á hálli
braut út af einhverju sem kemur
ykkur sameiginlega við og
sundurlyndi sé ríkjandi og
jafnvel einhver i málinu sem
hafi rangt við. Þú átt erfitt
með að finna þig í þessu máli og
ert mjög á milli tveggja elda og
gætir leiðst út í að breyta illa
gagnvart einhverjum þér
nákomnum. ef þú gætir ekki að
þér. Ef draumurinn er táknrænn
að einhverju leyti er hann
greinilega aðvörunardraumur og
vísbending til þín að hafast
ekkert að sem gæti verið
ósanngjarnt gagnvart ein-
hverjum i fjölskyldu þinni og
einnig að hika ekki við að gera
viðvart ef þú ert viss um að
einhver annar sé að gera öðrum
órétt í einhverju máli.
Skop
46- tbl. Vikan sx