Vikan - 14.01.1982, Qupperneq 41
Kvikmyndir
Þá hefur 12. James Bond-myndin litið
dagsins ljós. Kvikmyndirnar um kyn-
þokkafulla leyniþjónustumanninn 007
hafa notið óhemju vinsælda allt frá því
að fyrsta myndin var framleidd árið
1962, en það var „Dr. No” og lék Sean
Connery þá James Bond.
Á frummálinu heitir nýjasta myndin
„For Your Eyes Only” og er James
Bond (Roger Moore) sendur til Jóna-
hafsins til að bjarga dýrmætum tölvuút-
búnaði, ATAC, áður enRússarnir,KGB,
ná honum. Förin hefst í Madrid og þar
má James Bond ganga í gegnum ýmsar
raunir og ógnvekjandi uppákomur, áður
en honum tekst að halda áfram að rekja
sporin. Þaðan heldur hann til Cortina d’
Ampezzo, sem er frægur vetraríþrótta-
staður. Tvær fallegar konur, skauta-
stjarna (Lynn-Holly Johnson) og þjálfari
hennar (Jill Bennett), koma þar við sögu
svo og ein af lykilpersónum sögunnar,
milljónamæringurinn Kristatos (Julian
Glover), sem við fyrstu sýn virðist ætla
að verða nokkuð hjálplegur við lausn
ráðgátunnar.
Þegar þar er komið sögu hefur James
Bond hitt Melinu (Carole Bouquet) djúp-
sjávarfornleifafræðing sem á hagsmuna
að gæta þar sem skúrkarnir hafa drepið
foreldra hennar. Hún reynist honum
hjálpleg í meira lagi við djúpsjávar-
rannsóknir og fleira er reynist nauðsyn-
legur þáttur í eftirförinni og leitinni að
tölvuútbúnaðinum mikilvæga.
Þá á leiðin eftir að liggja til Korfu og
upp á fjallstoppa á norðurhluta
Grikklands og þau tvö lenda í miklum
mannraunum, eins og þeirra er von og
vísa, áður en málið er að fullu ljóst...
Eins og áður tryggðu framleiðendur
sér eitt af „stóru nöfnunum" er þeir
báðu Sheenu Easton um að syngja
titillagið. Tónlistin í myndinni er
samin af Bill Conti en textar eru eftir
Michael Leeson.
Prinsinn og prinsessan af Wales, Charles og Diana, voru viðstödd frumsýninguna á For Your Eyes Only'
í London. Hér sjáum við þau ásamt Roger Moore og konu hans, framleiðandanum, Albert „Chubby"
Broccoli, og konu hans. .
Að venju er hirð fagurra kvenna í kringum James Bond. Til vinstri sjáum við hann ásamt Melinu, rétt
áður en reynt var að nota þau í hákarlafóður. Til hægri er hann í faðmi skautadrottningarinnar Bibi.
2. tbl. Vlkan 41