Vikan


Vikan - 28.01.1982, Síða 34

Vikan - 28.01.1982, Síða 34
Texti og myndir: Bryndís Kristjánsdóttir Sem betur fer erum við öll sem að myndinni unnum mesta bjartsýnisfólk því þó við gerðum ráð fyrir að við ættum erfitt verk fyrir höndum þá áttum við alls ekki von á öllum þeim erfiðleikum sem okkar biðu í þessari stórborg. Þar eru óteljandi boð og bönn sem menn verða að fara eftir ef þeir ætla að filma eitthvað og Haraldur sagði að þetta væri miklu verra en í Rússlandi og hann talaði af reynslu því þar bjó hann í sjö ár þegar hann var að nema kvik- myndagerð. Sem dæmi um erfið- leika okkar má nefna að við máttum ekkert filma í leikhúsinu þar sem Helgi dansar ef við þurftum að setja eitthvert rafmagnstæki í samband. Til þess þurfti að kalla út löggiltan rafvirkja og þá hefðum við eflaust þurft að borga honum átta tíma á næturvínnukaupi, jafnvel þó hann ynni aðeins eina mínútu. Þetta kom sér afar illa fyrir okkur því mjög dimmt var í leikhúsinu og nauðsynlegt var að lýsa upp þau svæði sem átti að filma, en Ijósunum okkar þurfti að stinga í samband. Við ætluðum þá að bjarga málinu með því að leigja annars konar ljós, en það var ekki hægt. Því miður, það var ekki hægt að leigja útlendu smáfyrirtæki, nema með þvi skilyrði að við borguðum andvirði tækjanna í tryggingu. Fyrirtækið hafði ekki efni á því. Að lokum bjargaðist þetta þó einhvern veginn, einnig þær tökur sem filma þurfti á strætum New York borgar. Þar mátti alls ekki filma nema með sérstökum leyfum sem kostuðu tugi þúsunda. Fyrirtækið hafði ekki heldur efni á því. Þeir lelagar björguðu málinu með því að labba úti með myndavélina í svartri túristatösku og þegar filma átti snaraði Haraldur vélinni upp en á meðan stóð Valdimar á verði og fylgdist með því að engin lögga væri nálæg. Einu sinni gómaði löggan þó kauða, en þetta var sem betur fer allra elskulegasta lögga sem lofaði að snúa í þá bakinu á meðan þeir luku við skotið sem þeir voru byrjaðir á. En þrátt fyrir þessi „ljón” og fleiri sem á vegi okkar urðu þá tókst að ljúka við allt 34 Víkan 4. tbl.

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.