Vikan - 28.01.1982, Side 45
blíðu hennar, en Martin hafði átt ást
hennar.
— Hvenær kemur Joyce? spurði ég.
Maðurinn yppti öxlum. Það var hans
hlutverk að koma með spurningar. Mér
leist ráðlegast að svara sannleikanum
samkvæmt. Þó lenti ég i vanda, þegar
hann viidi vita, hvernig ég hefði komið
til St. Andrews.
— Með bil, svaraði ég. — Ég tók
minn eigin bil meö á skipi frá Osló til
Harwich. Ók svo þaðan til Edinborgar
og hingað.
— Hvar er bíllinn?
— Inni i bænum. Ég lagði honum við
Martyrs kirkjuna.
Hann virtist taka það gott og gilt. Svo
vildi hann vita, hvort ég hefði talað við
einhvern i bænum, einhvern sem þekkti
mig, eða einhvern sem vissi, að ég hefði
farið hingað til Drumcarrow Road.
— Nei, svaraði ég.
1 fyrsta skipti vottaði fyrir brosi á
andliti hans.
— Ég fór til Leuchars í morgun, sagði
ég.
— Leuchars var herstöðin min. Þar er
NATO- herstöð, en þeir hafa reist þar
minnisvarða um fallna, norska flug-
menn. Mig langaði að sjá hann, áður en
ég yrði of gamall.
— Eékkstu að fara inn i NATO-
herstöðina?
— Það var meira að segja ekið með
mig um allt. Þeir trúðu mér Þeir eru
ekki jafntortryggnir og þú.
— Merkilegt, sagði hann hugsandi.
Hann hallaði sér upp að arninum og
handlék byssuna kæruleysislega. Ég sá
ekki, að ég gæti gert mikið í málinu.
Hann var að minnsta kosti tuttugu
árum yngri en ég og áreiðanlega
helmingi viðbragðsfljótari.
— Hver er tilgangurinn með þessu?
spurði ég.
— Tilgangurinn? át hann upp eftir
mér. — Þú sást mig. Þú sást mig
greinilega utan af veröndinni.
Hann benti á glerdyrnar að „gróður-
húsinu”.
— Mér brá ekki lítið, þegar ég sá þig
liggja þarna á gægjum, sagði hann.
— Ég gat ekki bara látið þig fara þina
leið.
Auðvitað. Hann var eftirlýstur. Nú
var farið að renna upp fyrir mér, hvers
konar náungi þetta var. Mér rann kalt
vatn milli skinns og hörunds. Þetta var
enginn barnaleikur.
— Ég gæti gleymt, að ég hef séð þig,
sagði ég. — Það væri góð lausn fyrir
okkur báða.
Smásaga
Hann rak upp snöggan, andstyggi-
legan hlátur.
— Afar fyndið, sagði hann. — Ég hef
alltaf haldið að Norðmenn væru
sneyddir allri kímnigáfu.
— Sei, sei, nei. Við kunnum að meta
vel heppnað spaug.
— Ágætt. En ég tek þér vara fyrir því
að líta á þetta sem spaug. Ég er ekki að
leika mér.
— Svo að þú ert í slæmum málum?
— Við erum í stríði, sagði hann, og
það vottaði fyrir hátíðleika í röddinni. —
Við berjumst fyrir réttinum til þess að
mega ráða okkur sjálfir. Við lítum á það
sem gott mál.
— Norður-lrland?
Hann svaraði ekki spurningu minni.
Svipurinn lýsti ofstæki og hatri.
— Þú ættir að geta skilið okkur, sagði
hann. — Norðmenn hafa einnig mátt
þola hernám.
— Já, en við vorum svo lánsamir að
hafa aðeins einn óvin að fást við. Hjá
ykkur virðist þetta allt miklu fióknara.
þvi þið berjist einnig innbyrðis. Ert þú
kaþólikki eða mótmælandi?
Svipur hans harðnaði. Ég hafði víst
gengið fulllangt. En það gat komið sér
vel að vita, að það var hægt að koma
honum úr jafnvægi.
Einhver kom að útidyrunum, og hann
rétti snögglega úr sér og beindi byssu-
hlaupinu i átt til dyranna.
Drottinn minn dýri, hugsaði ég. Nú
koma þau. Vesalings Mona. Hún fær
áreiðanlega taugaáfall, þegar hann
opnar dyrnar. Jan bregður eflaust
minna.
Hurðaskellur heyrðist, því næst fóta-
tak úti í forstofunni. Maðurinn lét
byssuna síga.
— Joyce, kallaði hann lágt. — Þú
hefurfengiðgest.
ICona á sextugsaldri birtist i dyrunum.
Ég þekkti þessi stóru, þrúnu augu. Hárið
var ekki lengur rautt, það var Ijóst, aug-
Ijóslega litað. Hún var þreytuleg. Og
hrædd. Hún hélt á tveimur plastpokum
með matvörum. Hún stóð grafkyrr og
starði á mig.
Ég reis hægt á fætur, minnugur þess
að maðurinn hafði mig stöðugt í
skotfæri.
— Halló, Joyce, sagði ég. — Gaman
aðsjá þig aftur.
Hún lyfti brúnum. Svo leit hún af mér
á manninn.
— Hver er hann? spurði hún.
Hún þekkti mig ekki. Hafði ég virki-
lega breyst svona mikið? Maðurinn tók
vegabréfið mitt upp af borðinu og las
nafnið mitt. Hún var engu nær. Hún
hafði aldrei getaðsagt Steffen.
— Þú manst þó eftir Steve? sagði ég.
— Steve, sem var vinur Martins?
Hún kipptist við, eins og ég hefði
slegið hana utan undir. Mér fannst hún
ætla að æpa.
4. tbl. Vikan 45