Vikan


Vikan - 28.01.1982, Side 63

Vikan - 28.01.1982, Side 63
Pósturinn Skop Vantar heimilisföng aðdáenda- klúbba Hæ, þú Póstur! Ég þakka gott blað og vona að Helga sé södd. Þannig er mál með vexti að mér þætti mjög gott að vita heimilisföng aðdáendaklúbba hljómsveit- anna The Roots, Sex Pistols, Dead Kennedys og Bubba Morthens (ef þeir eru til). Er ekki hægt að fá birt piaköt með þessum hljómsveitum? Hverjir eru helst í aðdáenda- klúbbum? Geta hverjir sem er komist í aðdáendaklúbba? Hvernig starfa aðdáenda- klúbbar? Með fyrirfram þökk, Punk-frík Þvi miður tókst Póstinum ekki að grafa upp neina aðdáenda- klúbba þessara listamanna en ef lesendur vita um þá eru þeir beðnir að skrifa Póstinum og skal það þá birt. Aðdáenda- klúbbar starfa nokkuð mis- munandi. Flestir munu þeir byggjast upp á því að meðlimir fá sendar myndir og fréttir af uppáhöldunum sínum gegn ein- hverjum smágreiðslum. Ef íslenskir krakkar hyggjast skrifa erlendum klúbbum skulu þeir kaupa alþjóðleg svarmerki á pósthúsi og láta fylgja með. Merkin jafngilda frímerkjum og ágætt er að senda með umslag með nafni og heimilisfangi (sem Bretar kalla S.A.E.). Þið, lesendur góðir, eruð alltaf jafnduglegir við að biðja um plaköt og því miður er ekki hægt að verða við allra óskum. En allt er tekið til greina og málið skoðað frá öllum hliðum. Gospillur (og allt er hægt að spyrja Póstinn um!) Mig langar að vita hvað varð um gömlu góðu gospillurnar sem voru á silfurlituðu spjöldunum og voru seldar hér á landi fyrir 5-7 árum? Hvers vegna er hætt að selja þær? Gæti Pósturinn nú ekki hringt ogforvitnast (ég veit nefnilega ekki hvert ég á að hringja og svo mundi enginn hlusta á mig)? Ég vona bara að þú skiljir migog„vertu núsvo vænn” að birta að minnsta kosti svarið. P.S. Ég gleymdi að þær voru svo æðislega góðar. Meira var það nú ekki, Pillus Pósturinn vissi heldur ekkert hvert hann átti að hringja en vel mundi hann eftir gömlu, góðu gospillunum frá því hér um árið. En eftir nákvæma rannsókn telur Pósturinn sig hafa fundið svarið. Umræddar gospillur munu hafa verið teknar af markaði þegar upp komst að sætefni eða gervisykur sem þær innihéldu reyndist geta verið krabbameinsvaldandi ef borðaðar væru nokkur hundruð gospilla dag hvern í nokkra áratugi. En allur er varinn góður. Pósturinn heldur (en veit þó ekki fyrir víst) að fram- leiðslunni hafi verið hætt alveg. 4. tbl. Vikan 63

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.