Vikan - 27.05.1982, Blaðsíða 42
það sem hún sagði og ég varö að virða
hana fyrir það hvernig hún tók þessu.
,,Þá er rétt að ég skilji þig hér eftir
svo að þú getir notiö þessa ágætis,”
sagði hún kaldhæðnislega. „Eg vona
að þú losnir undan þessum töfrum svo
að þú náir að koma á frumsýninguna á
laugardaginn.”
„Það geri ég tæpast,” svaraöi hann
rólega. „Við verðum þá komin til
Frakklands.”
„Við?” endurtók hún spyrjandi.
„Já, Susan og ég,” svaraði hann
óþolinmóður. „Viö þurfum að fara
þangaö í viðskiptaerindum.”
„Auðvitaö,” sagöi hún hægt. „Viltu
vera svo vænn að koma með ilm-
vatnsflösku til mín? Sömu tegund og
síðast.”
Hann mældi hana út með augunum
og sami ískuldinn var í augnaráðinu og
verið hafði hjá föður hans fyrr um dag-
inn. „Ég hef aldrei keypt handa þér
ilmvatn. Þaðveistu vel.”
„Nei, alveg rétt. Mikið var ég vit-
laus. Þaö var Ross sem gerði það.”
Hún snarþagnaði, eins og henni heföi
brugðið, en svo brosti hún afsakandi til
mín. „Mér þykir fyrir því en nú hef ég
líklega sagt of mikið. Ég held aö rétt-
ast væri aö ég færi núna.”
„Hvað ætlast hún eiginlega fyrir?”
sagði ég reiðilega við William.
Hann horfði hugsandi á eftir henni.
„Maður veit aldrei þegar Alison er
annars vegar. Viö skulum heldur tala
um ferðina til Frakklands.”
I ljós kom að hann gat tæpast lagt af
stað fyrr en á föstudag. I dag var
mánudagur. Þangað til voru fjórir
dagar.
„Ég get ekki beöið svo lengi,” stundi
ég. „Ég verð þá bara að fara ein.”
„Það kemur ekki til mála,” sagöi
hann fastmæltur. „Þetta er ekki ferö
fyrirstúlku.”
Þetta hljómaði eins og gamaldags
riddaramennska og hæföi honum vel.
Var hann aðeins að hugsa um mig eða
var hann hræddur um að ég kæmist að
einhverjum þeim sannleika sem hann
vildi ekki aö spyrðist út?
Ég gat ekki reiknaö William fullkom-
lega út. Þaö var eitthvað við hann sem
geröi mig órólega. Allt í einu og að
ástæðulausu fór ég að velta því fyrir
mér hvað mömmu myndi finnast um
hann. Mér til mikilla vonbrigöa hafði
henni aldrei líkaö vel við Ross. Ekki
svo að skilja að hún talaði um þaö en
þaö lá í loftinu í þau fáu skipti sem hún
hafði hitt hann. Ég huggaði mig við að
þaö heföi átt eftir að breytast ef hún
hefði kynnst honum betur.
í LEIÐINNI AFTUR TIL
£\ Waynewater hugsaði ég
um Ross og það sem Alison MacDonald
hafði sagt. Ross haföi þá ekki verið
hjónabandsbarn og samkvæmt því
sem Alison sagði ekki átt von á arfi.
Það þótti mér undarlegt. Hann var þó
sonur móöur sinnar og eftir því sem
mér haföi skilist kom stór hluti eign-
anna frá henni. Mér kom svo sem ekk-
ert við hvemig fólkið skipti auöæfum
sínum. Þaö sem olli mér áhyggjum, og
meira að segja særði mig, var aö Ross
hafði aldrei sagt mér frá þessu sjálfur.
Hann vissi vel aö foreldrar mínir höfðu
aldrei gifst.
Ég velti því fyrir mér hvort ég ætti
að spyrja William um hvað Alison
hefði meint, þegar hún nefndi að eitt-
hvað hefði spurst út eftir áramótin, en
ég ákvaö að bíða þar til Susan væri hjá
okkur.
Eins og í fyrra skiptiö opnuöust
dyrnar upp á gátt áður en við vorum
komin hálfa leiö upp tröppurnar.
Warrier kom stökkvandi á móti okkur
og flaðraði upp um okkur hinn kátasti.
„Ég hélt að þið ætluöuð aldrei aö
koma aftur,” sagði Susan áköf og dró
okkur inn fyrir. „William, þú ættir að
vita hver er kominn. Brent! Hann er
nýkominn.”
„Hvaða Brent?” spurði William
þreytulega og nú fyrst tók ég eftir því
hve fölur hann var í andliti.
„Brent Champlain auðvitaö! Banda-
ríkjamaöurinn, vinur Ross. Þú hlýtur
að þekkja hann líka, Kristy.”
Ég hafði ekki svo mikið sem heyrt
nafn hans nefnt.
„Þú hlýtur að muna eftir Brent,”
sagði Susan viö William hálfóþolin-
móð. „Það var hann sem lánaöi okkur
íbúö Ross í London í vor.”
„Ibúð?” Orðið hrökk út úr mér áður
en mér tækist aö koma í veg fyrir þaö.
Susan horföi stóreygö á mig. „Viss-
irðu ekki að hann var meö íbúð í
London?”
Nei, hugsaði ég örvæntingarfull. Eg
vissi ekki aö hann var meö íbúð í
London. Ég vissi ekki að Manville var
ekki faðir hans. Ég vissi ekki að hann
hræddist vatn og elskaði hesta. .. Það
var svo óendanlega margt sem ég vissi
ekki um manninn sem ég hafði lofað að
giftast.
Fjögurra
daga
martröð
„Auðvitaðman ég eftir Brent,” svar-
aði William stuttaralega og ég leit und-
an til þess að komast hjá rannsakandi
augnaráöi hans.
„Hann var á ráöstefnu,” útskýröi
Susan. „Hann ætlaði bara að heilsa
upp á okkur áður en hann fer aftur.”
„Hafði hann frétt um Ross?” spurði
William órólegur.
Susan hristi höfuðið.
„Nei, en nú veit hann þetta allt. Ég
hef meira að segja sagt honum frá
bréfunum.”
William svaraði þessu engu.
„Er maturinn tilbúinn?” spurði
hann þess í stað.
„Mamma og pabbi eru búin aö
boröa. Þau voru þreytt. Við Brent biö-
um eftir ykkur. Hann ætlar að gista
hérna í nótt.
Matsalurinn var ekki líkt því eins
skemmtilegur og bjartur og bókasafnið.
Þarna var stórt, ferkantað borð og
stólarnir, með háum og beinum bök-
um, litu út fyrir að vera óþægilegir og
voru það áreiðanlega. Það sem helst
vakti þó athygli mína og bar allt annað
ofurliði í herberginu var risastórt oliu-
málverk yfir eldstæðinu.
ETTA VAR MYND af
Ross. Augsýnilega
haföi ekki reyndur lista-
maður málaö myndina. Þaö sá ég þegar í
stað en sá sem myndina haföi málað gat
þó komið til skila því sem hann ætlaöi sér
frá fyrirmyndinni. Þetta var mynd af
Ross, í einu af þunglyndisköstunum. Það
mátti lesa þjáningu úr augunum sem
horföu á mig.
„Mér hefur aldrei líkað þessi
mynd,” sagöi Susan lágróma viö hliö
mína. „Ross vildi láta hengja myndina
þarna.” Hún andvarpaöi. „Komdu og
heilsaðu Brent. Þetta er Kristy, kær-
astan hans Ross.”
Brent Champlain var stór og góðleg-
ur með feiknarlegt rautt skegg og vin-
gjarnleg blá augu. Mikiö væru þau Sus-
an failegt par, hugsaöi ég með sjálfri
mér og varð þegar ljóst aö þau höfðu
komist að sömu niðurstöðu sjálf. Þaö
sá ég þegar ég horfði á hana stinga
hendinni í hans.
„Susan er búin aö segja mér frá
Ross,” sagöi Brent og röddin var jafn-
mikilúöleg og allt annaö hjá honum.
„Ég er bara að velta því fyrir mér
hvar hann getur haldið sig ? ”
„Þú trúir því þá að bréfin séu raun-
veruleg?” sagði William.
„Auövitað.” Brent horfði vonleysis-
lega á hann. „Gerir þú það ekki?”
William yppti öxlum.
„Þú ættir að þekkja William,” sagði
Susan og brosti viö. „Hann efast allt til
hins síðasta. Brent er búinn að lofa því
að koma meö okkur til Frakklands.”
Hann þrýsti handlegg hennar þéttar
Kvenskór — Ný sending
Tcg:5046
Litur: hvítt lcður j... 365-
Stærðir: 36-41 Mef°
Tcg:5084
Litur: hvítt na
blátt lcður
Stærðir: 36—41
Ve rðKi-
365'
Tcg: 4551
Litur: hvítt og
bcigc lcður
Stærðir: 36—41
Verð kr
; 365-
Tcg:4151
Litur: hvítt og , ..... 365.
bcigc lcður Met°
Stærðir: 36—41
Tcg: 4-873
Litur: hvítt lcður . 465.'
Stærðir: 36-41 Mer° K ’
A P0ST5ENDUM ....
0 STJÖRNUSKÓBÚÐIN
Laugavegi 96 — Viö hliöina á Stjörnubiói — Sími 23795
Opið laugardaga kl. 10—12