Vikan


Vikan - 27.05.1982, Blaðsíða 44

Vikan - 27.05.1982, Blaðsíða 44
Stjörnuspá llnilurinn 2l.mars 20.d|»ril Fyrstu tveir dagarnir i vikunni gefa mesta möguleika ef þú nýtir þér tækifærin til fullnustu. Þig langar aö uppfylla ákveöna ósk. Er ekki skynsam- legt að ræða við ein- hvern sem hefur vit á svonamálum? ki.tithinn 22. júni 23. júli Það sem í fyrstu virðist ætla að verða óyfirstíganlegt vanda- mál reynist þegar allt kemur til alls auövelt að leysa. Þér hættir til að vera of svartsýnn. Lífiö er ekki svona erfitt. \;iuliA 21.;ipriI 2l.mai Vikan byrjar ekki vel. Þú munt lenda í hörkurifrildi við ein- hvern sem er þér ná- kominn. Ef þú hefur trú á því sem þú ert að segja þá átt þú að standa fast á þinni skoðun.Ihugaðu að taka þér langt frí. Frá og meö föstudeg- inum snúast málin þér í hag. Þér veitist erfitt að aögreina vinnu og heimilislíf en nú verður þú að fara að sinna f jöl- skyldunni ef ekki á að snúast til hins verra. Tiíbunirnir 22.mai 2l.júni Astarmálin standa í blóma hjá þeim ólof- uðu þessa vikuna. Gamlir draumar ræt- ast og allt leikur í lyndi. Rólegur tími er framundan og óvænt uppákoma setur punktinnyfiri-ið. >lc$jiin 24.;í]{úsl 2.lu-pl. Þú lendir í skemmti- legu ævintýri á næst- unni. En þú verður að gæta betur aö heilsunni en þú hefur gert hingaö til. Ein- hver lasleiki er fram- undan en tekur fljótt af. \»Uin 24.\t*pi. 2.Voki. Þú ert aö glima viö ákveðiö verkefni þessa stundina. Þú munt fá mikið hrós fyrir úrlausn þess verkefnis. Láttu það samt ekki stíga þér til höfuös. Mikil veisluhöld eru fram- undan. Sporúdrckinn 2-l.okl. 2Vnó%. Mikið annríki hefur veriö hjá þér lengi. Þú ferð nú að sjá fyr- ir endann á þvi. Best er að taka sér frí í nokkra daga á meöan þú ert að komast niður á jörðina. Hringdu í gamla kunningja. HoijmiiAurinn 24.nó». 2l.dc» Þú ert mjög rólegur að eðlisfarí en ein- hver atburöur verður til þess að þú missir stjóm á skapi þínu. Gættu orða þinna þvi það getur verið erfitt aö biðjast afsökunar eftir svona frum- hlaup. Einhver hefur mikinn áhuga á að koma sér í mjúkinn hjá þér. Gættu þín á freisting- um því þær eru á hverju strái. Þú munt fá heimboö frá göml- um vinum og þú skalt hiklaust þiggja þaö. VitnsbcTÍnn 2l.jan. lú.íchr. Það mun borga sig aö breyta svolítið til á næstunni. Þú ert langþreyttur á ástandinu en það breytist ekki nema þú gerir eitthvað í málunum sjálfur. Þú átt von á bréfi með góöum fréttum. Kiskarnir 20.ícbr. 20.mar« Þú ert mjög varkár í samskiptum þinum við fólk. En til þess að ná árangri verður að taka áhættu. Þú munt fá mikið hrós á næstunni og átt það fyllilega skilið. Ekki láta aöra hafa of mikil áhrif á þig. Fimm mínútur meö Willy Breinholst Dags daglega er hægt að komast að mörgum merki- legum niöurstöðum. Til dæmis hef ég komist að raun um að hið stutta orð EN getur eyðilagt allt fyrir manni, tekið glansinn af til- verunni, farið með skaps- munina og gert lífiö dapur- legt og vægast sagt erfitt. Eftir einn dag með þessu orðskrípi er ég ekki smeyk- ur við að fullyrða að EN er það orð í málinu sem ég hef mesta andstyggð á. Það lítur út fyrir að vera lítið og ein- falt, samt. sem áður getur það brotið mann niður hvað eftir annað, breytt aðstæð- um, sem virðast bjartar og efnilegar, þannig að lífið verður þungbært og maður sjálfursvartsýnn. Eg skal telja upp nokkur dæmi og þá skilur þú hvers vegna ég þoli ekki þetta litla andstyggilega orð. Það koma bréf frá Gjald- heimtunni. 1 sjáiiu sér þarf það ekki að vera svo slæmt. Maður hefur heyrt um fólk sem hefur fengið skatta- lækkun. Meii a að segja hef ég einu sinni fengið endur- greiddar 8 kr. og 85 aura sem ég af misgáningi hafði borgað of mikið. Maður ætti því að taka meö svolitl- um fyrirvara þeirri skoöun að Gjalclheimtan sé hrein og klár blóðsuga. I þessu ákveðna tilfelli vissi ég þar að auki um hvað málið snerist. Eg hafði nefnilega kornist að raun mn — eftir töflu sem birtist í einu dag- blaðanna — að ég hafði fengið 7000 kr. of hátt út- svar og það hafði ég að sjálfsögðu kært. Eftir- væntingarfuUur reif ég upp gult umslag og las: „Með tilvísun til bréfs yð- ar dags. 17. f.m., þar sem þér farið fram á leiðrétt- ingu á álögðu útsvari, þar sem þér álítið að skattyfir- völd hafi ofreiknað sem nemur kr. 6.013,02, skal upplýst að tafla sú er þér fóruð eftir er að vísu rétt, en.. Það er ekki nauðsynlegt að lesa það sem kemur á eftir þessu liUa orði, EN. Það er ekki ómaksins vert. Þú getur alveg eins rifið það strax og hent i bréfa- körfuna og sagt við sjálfan þig. — Þetta gekk þá ekki. Annaðdæmi: Eg sit önnum kafinn við vinnu mína. Þá gægist Maríanna inn. Það var sætt af þér að bera þvottavinduna upp á loft og setja gömlu komm- óðuna niður í kjallara, en... Takk fyrir. Hún þarf ekki að segja meir. Þetta litla EN hefur strax sagt mér að þvottavindan hafði átt að fara í kjallarann og kommóðan upp á loft. Næsta dæmi er eitt þeirra mörgu sem hafa alltaf EN í för með sér. Sjónvarpið okkar bilaði og ég fékk viðgeröarmann. Það er hægt að gera við það, er það ekki? spurði ég þegar hann hafði krukkaö svolítiö í það. Auövitað er hægt að gera við það, sagði hann. Það er hægt að gera viö alla hluti, en... Hef ég ekki rétt fyrir mér? Ert þú ekki smám saman farinn að skilja hversu andstyggilegt orðið EN í rauninni er? Eg hafði farið til læknis vegna þess að ég var farinn að finna til þeim megin sem hjartað liggur. Senni- lega er það vöðvabólga og ef til vill gæti ég fengiö ein- hvem áburð eða ráðlegg- ingar um svolítið nudd. Þegar hann hafði skoðað mig sagðihann: Það er auðvitað til fóik sem er þyngra en b,ú, Eg þekki líka fjölda^ dæma um að of þun£c fólk meðal 44 Vikan 21. tbl.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.