Vikan


Vikan - 27.05.1982, Blaðsíða 62

Vikan - 27.05.1982, Blaðsíða 62
Eru blæðingarnar sjálfar ekki öruggt tímabil? Sœll, kæri Póstur. Vantar þig ekki verk- efni? Hér færóu nokkrar spurningar sem þú mátt mjög gjarnan svara sem fyrst! Það er talað um öruggt tímabil rétt fyrir og rétt eftir blæðingar, en eru blæðingarnar sjálfar ekki öruggt tímabil? Eða er bara ekki minnst á það vegna þess að það er svo ótrúlegt að fólk hafi sam- farir þegar konan er á túr. Svo er þetta með fóstur- eyðingar. A að segja mér að hvaða kona sem er geti bara gengið til læknis og beðið um fóstureyðingu? Þarf ekki að uppfylla nein skilyrði? Og hvaða skilyrði eru það sem þarf? Okei, þá vona ég bara að Helga sé með magaptnu svo hún láti bréfið mitt í friði. Með fyrirfram þakklæti fyrir birtinguna. 3366—7193 PS. Það þýðir ekkert að benda mér á gömul blöð því ég hef ekki keypt Vikuna hingað til. Oft hefur það verið undirstrikað hér á síðum Póstsins að það er alls ekki rétt að tala um öruggt tímabil, hvorki fyrir né eftir blæðingar og ekki einu sinni meðan á blæðingum stendur. Það er vegna þess að egglosið getur verið mjög óreglulegt og eggið getur lifað í nokkra daga í líkamanum. Dæmi eru um að konur hafí orðið barnshafandi alveg rétt fyrir og rétt eftir blæðingar. Blæðingar eru fræðilega séð öruggt tíma- bil því frjóvgað egg ætti ekki að hafa möguleika á að festast í legveggnum því þá losnar slímhúðin innan í legveggnum og rýrnar. En blæðingar geta stundum átt sér stað af öðrum orsökum. Þó líkurnar séu ef til vill litlar borgar sig að fylgja þeirri reglu að ekkert sé ómögulegt. Ef fólk vill ekki eignast barn verður verður það að nota getn- aðarvarnir. í hugum margra eimir enn eftir af þeirri hugmynd að konur séu óhreinar með- an á blæðingum stendur og fyrst á eftir. Þessi hugmynd er komin úr Gamla testa- mentinu og þar er að fínna ýmis fyrirmæli í sambandi við tíðablæðingar, svo sem að menn eigi ekki að hafa samfarir við konu meðan á blæðingum stendur. Ef til vill eru þessi fyrirmæli ekki byggð á hleypidómum ein- um saman því sýkingar- hætta í leggöngum og legi er nokkuð meiri meðan á blæðingum stendur. í þá daga voru ekki til þau lyf sem við nú eigum að venj- ast. Sumir hafa aldrei sam- farir á blæðingatímanum en aðrir láta sig það engu skipta. Þetta fer eins og svo margt annað í kynlífinu eftir þörfum og vilja hvers og eins. Þær konur geta fengið fóstureyðingu sem af ein- hverjum orsökum, læknis- fræðilegum eða félagsieg- um, telja sig þurfa þess. Læknar og félagsráðgjafar vega og meta ástæðurnar í samráði við konuna. Fóstureyðing er ekki fram- kvæmd að ástæðulausu enda alvarleg aðgerð sem ekki má flana að. Linsur og fleira Hæ, Póstur. Eg er hér með nokkrar spurningar sem ég vona að þú svarir fyrir mig. 1. Hvað kosta linsur? Eer verðið eitthvað eftir því með hve slœma sjón maður er? 2. Geta allir orðið skiptinemar? Hvert er aldurstakmarkið? 3. Ef mig langar að verða flugfreyja en er ekki nógu há en með góða tungumálakunnáttu, til dæmis í fjórum málum, væri þá ekki möguleiki fyrir mig að komast á námskeið? Með fyrirfram þökk fyrir svarið. LUKKUPLATAN Maöurinn á myndinni er meölimur í hljómsveit sem margir kalla fyrstu pönkhljómsveitina á Islandi. Síöan hljómsveitin kom fyrst fram hefur mikiö vatn til sjávar runnið og nýveriö sendi flokkurinn frá sór plötu sem er um margt ólík því sem áöur hefur frá þeim komiö. Hvaö heitir umrœdd hljómsveit? Hljómsvqitin heitir Sondandi er:_____ Heimili Póstnúmer. _ Póststóð _ Utanáskriftin cr: VIKAN, Lukkuplatan '82— 15 PÓSTHÓLF 533,101 REYKJAVÍK. Vinningshafar Lukkuplatan '82 Á myndinni var að sjálfsögðu hinn fjölhæfi skemmtikraftur Ómar Ragnarsson. Þessi þijú fá senda piötuna ÓMAR RAGNARSSON SYNGUR FYRIR BÖRNIN: Hanna Gunnur Sveinsdóttir, Skarðshlíð 27 f, 600 Akureyrí. Eva Kristjánsdóttir, Boðageröi 10,670 Kópaskeri. Niels Birgir Níelsson, Furugrund 38, 200 Kópavogi. 6Z Vikan Zl.tbl.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.