Vikan - 22.09.1983, Page 8
Andrés og andaborgin__
Við alltaf biðum spennt að sjá þá Mikka og Andrés önd,
þeir okkur kátir fylgdu inn i bernskudraumalönd.
Mikki mús var hetjan okkar, Andrés önd var okkar guð,
en allt er breytt, nú þekkist bara rifrildi og puð.
Burt er Andaborg,
allar breiðgötur og torg,
Gústi frændi og hann Mikki mús þeir drukku sig i hel.
Plútó fór á flakk,
frændans rikidæmi sprakk,
Andrésína stakk sér ofan i steypuhrærivél.
Þessi erindi eru úr laginu Andaborg sem Ingunn Gylfa-
dóttir, ung og efnileg söngkona, söng inn á plötu á dögun-
um. Þar sem öll lögin á plötunni áttu að fjalla um heim
barna og unglinga lá auðvitað beint við að þar væri að finna
lag um Andrés önd og félaga hans í andabænum, en end-
urnar og börnin hafa oft átt ánægjulegar stundir saman. í
lagi Ingunnar um andaborgina er búið að snúa öllu við, og
ekki laust við að borgin og íbúar hennar verði fyrir dálítilli
gagnrýni. Að gamli góði drésinn og félagar hans verði fyrir
gagnrýni er ekkert nýtt, fræðingar um heim allan hafa í
áraraðir lagt á sig mikla vinnu til þess að komast til botns 1
sannleikanum um Andrés önd og áhrif hans á börn og
unglinga. En hvenær varð þessi gamla góða önd, sem prýtt
hefur Vikuna í aldarfjórðung, til og hvers vegna hafa hún og
félagar hennar í andaborginni angrað fræðingana?
Faðir Andrésar andar
Faöir Andrésar andar, Walt
Disney, fæddist í Bandaríkjunum
áriö 1901. Þessi maður, sem átti
eftir aö verða heimsfrægur, byrj-
aði snemma aö vinna fyrir sér
með því aö bera út blöö. 14 ára
gamall sótti hann listaskóla í
Kansas City og byrjaöi síðán að
vinna þar sem auglýsingateiknari
ásamt vini sínum Ub Iwerks sem
var samstarfsmaöur hans alla
ævi. Þeir fóru síðan að vinna
teiknimyndir fyrir Kansas City
Film Ad Company en brátt voru
þeir farnir aö gera eigin teikni-
myndir og selja þær og Disney
setti á stofn eigið fyrirtæki,
Laugh-O-Grams.
Á árunum 1922 til 1924 uröu
fyrstu teiknimyndir Disneys til og
má þar nefna myndir eins og
Rauðhettu og söguna um tónlistar-
mennina frá Bremen.
En fyrirtækiö fór á hausinn og
leið Disneys lá til Hollywood þar
sem hann geröi teiknimyndaflokk-
inn um Lísu í Undralandi áriö
1923.
1927 varö svo Mikki mús til, en
þaö var einmitt hann sem gerði
Disney frægan. Þriðja teikni-
myndin sem Disney geröi um hetj-
una Mikka mús var með hljóði og
hét Steamboat Willie. Andrés önd
varö svo til áriö 1932 og var notað-
ur í fyrsta sinn í teiknimynd áriö
1934. Þar var hann aukapersóna,
latur náungi á matrósafötum sem
sagöi: „Vinna, hver, ég? Nei
takk.”
En gamli góði Andrés fékk meö
tímanum sína eigin teiknimynd og
síðar sitt eigiö teiknimyndablað.
1937 kom Disney með teikni-
myndaflokk um Andrés önd og
vinsældir hans urðu brátt til þess
að Mikki stóð í skugganum.
Andrés var aumur og alltaf blank-
ur og óduglegur við að verja sig,
Mikki var hins vegar sterkur, box-
aði frá sér og tókst betur að sigr-
ast á erfiðleikunum.
Og þeir sem þóttust vita best
sögðu að vinsældir Andrésar væru
vegna þess að fólkinu, sem á þess-
um árum lifði í ótta við atvinnu-
leysi, væri hagur í því að sjá að
það væru fleiri sem ekki réðu við
aöstæðurnar.
Disney var orðinn frægur og
Disneyiðnaðurinn svokallaði gekk
hratt fyrir sig. Á árunum 1935 til
1958 var lítið aö keppa við í
Evrópu. Farið var að gefa út
teiknimyndablöð á fjölmörgum
tungumálum og til urðu sápur,
bolir og alls kyns vörur merktar
Walt Disney. Og auglýsingateikn-
arinn hafði sín áhrif á börn og
unglinga um heim allan og áhrifa
hans gætti í teiknimyndaiðnaðin-
um allt frá Sovétríkjunum til
Kína. 1966, árið sem Disney lést,
8 Vikan 38. tbl.