Vikan


Vikan - 22.09.1983, Blaðsíða 16

Vikan - 22.09.1983, Blaðsíða 16
á þessum vanda. Guðrún var rit- ari félagsins og skrifaði mest af þeim bréfum sem við sendum til opinberra aðila þar sem við bent- um á að þetta væri ekki aðeins vandi þess fólks sem byggi í bröggunum heldur væri þetta þjóöfélagslegur vandi sem gæti skapað frekari vanda. Við lögðum líka sérstaka áherslu á að heilsu- tjón gæti orsakast af þessu lélega húsnæði. Við lögðum kapp á aö heilsuveilt fólk og fólk með böm kæmist úr þessu húsnæði. Líka vildum við hrinda því orði af okkur að það væri eitthvert sjálfskaparvíti fólks aö lenda í húsnæðisvanda. Við höfðum ekki skapað vandann í sjálfu sér. Meö geysilegum breyt- inn hefði verið rétt um fimm þús- und manns þegar flest var,” segir Guðrún. „En við gátum aldrei fengið neina staðfestingu á fjöld- anum frá borgaryfirvöldum,” segir Þórunn. „Þeir vildu aldrei telja, komu sér alltaf hjá því aö gefa upp ákveðna tölu. Camp Knox var stærsti kampur- inn, Laugarneskampurinn var líka mjög stór og Múlakampur og Herskólakampur, sem voru tveir kampar þótt þeir stæðu á sama holtinu. Líklega hafa þó fyrstu braggarnir sem teknir voru í notk- un fyrir Islendinga veriö á Skóla- vörðuholtinu. Þar var geysilegur fjöldi fyrsta kastið, en það var um leið einn af þeim kömpum sem bæjaryfirvöld vildu fyrst losna ar og viö Laugaveginn þar sem nú er Stjömubíó. Braggar voru við Sundlaugaveg og við Elliðaár, í Ártúnsbrekkunni. Þá var Selby- kampur í Sogamýri, en þar bjó Guðrún einmitt. Alltaf slæmt orð á fátækrahverfum — En hvers vegna stóð borgin fyrir því sjálf að láta fólk búa í þessu ótrúlega lélega húsnæði? Þaö er Þórunn sem svarar: „Þegar öll þessi braggahverfi eru byggð inni á borgarsvæðinu tekur herinn lóðimar í raun traustataki og verður um leið bótaskyldur. Þegar hann fer fær virði innréttinganna látið ganga upp í íbúðarverðiö. ” — Hvers vegna var slæmt orð á braggabúum? „Það er alltaf slæmt orð á fá- tækrahverfum,” segir Þórunn. „Þegar fólk sætir afarkostum reyna þeir sem sökina eiga að þvo hendur sínar og klína skömminni á fórnarlambiö. Þetta er ekkert sérfyrirbæri í sam- bandi við braggabúskapinn og Reykjavík heldur bara það sem gerist alls staðar. Við sem vorum í herskálunum og börn okkar björguðumst miklu betur í raun og veru heldur en mætti gera sér í hugarlund, til dæmis í samanburði við fátækra- hverfi sem eru gömul og hafa Inni við Elliðaór var nokkuð myndarlegur kampur. Eftir byggingarlagi bragg- myndarlega upp eftir þeim — að minnsta kosti þeim sem efst stóðu. Það er anna að dœma hafa Bretar reist þessa byggð og reynt að hlaða nokkuð allnokkur breyting að horfa yfir i Breiðholtið. ingum á atvinnuháttum og at- vinnumöguleikum og aðstreymi í bæinn skapaðist spenna á húsnæð- ismarkaðinum. Það hafði heldur aldrei veriö nóg af góðu húsnæði í Reykjavík, ekki heldur fyrir stríð- ið, enda langt krepputímabil sem á undan hafði farið og lítið byggt.” Þær Þórunn og Guörún lýsa því fyrir okkur hvernig okurleigu hafi verið krafist fyrir húsnæði og dul- inna greiðslna. Húseigendur vildu heldur ekki leigja hverjum sem var svo að barnmargt fólk átti ekki í mörg önnur hús að venda en komast í bragga, ef hann var þá að fá. Einstæðar mæður sem og öryrkjar, sem ekki gátu heldur reitt fram þúsundir í fyrirfram- greiðslu, lentu einnig oft í bragga. Uppistaðan í braggahverfunum varð því bammargar fjölskyldur, mæður með böm og heilsulítið fólk. — Hvar voru helstu bragga- hverf i og hversu margir haldið þið að íbúamir hafi verið? „Þaö var talað um að íbúafjöld- við. Hann stakk í augun. Ráða- menn höföu minni áhuga á aö losna viðaöra.” „Og þar var líka byrjaö á kirkjubyggingunni,” bætir Guð- rún við. „Það getur hafa verið önnur ástæöa fyrir því að kampur- inn á Skólavörðuholtinu fór fyrr en sumiraðrir.” Þær telja upp fyrir okkur fleiri kampa. Trípólí-kampur var skammt frá Háskólanum, Balbo- kampur var við Kleppsveginn norðanverðan og svo var kampur hinum megin við veginn, nærri DAS. Þyrping var í krikanum við Ægisíöu og Kaplaskjólsv. „Melabragginn” var nefndur stór spítalabraggi á Högunum þar sem bjó óskaplegur fjöldi fólks. I Skerjafirði voru braggar og Þór- oddsstaðakampurinn var einnig töluvert stór. Braggahverfi var við Bústaðaveginn, nærri þeim stað þar sem Veðurstofan er nú til húsa, og braggar voru við Há- teigsveginn, viö Sjómannaskól- ann. Á Hallveigarstíg voru bragg- borgin umráð yfir bröggunum, svo sem eins og í bótaskyni. Margir af þessum bröggum voru ekki neinir mannabústaðir, sérstaklega þeir sem Englending- ar byggðu allra fyrst. Þeir voru lélegir. Það var ekki vatn eða frárennsli í Skólavörðuholtinu, svo dæmi sé tekið, þegar það hverfi var afhent borgaryfirvöld- um. Fólk lét sig hafa þaö að flytja inn í þessi hreysi frekar en aö standa úti og fór að reyna að laga í kringum sig og koma á hreinlætisaðstööu. Það voru síðan innréttingarnar og lagnimar sem það seldi þegar það fluttist í burtu. Borgin haföi forkaupsrétt- inn en innréttingamar gengu kaupum og sölum milli manna sem fóru eöa komu í braggana. Það var eiginlega ekki fyrr en við stofnuðum samtökin og þrýst- um á borginu um aö gefa þessu húsnæðislausa fólki færi á að komast í varanlegt húsnæöi að borgin notaði forkaupsréttinn og braggamir voru rifnir og and- haldist við og alið upp fleiri ætt- liði við mjög bág kjör og aðstöðu. Fólkið bjargaðist betur vegna samheldninnar og samúðarinnar innbyrðis. Fólk gerði geysilegar hreinlætiskröfur til sjálfs sín og fjölskyldna sinna. Samt sem áður urðu börnin stundum fyrir leið- indum vegna búsetunnar í brögg- unum. Þau töldu sig veröa fyrir aukalegri lúsaskoðun í skólum. Nú getur þetta verið einhver við- kvæmni, en það voru ýmsir erfið- leikar við þetta og hreinasti voði fyrir heilsufarið að búa í bragga. Gólfkuldinn var mikill og mjög lítil einangrun í bröggunum svo aö kyndingin rauk öll út. Svo myndaðist líka óheilnæmt gasloft af olíuofnunum.” „Sonur minn var aðeins einn vetur í skóla, Laugarnesskólan- um, á meðan við bjuggum í bragganum,” segir Guðrún. „Það var aldrei neitt vandamál þar. Hann var líka á dagheimili í tvö ár og þar var honum aldrei strítt heldur.” lfcVlkan 38. tbl.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.