Vikan


Vikan - 22.09.1983, Blaðsíða 62

Vikan - 22.09.1983, Blaðsíða 62
I’OSTIKIW Ástarferhyrningurinn Þannig er mál med vexti ad ég er hrifin af kœrasta sgstur minnar og hann er hrifinn af mér (hann hefur sagt mér þad). Ég vil ekki sœra sgstur mína og svo á ég líka kœrasta sem er ágœtur en ég er miklu hrifnari af kœrasta systur minnar, hann er svo sœtur og góður og hefur oft spurt mig hvort ég vilji ekki byrja með sér. Ég veit ekki hvað ég á að segja þó að mig langi til að segja já. Svo er hellingur af strákum á eftir mér en ég lít ekki við þeim, ég er svo skotin í honum. Einu sinni, þegar hann kom að sœkja systur mína en hún var ekki heima, bauð hann mér út að ganga og ég þáði það. Við gengum niður á Torg. Þar hittum við strákinn sem ég er með og hann varð alveg brjálaður því að hann heldur að hann eigi mig og hann sagði við mig að hann œtlaði að kjafta frá öllu. Bœði um mig, hann og kœrasta systur minnar því hann sá mig kyssa hann. Þú verður að svara mér strax því að ég og kœrastinn minn höfum verið saman svo lengi. Og ef hann segir frá öllu veit ég ekki hvað um mig verður. PS Hann kom í morgun en enginn var heima nema ég og ég henti honum út. Ein ástfangin. Þú ert sannarlega heppin aö hafa bara helling af strákum á eftir þér. Póstin- um finnst fallega gert af þér aö taka svona mikið til- lit til systur þinnar. Þaö er greinilegt aö samband þitt viö gamla kærastann er komið í mola og getur varla versnað mikið úr þessu. Þaö er kannski heldur ekki svo mikill greiði viö systur þína að vera aö hlífa henni viö sannleikanum í málinu, hið sanna kemur fram fyrr eða síðar. Ef þú ert alveg viss um tilfinningar þínar og tilfinningar kærasta systur þinnar ættirðu því ekki að hafa neinar vöflur á því en taka boði hans um að fara að vera með þér. Það verður öllum fyrir bestu þegar til lengdar lætur. Það er erfitt að særa tilfinningar annarra en því miður verður stundum ekki komist hjá því. Þá er um að gera að vera sterkur og hvika hvergi frá þeirri ákvörðun sem tekin hefur verið. Líka er mikilvægt að vera algjörlega hreinskil- inn. Ég óska þér svo bara góðs gengis í ástarmálun- um, hvaða ákvörðun sem þú tekur. Hún verður að vera þín eigin. James Dean Ég hef aldrei skrifað þér áður en mér datt það í hug vegna athugasemdar ykkar í 31. tbl. og ég vona það besta. Ég er einstakur aðdáandi James Dean og er að drepast úr forvitni um þennan frœga leikara. Hvað var hann gamall þegar hann dó? Hvaða mynd er frœgust sem hann hefur leikið í? Var hann á föstu með einhverri? Viltu birta mynd af honum? Ég bið ekki um plakat af honum, bara litla mynd. Áður en ég hœtti langar mig að spyrja hvort maður myndi standa illa eða vel á atvinnubrautinni ef maður kláraði íþróttaskólann. Kœri Póstur, þú verður að fyrirgefa mér hvað mér tekst að orða þetta illa. Ein sem á heima á frá- bœrasta stað á landinu. James Dean fæddist 8. febrúar 1931 (væri því 52 ára ef hann hefði lifað), en hann lést í bílslysi 30. september 1955, þá 24 ára gamall. Honum entist því ekki aldur til að leika í mörgum kvikmyndum. Hann varð hálfgerð þjóð- sagnapersóna þegar í lif- anda lífi, en eftir að hann dó má segja að hann hafi verið tekinn í dýrlingatölu meðal æskufólks. Því má segja að allar myndir sem hann lék í hafi orðið fræg- ar. Hann lék fyrst smáhlut- verk í f jórum kvikmyndum en þær myndir sem hann lék aðalhlutverk í urðu allar mjög frægar. Þær voru EastofEden (Austan Eden), Rebel Without A Cause (1955) og Giant sem ekki var frumsýnd fyrr en að honum látnum, 1956. Hann var með nokkrum stúlkum á sinni stuttu ævi. Þar á meðal voru leikkonur svo sem Nathalie Wood og Ursula Andress (sem þá voru kornungar). Stærsta ástin hans var þó sögð hafa verið ung og óþekkt leik- kona af ítölskum ættum, Pier Angel (fullu nafni Anna Maria Pierangeli). Móðir stúlkunnar var strangkaþólsk og siðavönd og var alls ekki um það að dóttir hennar væri að flækj- ast um með hinum ill- ræmda James Dean. Hún bannaði þeim að hittast en stelpan hótaði þá að fara að heiman. Þau voru saman um hríð og hugleiddu að gifta sig. En um síðir fór eitthvað úrskeiðis og Pier trúlofaðist öðrum manni og giftist honum síðar. Sagan segir að James Dean hafi rótað á mótorhjólinu sínu umhverfis kirkjuna meðan á athöfninni stóð, en það er eins líklegt að þetta sé aðeins sögusögn. Varðandi seinni hluta bréfsins er það að segja að þótt aðsókn að íþróttaskólanum hafi verið mikil undanfarin ár og margir lokið prófum þaðan þá er enn skortur á íþrótta- kennurum víða úti um landsbyggðina. Pósturinn lofar að koma því til leiðar að von bráðar verði birt falleg mynd af James Dean í blaðinu. 62 ViKan 38. tbl.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.