Vikan - 07.11.1985, Blaðsíða 33
Texti: Þórey Einarsdóttir
Myndir: Þ.E. og fleiri.
Yfirbragð borgarinnar ar létt og
skemmtilegt. Hér eru menntaskóla-
nemar að selja gamlar skólabækur
sinar é Karl Johan fyrir framan há-
skólann.
Karl Johansgata er frægasta gatan I Osló. Neðri hluti hennar er göngugata
og mjög lifleg.
Staðurinn er þekktur fyrir góðan
mat og góða þjónustu en ekki síst
fyrir dinnermúsíkina. Þar er gam-
all maður sem nú mun vera kom-
inn um nírætt og hefur spilað
þarna svo lengi sem menn muna.
Hann situr á palli fyrir ofan
veitingasalinn og spilar fyrir gesti
sem margir hverjir hafa komið
eingöngu til að hlusta á hann.
Stravinski er skemmtilega inn-
réttaður staður í spænskum stíl og
margir segja þetta besta staðinn í
borginni. Þar er leikin lifandi tón-
list og diskótónlist en á þriðju-
dagskvöldum er leikin tónlist eftir
Stravinski og fleiri og það hefur
gert staðinn mjög vinsælan.
Ludvig er einn af skemmtilegri
veitingastöðum í Osló. Að borða
þar er eins og að borða á undar-
legu minjasafni þar sem öllu ægir
saman — og allt hefur verið hengt
upp í loftið. Þar hanga gamlir
dúkkuvagnar og rugguhestar og
uppi undir lofti eru gínur að baða
sig í gömlu baðkeri. Út úr einum
veggnum birtist elgshaus á heila
tímanum og segir fólki hvað
klukkan er með rámri röddu svo
fátt eitt sé nefnt. Góður staður til
að taka börnin með á því þarna er
margt að skoða. Peppés Pizza eru
skemmtilegir pitsustaðir sem eru
víða um Noreg. Peppés er án efa
vinsælasti pitustaðurinn í Osló (en
þeir eru nokkrir í borginni). Þar
er gott barnahorn og þægilegt að
koma með börn. Mama Rosa er
annar mjög góður og vinsæll,
ítalskur staður. Af góðum kín-
verskum er helst að nefna China-
town.
La Brochotte er frægur fyrir
„franska eldhúsið”, franskur
staður með góðum mat og góðum
innréttingum. Hann er við hliðina
á Konserthallen, nálægt leik-
húsunum og verðlagið er ekki það
lægsta. Molla er frægur veitinga-
staður í gamalli vefnaðarverk-
smiðju við fossinn þar sem hægt
er að fá fisk og villibráð og horfa
beint út í upplýsta fossana. Etoiie á
Grand Hotel er annar mjög fínn og
virðulegur staður þar sem frönsk
matargerðarlist er í hávegum
höfð og verðlagið eftir því. Cats er
nýr staður sem þykir bjóða sér-
lega góðan mat og tónlist.
Dartagn er staður sem óðir sælker-
ar mæla eindregið með.
Blom á Karl Johan hefur verið
fundarstaður listamanna í
næstum 100 ár. Staðurinn er ný-
uppgerður ásamt öðrum húsum í
nágrenninu en innréttingar voru
látnar halda sér. Fru Blom, bjór-
og vínstaður, er til húsa á sama
stað. Brödrene Berg Og Sostrone
Larsen eru hlið við hlið. Á þeim
fyrrnefnda er bara hægt að fá vín
og þar er oft lifandi tónlist á kvöld-
in, annars diskótónlist. Þetta er
mjög vinsæll og skemmtilegur
staður til að hittast á og spjalla, til
dæmis áður en farið er annað. Á
þeim síðarnefnda er einnig hægt
að fá mat og hann er líka mjög
vinsæll. Scotsman er frægur
staður á miðri Karl Johansgötu og
minnir mest á breskan pöbb
af þeim sem eru í Osló. Margir
taka ástfóstri við þennan stað og
vilja ekkert annað fara.
Studentlunden fyrir framan
ráðhúsið er undir glerþaki en á
sumrin er það tekið burt.
Áðurnefndir staðir eru ekki
tæmandi listi yfir athyglisverða
veitingastaði í Osló heldur aðeins
brot. Hann gefur þó nokkra mynd
af fjölbreytninni sem þar ríkir.
Enginn ætti að þurfa að svelta eða
láta sér leiðast þess vegna. En því
miður er dýrðin ekki gefins. Osló
er ein dýrasta borg heims.
Kauplag er einnig hátt þannig að
það kemur ekki í veg fyrir að
borgarbúar og aðrir Norðmenn
geti notið lífsins en setur stórt
strik í reikninginn hjá ferða-
mönnum. Hið háa verðlag í land-
inu er Norðmönnum áhyggjuefni
vegna þess að það stendur ferða-
mannastarfsemi í landinu nokkuð
fyrir þrifum og ferðamönnum
fjölgar ekki sem skyldi.
Og á Osló eru líka skuggahliðar.
Hún hefur ekki farið varhluta af
meinum stórborganna, svo sem
sívaxandi eiturlyfjaneyslu, glæp-
um, vændi og upplausn. Yfirvöld
og almenningur hafa þó brugðist
ákveðið við og allt er reynt til að
halda ósómanum frá miðborginni.
Þar er óvenju öflug löggæsla á
degi sem nóttu og ávallt sjúkrabíll
til taks. Vegfarendur geta því ver-
ið allöruggir um líf sigg og limi á
götum úti.
Hér hefur varla verið minnst á
aðra þætti menningarinnar sem
borgin býður upp á, svo sem leik-
húslíf, óperu, sýningar og tón-
leikahald, listsýningar, listasöfn
og minjasöfn, en allt þetta er mjög
athyglisvert í borginni. Ferða-
menn í borginni ættu að líta í Oslo
Guide Og Oslo This Week sem hægt
er að fá á öllum hótelum og upp-
lýsingamiðstöðvum ferðamanna.
Heimskunnir listamenn eru þar
tíðir gestir.
En jafnvel þeir sem auralitlir
eru og verða að láta sér nægja
leikhús götunnar geta fengið
nægju sína í Osló. Á góðviðris-
dögum sumarsins (og í Osló er
allajafna verðursæld miðað við
það sem gengur og gerist á þess-
ari breiddargráðu) er borgar-
bragurinn léttur og skemmti-
legur. Og Norðmenn eru meira að
segja orðnir svo léttir að karnival,
þar sem allir dansa samba af
hjartans lyst, er orðinn árlegur
viðburður í Osló svo og öðrum
borgum Noregs. Segið svo að Osló
sé stærsta sveitaþorp heims!
Veitingastaðir sem nefndir eru:
í dýrari kantinum
Molla -
Sagvn. 21, sími 375450.
Cats — Storgt. 25.
La Brochette —
Dronnings Maudsgt. 1 — 3, sími 416733.
Theatercaféen —
Stortingsgt. 24 — 26, sími 508686.
Dartagnan Restaurand —
N.SIottsgt. 9, simi 415062.
Etoile, Grand Hotel —
Karl Johansgt. 31, simi 429390.
Grand Cafó, Grand Hotel —
Blom-Karl Johansgt. 41, sími 427300.
Ódýrari staöir meö afslöppuöu and-
rúmslofti
Chinatown —
Trondheimsvn. 139, simi 351919.
Mama Rosa —
0 Slottsgt. 12, simi 420130.
Peppés Pizza —
Stortingsgt. 4, sími 412251.
Ludvik —
Torggt. 16, sími 428800.
Brodrene Berg —
Karl Johansgt. 33,
Spstrene Larsen —
Karl Johansgt. 35, simi 429170.
Stravinski —
Rosenkrantsgt. 17, simi 422494.
The Scotsman —
Karl Johansgt. 17, simi 428953.
Studentlunden —
við Karl Johansgt.
Fru Blom —
Karl Johansgt. 41, simi 427300.
45- tbl. Vikan 33